Fleiri fréttir Sprengjur settar saman um borð Næstu hryðjuverkaárásir á farþegaflugvélar kunna að verða framdar af mönnum sem smygla íhlutunum í sprengju um borð í sakleysislegum umbúðum svo sem fyrir barnamat eða lyfjaflöskur. Sprengjuna myndu þeir setja saman úr íhlutunum bak við luktar salernisdyr um borð í flugvélinni. Við þessu vara öryggismálasérfræðingar sem AP-fréttastofan ræddi við í gær. 11.8.2006 07:15 Sjálfsagt að skoða tillögur Iðnaðar- og viðskiptaráðherra segir viðhorf um gagnsæi orkugeirans sem fram koma í skýrslu OECD vera alþekkt. Sjálfsagt sé að taka þau til athugunar. 11.8.2006 07:00 180 farþegar biðu í níu klukkustundir Margmenni var í Leifsstöð í gær á meðan beðið var eftir að hægt væri að fljúga til Heathrow-flugvallar. Öryggisreglur í flugi til Bandaríkjanna hafa verið hertar og er nú bannað að fara með flestan vökva í handfarangri vestur um haf. 11.8.2006 07:00 1,5 milljónir flýja heimili sín Fellibylurinn Saomai, sem gengur nú yfir suðausturhluta Kína, hefur hrakið 1,5 milljónir manna frá heimilum sínum. Þetta er einn kraftmesti stormur sem riðið hefur yfir Kína áratugum saman og áttundi fellibylurinn þar í landi í sumar. 11.8.2006 07:00 Laga þarf eldvarnir „Við teljum að eldvörnum í eldri gripahúsum sé mjög víða ábótavant,“ segir Sigríður Ásgeirsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands. Sambandið hefur sent umhverfisráðherra bréf þar hvatt er til þess að eftirlit með eldvörnum í gripahúsum verði eflt. 11.8.2006 06:45 Fleiri kennarar með réttindi Kennurum með kennsluréttindi fjölgaði úr 82 prósentum í 87 prósent á árunum 1998-2005, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. 11.8.2006 06:45 Sérsveitir smala brottrækum Yfir tuttugu þúsund ólöglegir innflytjendur hafa verið handteknir og vísað burt úr Bandaríkjunum það sem af er þessu ári og er það gríðarleg aukning frá fyrri árum. Herferðin er hluti af baráttu George W. Bush Bandaríkjaforseta gegn ólöglegum innflytjendum. 11.8.2006 06:45 Loksins leyfð í búðum vestra 11.8.2006 06:45 Hættulegar flísar valda slysum Flísar í útiklefa Salalaugar í Kópavogi hafa valdið óhöppum, þar sem viðnám er ekki nægilegt og þær verða hálar. Stefnt er að því að skipta um flísar á næstu vikum. 11.8.2006 06:30 Ber við vanþekkingu á reglum „Ástæðan fyrir því að ég var þarna á veiðum án veiðikorts var að ég gerði mér ekki grein fyrir að til þessara veiða þyrfti ég veiðikort,“ segir Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra um lundaveiðar hans í Grímsey í Steingrímsfirði á dögunum. 11.8.2006 06:30 Bréf lækka Hlutabréf í flugfélögum og ferðaskrifstofum hröpuðu í verði í gær, í kjölfar fréttanna af samsæri um hryðjuverk í farþegaflugvélum á milli Lundúna og Bandaríkjanna. Jafnframt lækkaði heimsmarkaðsverð á olíu vegna væntinga um að samdráttur í flugi valdi minni eftirspurn eftir eldsneyti. 11.8.2006 06:30 Árás á stúlku á leið í vinnu Tvær líkamsárásir voru framdar í fyrrakvöld og -nótt. Reynt var að nauðga rúmlega tvítugri stúlku á leið til vinnu í Breiðholti. Fyrr höfðu þrír menn ráðist að öðrum á Hverfisgötu og lamið með bareflum. 11.8.2006 06:15 570 milljónir í hálfsársuppgjöri Hagnaður Sparisjóðs vélstjóra nam rúmum 570 milljónum króna eftir skatta á fyrri helmingi árs. Hagnaður sparisjóðsins jókst um tæp tuttugu og fjögur prósent miðað við sama tímabil í fyrra. 11.8.2006 06:00 Greinilega híbýli höfðingja Fornleifafræðingar hafa komið niður á langhús við Hrísbrú í Mosfellsdal. Húsið er rúmlega tuttugu metra langt og má ráða af stærð þess að þar hafi búið höfðingjar. 11.8.2006 06:00 Borgaraflokkarnir vinna á Þegar rúmur mánuður er til þingkosninga í Svíþjóð mælist kosningabandalag borgaraflokka með meirihlutafylgi í tveimur nýjum skoðanakönnunum. 11.8.2006 06:00 Fann fólkið á leið til leitar Björgunarsveitir fóru í tvö útköll vegna týndra ferðamanna í fyrrakvöld. Fernt, þrír Frakkar og einn Japani, varð viðskila við samferðamenn sína við Heklurætur og voru um tuttugu björgunarsveitarmenn og þyrla Landhelgisgæslunnar send til leitar. Björgunarsveitarmaður á leið til leitarinnar ók óvænt fram á fólkið seint um kvöldið, en ekkert amaði að því. 11.8.2006 05:45 Sex milljörðum úthlutað Barnabætur ársins 2005 hækkuðu um nítján prósent frá árinu 2004. Alls var tæpum sex milljörðum króna úthlutað til 55.500 framteljenda. 11.8.2006 05:45 Ellefu skiptinemar hverfa Ellefu nemar á tvítugsaldri frá Egyptalandi hafa horfið sporlaust í Bandaríkjunum, en þeir höfðu skráð sig í mánaðarlangt skiptinám við háskóla í Montana-ríki. 11.8.2006 05:45 Kom saklausri konu í miklar ógöngur 11.8.2006 05:30 Sprenging á Grundartanga Sprenging varð í keri í álveri Norðuráls á Grundartanga á sjötta tímanum í gær. Að sögn Slökkviliðsins á Akranesi skapaðist við það hætta en þó náðust fljótt tök á ástandinu. Engum varð meint af en kerið eyðilagðist og rafmagn fór af skálanum sem það var í. Álið úr kerinu lak í lagnastokka sem eru í kringum kerin. 11.8.2006 05:15 Húsvagnar sífellt vinsælli „Það er alltaf selt meira af húsvögnum en árið áður,“ segir Gunnlaugur Ingibergsson hjá Seglagerðinni Ægi, sem selja tjaldvagna, fellihýsi, pallhýsi, hjólhýsi og húsbíla. „Hjólhýsin hafa verið sérstaklega vinsæl, en áður fyrr voru þetta bara tjaldvagnar og fellihýsi. Við erum bara með samkomutjöld til leigu en seljum engin tjöld. Við hættum því vegna minnkandi eftirspurnar.“ 11.8.2006 05:00 Hundakjöt fyrir húðina Hundakjöt verður sífellt vinsælla meðal norður-kóreskra kvenna, en þessi kóreski þjóðarréttur er talinn vera góður fyrir húðina. Bæði í Suður- og Norður-Kóreu er hundakjöt sagt gott fyrir úthald og auka hreysti og er vinsælt á heitum sumardögum. 11.8.2006 05:00 Yfirvöld virði rétt borgara 11.8.2006 04:45 Kristján tekur við Mannlífi 11.8.2006 04:30 Styrkir uppgröft á Hólum Sveitarfélagið Skagafjörður hefur ákveðið að styrkja uppgröft á Hólum í Hjaltadal næstu þrjú árin. Uppgröftur hefur staðið yfir á Hólum í sumar, en þetta er fimmta sumarið sem grafið er þar. Uppgröfturinn hefur fram til þessa verið unnin með styrk frá Kristnihátíðarsjóði. 11.8.2006 04:30 Sjófuglum fækkar Sjófuglum hefur fækkað umtalsvert á Norður-Atlantshafi og hvetja Landvernd og norræn systursamtök Norðurlandaráð til að finna orsakir fækkunarinnar og koma með tillögur til úrbóta. 11.8.2006 04:00 Kýr inni um nætur 11.8.2006 04:00 Óbreyttum neitað um hjálp ekki samkomulag í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í gær um orðalag ályktunar sem ætlað er að stuðla að vopnahléi milli Ísraels og Hizbollah-samtakanna í Líbanon. Þó vonast fastafulltrúi Bandaríkjanna, John Bolton, til þess að ályktunin verði samþykkt í dag. 11.8.2006 04:00 Vladimír Pútín sker upp herör Vladimír Pútín, forseti Rússlands, skipaði ríkisstjórn sinni í gær að láta gera eignaskrá yfir öll þau verk sem listasöfn landsins hafa að geyma. Fyrirskipunin kom í kjölfar þess að upp komst um stórfelldan þjófnað úr safni í Pétursborg, en talið er að 221 listaverki, samtals metin á um 360 milljónir króna, hafi verið stolið á síðustu árum. 11.8.2006 04:00 Vilja tala um samkynhneigð 11.8.2006 03:45 Upplýsingarnar eru á átta tungumálum Reykjavíkurborg hefur nú gefið út upplýsingaefni á átta tungumálum um leikskóla og tvítyngi barna á leikskólasviði. Bæklingunum, sem eru tvenns konar, er ætlað að mæta vaxandi þörf fyrir upplýsingum meðal erlendra foreldra leikskólabarna, en börn af erlendum uppruna í leikskólum Reykjavíkur eru um tíu prósent leikskólabarna í borginni. 11.8.2006 03:30 Amnesty International skorar á stjórnvöld Íslandsdeild Amnesty International skorar á íslensk stjórnvöld að beita sér fyrir því að að Sameinuðu þjóðirnar sendi tafarlaust friðargæslulið til Darfur í Súdan. 10.8.2006 23:08 Ætluðu að granda 10 flugvélum Hryðjuverkamennirnir sem bresk yfirvöld stöðvuðu í dag, höfðu ráðgert að granda 10 flugvélum sem áttu að fljúga frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Frá þessu greindi bandaríska leyniþjónustan í kvöld. 10.8.2006 22:14 Brasilískir þingmenn kærðir fyrir fjárdrátt af almannafé Rannsóknarnefnd á vegum brasilíska þjóðþingsins hefur kært 72 þingmenn um að hafa dregið sér fé úr sjóðum heilbrigðiskerfisins og mælir nefndin með því að þingmennirnir verði sóttir til saka fyrir meint brot sín. Mikill meirihluti þingmannanna, eða 63 af 72, tilheyra stjórnarflokkunum sem styðja forsetann Luiz Lula da Silva að málum. 10.8.2006 20:30 Skorar á yfirvöld að lengja kennaranám Formaður Kennarasambands Íslands skorar á yfirvöld að lengja kennaranám til samræmis við nágrannalöndin til þess að bæta námsárangur í íslenskum skólum. Þá segir hann samfélagið í heild þurfa að taka á óstýrilæti og agaleysi til þess að ná sömu markmiðum. 10.8.2006 19:45 Ríkisskattstjóri kominn út fyrir sitt valdsvið Ríkisskattsjóri er kominn út fyrir valdsvið sitt þegar hann gefur í skyn að fjármálafyrirtæki hér á landi veiti ráðgjöf um skattsvik. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja. 10.8.2006 19:17 Ber við vanþekkingu og fákunnáttu Vanþekking og fákunnátta sjávarútvegsráðherra á veiðireglum leiðir líklega til þess að hann á yfir höfði sér kæru fyrir ólöglegar lundaveiðar fyrr í sumar. Ráðherra segir leiðinlegt að hann hafi ekki farið að reglum og hyggst skýra mál sitt fyrir Umhverfisstofnun. 10.8.2006 18:54 Koma í veg fyrir að lífum sé bjargað Yfirmaður Neyðarhjálpar Sameinuðu þjóðanna segir Ísrelum og skæruliðum Hizbollah í lófa lagið að aðstoða hjálparsamtök við að koma hjálpargögnum til nauðstaddra í Suður Líbanon. Það geri þeir hins vegar ekki og komi þar með í veg fyrir að lífi fólks verði bjargað 10.8.2006 17:55 21 maður í haldi Bresk stjórnvöld hafa 21 mann í haldi sínu sem grunaðir eru um að hafa ætlað að fremja stórfelld hryðjuverk í allt að tíu flugvélum sem fljúga áttu til Bandaríkjanna. 10.8.2006 17:43 Siv ætlar í formannsslaginn Siv Friðleifsdóttir hefur ákveðið að taka slaginn við Jón Sigurðsson um formannsembættið í Framsóknarflokknum. 10.8.2006 17:31 Vörubíll valt í Kömbunum Vörubíll frá Vegagerðinni valt í Kömbunum ofan við Hveragerði um klukkan þrjú í dag. Vörubíllinn var við vinnu í vegkanti sem gaf sig svo að bíllinn valt. Engan sakaði. 10.8.2006 16:14 Barnabætur hækkuðu um 19% Við álagningu ríkisskattstjóra á einstaklinga kom fram að barnabætur vegna ársins 2005 hækkuðu um 19% frá fyrra ári. Þetta kemur fram á vef fjármálaráðuneytisins. Í ár á að úthluta tæpum 6 milljörðum króna til 55.500 framteljenda 10.8.2006 15:31 Flugvél Icelandair komin í loftið Flugvélum Icelandair hefur verið veitt leyfi til flugs til Bretlands. Fyrsta vélin fór í loftið rétt fyrir klukkan þrjú. Næsta flug er svo áætlað klukkan 16:10. Búist er við að flugumferð komist fljótlega í rétt form. 10.8.2006 15:09 Og vodafone eflir GSM þjónustu á svæðinu Og Vodafone hefur eflt GSM þjónustu sína í Dalvík fyrir fjölskylduhátíðina Fiskidaginn mikla sem fer fram um næstu helgi. Markmiðið er að tryggja hnökralaus samskipti hjá GSM notendum þar sem gera má ráð fyrir fjölda gesta á svæðinu yfir helgina. Um 30 þúsund manns lögðu leið sína á hátíðina í fyrra. 10.8.2006 13:23 Glóandi skúlptúr í byggingu Jörgen Hansen, danskur leirlistamaður stendur nú í stórræðum nærri Norrænahúsinu en hann er að byggja glóandi leirskúlptúr. Skúlptúrinn, sem á að byggjast á fjórtán dögum, á að verða þriggja metra hár og mun vega fjögur tonn. 10.8.2006 13:00 Sjá næstu 50 fréttir
Sprengjur settar saman um borð Næstu hryðjuverkaárásir á farþegaflugvélar kunna að verða framdar af mönnum sem smygla íhlutunum í sprengju um borð í sakleysislegum umbúðum svo sem fyrir barnamat eða lyfjaflöskur. Sprengjuna myndu þeir setja saman úr íhlutunum bak við luktar salernisdyr um borð í flugvélinni. Við þessu vara öryggismálasérfræðingar sem AP-fréttastofan ræddi við í gær. 11.8.2006 07:15
Sjálfsagt að skoða tillögur Iðnaðar- og viðskiptaráðherra segir viðhorf um gagnsæi orkugeirans sem fram koma í skýrslu OECD vera alþekkt. Sjálfsagt sé að taka þau til athugunar. 11.8.2006 07:00
180 farþegar biðu í níu klukkustundir Margmenni var í Leifsstöð í gær á meðan beðið var eftir að hægt væri að fljúga til Heathrow-flugvallar. Öryggisreglur í flugi til Bandaríkjanna hafa verið hertar og er nú bannað að fara með flestan vökva í handfarangri vestur um haf. 11.8.2006 07:00
1,5 milljónir flýja heimili sín Fellibylurinn Saomai, sem gengur nú yfir suðausturhluta Kína, hefur hrakið 1,5 milljónir manna frá heimilum sínum. Þetta er einn kraftmesti stormur sem riðið hefur yfir Kína áratugum saman og áttundi fellibylurinn þar í landi í sumar. 11.8.2006 07:00
Laga þarf eldvarnir „Við teljum að eldvörnum í eldri gripahúsum sé mjög víða ábótavant,“ segir Sigríður Ásgeirsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands. Sambandið hefur sent umhverfisráðherra bréf þar hvatt er til þess að eftirlit með eldvörnum í gripahúsum verði eflt. 11.8.2006 06:45
Fleiri kennarar með réttindi Kennurum með kennsluréttindi fjölgaði úr 82 prósentum í 87 prósent á árunum 1998-2005, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. 11.8.2006 06:45
Sérsveitir smala brottrækum Yfir tuttugu þúsund ólöglegir innflytjendur hafa verið handteknir og vísað burt úr Bandaríkjunum það sem af er þessu ári og er það gríðarleg aukning frá fyrri árum. Herferðin er hluti af baráttu George W. Bush Bandaríkjaforseta gegn ólöglegum innflytjendum. 11.8.2006 06:45
Hættulegar flísar valda slysum Flísar í útiklefa Salalaugar í Kópavogi hafa valdið óhöppum, þar sem viðnám er ekki nægilegt og þær verða hálar. Stefnt er að því að skipta um flísar á næstu vikum. 11.8.2006 06:30
Ber við vanþekkingu á reglum „Ástæðan fyrir því að ég var þarna á veiðum án veiðikorts var að ég gerði mér ekki grein fyrir að til þessara veiða þyrfti ég veiðikort,“ segir Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra um lundaveiðar hans í Grímsey í Steingrímsfirði á dögunum. 11.8.2006 06:30
Bréf lækka Hlutabréf í flugfélögum og ferðaskrifstofum hröpuðu í verði í gær, í kjölfar fréttanna af samsæri um hryðjuverk í farþegaflugvélum á milli Lundúna og Bandaríkjanna. Jafnframt lækkaði heimsmarkaðsverð á olíu vegna væntinga um að samdráttur í flugi valdi minni eftirspurn eftir eldsneyti. 11.8.2006 06:30
Árás á stúlku á leið í vinnu Tvær líkamsárásir voru framdar í fyrrakvöld og -nótt. Reynt var að nauðga rúmlega tvítugri stúlku á leið til vinnu í Breiðholti. Fyrr höfðu þrír menn ráðist að öðrum á Hverfisgötu og lamið með bareflum. 11.8.2006 06:15
570 milljónir í hálfsársuppgjöri Hagnaður Sparisjóðs vélstjóra nam rúmum 570 milljónum króna eftir skatta á fyrri helmingi árs. Hagnaður sparisjóðsins jókst um tæp tuttugu og fjögur prósent miðað við sama tímabil í fyrra. 11.8.2006 06:00
Greinilega híbýli höfðingja Fornleifafræðingar hafa komið niður á langhús við Hrísbrú í Mosfellsdal. Húsið er rúmlega tuttugu metra langt og má ráða af stærð þess að þar hafi búið höfðingjar. 11.8.2006 06:00
Borgaraflokkarnir vinna á Þegar rúmur mánuður er til þingkosninga í Svíþjóð mælist kosningabandalag borgaraflokka með meirihlutafylgi í tveimur nýjum skoðanakönnunum. 11.8.2006 06:00
Fann fólkið á leið til leitar Björgunarsveitir fóru í tvö útköll vegna týndra ferðamanna í fyrrakvöld. Fernt, þrír Frakkar og einn Japani, varð viðskila við samferðamenn sína við Heklurætur og voru um tuttugu björgunarsveitarmenn og þyrla Landhelgisgæslunnar send til leitar. Björgunarsveitarmaður á leið til leitarinnar ók óvænt fram á fólkið seint um kvöldið, en ekkert amaði að því. 11.8.2006 05:45
Sex milljörðum úthlutað Barnabætur ársins 2005 hækkuðu um nítján prósent frá árinu 2004. Alls var tæpum sex milljörðum króna úthlutað til 55.500 framteljenda. 11.8.2006 05:45
Ellefu skiptinemar hverfa Ellefu nemar á tvítugsaldri frá Egyptalandi hafa horfið sporlaust í Bandaríkjunum, en þeir höfðu skráð sig í mánaðarlangt skiptinám við háskóla í Montana-ríki. 11.8.2006 05:45
Sprenging á Grundartanga Sprenging varð í keri í álveri Norðuráls á Grundartanga á sjötta tímanum í gær. Að sögn Slökkviliðsins á Akranesi skapaðist við það hætta en þó náðust fljótt tök á ástandinu. Engum varð meint af en kerið eyðilagðist og rafmagn fór af skálanum sem það var í. Álið úr kerinu lak í lagnastokka sem eru í kringum kerin. 11.8.2006 05:15
Húsvagnar sífellt vinsælli „Það er alltaf selt meira af húsvögnum en árið áður,“ segir Gunnlaugur Ingibergsson hjá Seglagerðinni Ægi, sem selja tjaldvagna, fellihýsi, pallhýsi, hjólhýsi og húsbíla. „Hjólhýsin hafa verið sérstaklega vinsæl, en áður fyrr voru þetta bara tjaldvagnar og fellihýsi. Við erum bara með samkomutjöld til leigu en seljum engin tjöld. Við hættum því vegna minnkandi eftirspurnar.“ 11.8.2006 05:00
Hundakjöt fyrir húðina Hundakjöt verður sífellt vinsælla meðal norður-kóreskra kvenna, en þessi kóreski þjóðarréttur er talinn vera góður fyrir húðina. Bæði í Suður- og Norður-Kóreu er hundakjöt sagt gott fyrir úthald og auka hreysti og er vinsælt á heitum sumardögum. 11.8.2006 05:00
Styrkir uppgröft á Hólum Sveitarfélagið Skagafjörður hefur ákveðið að styrkja uppgröft á Hólum í Hjaltadal næstu þrjú árin. Uppgröftur hefur staðið yfir á Hólum í sumar, en þetta er fimmta sumarið sem grafið er þar. Uppgröfturinn hefur fram til þessa verið unnin með styrk frá Kristnihátíðarsjóði. 11.8.2006 04:30
Sjófuglum fækkar Sjófuglum hefur fækkað umtalsvert á Norður-Atlantshafi og hvetja Landvernd og norræn systursamtök Norðurlandaráð til að finna orsakir fækkunarinnar og koma með tillögur til úrbóta. 11.8.2006 04:00
Óbreyttum neitað um hjálp ekki samkomulag í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í gær um orðalag ályktunar sem ætlað er að stuðla að vopnahléi milli Ísraels og Hizbollah-samtakanna í Líbanon. Þó vonast fastafulltrúi Bandaríkjanna, John Bolton, til þess að ályktunin verði samþykkt í dag. 11.8.2006 04:00
Vladimír Pútín sker upp herör Vladimír Pútín, forseti Rússlands, skipaði ríkisstjórn sinni í gær að láta gera eignaskrá yfir öll þau verk sem listasöfn landsins hafa að geyma. Fyrirskipunin kom í kjölfar þess að upp komst um stórfelldan þjófnað úr safni í Pétursborg, en talið er að 221 listaverki, samtals metin á um 360 milljónir króna, hafi verið stolið á síðustu árum. 11.8.2006 04:00
Upplýsingarnar eru á átta tungumálum Reykjavíkurborg hefur nú gefið út upplýsingaefni á átta tungumálum um leikskóla og tvítyngi barna á leikskólasviði. Bæklingunum, sem eru tvenns konar, er ætlað að mæta vaxandi þörf fyrir upplýsingum meðal erlendra foreldra leikskólabarna, en börn af erlendum uppruna í leikskólum Reykjavíkur eru um tíu prósent leikskólabarna í borginni. 11.8.2006 03:30
Amnesty International skorar á stjórnvöld Íslandsdeild Amnesty International skorar á íslensk stjórnvöld að beita sér fyrir því að að Sameinuðu þjóðirnar sendi tafarlaust friðargæslulið til Darfur í Súdan. 10.8.2006 23:08
Ætluðu að granda 10 flugvélum Hryðjuverkamennirnir sem bresk yfirvöld stöðvuðu í dag, höfðu ráðgert að granda 10 flugvélum sem áttu að fljúga frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Frá þessu greindi bandaríska leyniþjónustan í kvöld. 10.8.2006 22:14
Brasilískir þingmenn kærðir fyrir fjárdrátt af almannafé Rannsóknarnefnd á vegum brasilíska þjóðþingsins hefur kært 72 þingmenn um að hafa dregið sér fé úr sjóðum heilbrigðiskerfisins og mælir nefndin með því að þingmennirnir verði sóttir til saka fyrir meint brot sín. Mikill meirihluti þingmannanna, eða 63 af 72, tilheyra stjórnarflokkunum sem styðja forsetann Luiz Lula da Silva að málum. 10.8.2006 20:30
Skorar á yfirvöld að lengja kennaranám Formaður Kennarasambands Íslands skorar á yfirvöld að lengja kennaranám til samræmis við nágrannalöndin til þess að bæta námsárangur í íslenskum skólum. Þá segir hann samfélagið í heild þurfa að taka á óstýrilæti og agaleysi til þess að ná sömu markmiðum. 10.8.2006 19:45
Ríkisskattstjóri kominn út fyrir sitt valdsvið Ríkisskattsjóri er kominn út fyrir valdsvið sitt þegar hann gefur í skyn að fjármálafyrirtæki hér á landi veiti ráðgjöf um skattsvik. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja. 10.8.2006 19:17
Ber við vanþekkingu og fákunnáttu Vanþekking og fákunnátta sjávarútvegsráðherra á veiðireglum leiðir líklega til þess að hann á yfir höfði sér kæru fyrir ólöglegar lundaveiðar fyrr í sumar. Ráðherra segir leiðinlegt að hann hafi ekki farið að reglum og hyggst skýra mál sitt fyrir Umhverfisstofnun. 10.8.2006 18:54
Koma í veg fyrir að lífum sé bjargað Yfirmaður Neyðarhjálpar Sameinuðu þjóðanna segir Ísrelum og skæruliðum Hizbollah í lófa lagið að aðstoða hjálparsamtök við að koma hjálpargögnum til nauðstaddra í Suður Líbanon. Það geri þeir hins vegar ekki og komi þar með í veg fyrir að lífi fólks verði bjargað 10.8.2006 17:55
21 maður í haldi Bresk stjórnvöld hafa 21 mann í haldi sínu sem grunaðir eru um að hafa ætlað að fremja stórfelld hryðjuverk í allt að tíu flugvélum sem fljúga áttu til Bandaríkjanna. 10.8.2006 17:43
Siv ætlar í formannsslaginn Siv Friðleifsdóttir hefur ákveðið að taka slaginn við Jón Sigurðsson um formannsembættið í Framsóknarflokknum. 10.8.2006 17:31
Vörubíll valt í Kömbunum Vörubíll frá Vegagerðinni valt í Kömbunum ofan við Hveragerði um klukkan þrjú í dag. Vörubíllinn var við vinnu í vegkanti sem gaf sig svo að bíllinn valt. Engan sakaði. 10.8.2006 16:14
Barnabætur hækkuðu um 19% Við álagningu ríkisskattstjóra á einstaklinga kom fram að barnabætur vegna ársins 2005 hækkuðu um 19% frá fyrra ári. Þetta kemur fram á vef fjármálaráðuneytisins. Í ár á að úthluta tæpum 6 milljörðum króna til 55.500 framteljenda 10.8.2006 15:31
Flugvél Icelandair komin í loftið Flugvélum Icelandair hefur verið veitt leyfi til flugs til Bretlands. Fyrsta vélin fór í loftið rétt fyrir klukkan þrjú. Næsta flug er svo áætlað klukkan 16:10. Búist er við að flugumferð komist fljótlega í rétt form. 10.8.2006 15:09
Og vodafone eflir GSM þjónustu á svæðinu Og Vodafone hefur eflt GSM þjónustu sína í Dalvík fyrir fjölskylduhátíðina Fiskidaginn mikla sem fer fram um næstu helgi. Markmiðið er að tryggja hnökralaus samskipti hjá GSM notendum þar sem gera má ráð fyrir fjölda gesta á svæðinu yfir helgina. Um 30 þúsund manns lögðu leið sína á hátíðina í fyrra. 10.8.2006 13:23
Glóandi skúlptúr í byggingu Jörgen Hansen, danskur leirlistamaður stendur nú í stórræðum nærri Norrænahúsinu en hann er að byggja glóandi leirskúlptúr. Skúlptúrinn, sem á að byggjast á fjórtán dögum, á að verða þriggja metra hár og mun vega fjögur tonn. 10.8.2006 13:00