Fleiri fréttir

Brottfluttir mæti hjá KFUM

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur boðað íbúa sem þurftu að rýma hús sín vegna brunans við Klettagarða, í húsnæði KFUM við Holtaveg klukkan 08:00 til skráningar og til að fá upplýsingar um ástand og öryggi húsnæðis þeirra.

Hafa ekki fengið að snúa heim

Hátt í 600 manns, sem þurftu að yfirgefa heimili sín í skyndingu í gærkvöldi af ótta við eitraðan reyk frá stórbruna við Sundahöfn, hafa ekki enn fengið að snúa til síns heima og er óvíst hvenær það verður. Fulltrúar heilbrigðisyfirvalda, lögreglu og tryggingafélaga munu meta það þegar líður á daginn. <strong><a href="http://www.visir.is/?pageid=569" target="_blank"><font color="#000080">Myndir frá eldsvoðanum</font></a></strong>

Enn mótmælt í Úkraínu

Þúsundir mótmælenda létu kulda ekki á sig fá og héldu áfram mótmælum gegn meintum kosningasvikum og fölskum niðurstöðum í forsetakosningum í Úkraínu í nótt. Á meðal mótmælendanna gengu sögusagnir þess efnis, að öryggissveitir hygðust leggja til atlögu við þá og ryðja þeim burt, en engar fregnir hafa borist af því.

Starfsmönnum SÞ sleppt

Þremur starfsmönnum Sameinuðu Þjóðanna í Afghanistan, sem rænt var í síðasta mánuði, hefur verið sleppt. Eftir þrjár vikur í haldi mannræningja er fólkið nú á heimleið að lokinni læknisrannsókn. Afgönsk yfirvöld töldu glæpamenn hafa rænt fólkinu og að þeir krefðust lausnargjalds, en ekki er ljóst á þessari stundu hvernig það kom til að fólkinu var sleppt.

Vonast eftir friði fyrir árslok

Vonir standa til að samkomulag takist um frið í Darfur-héraði í Súdan fyrir lok árs. Utanríkisráðherra Súdans segir það markmiðið. Friðarviðræður standa nú í Abuja í Nígeríu. Flytja varð þrjátíu breska hjálparstarfsmenn á brott í skyndingu í gær, eftir að bardagar brutust út í þorpinu sem þeir störfuðu í.

Man ekki eftir morðinu

Héraðsdómur Reykjavíkur þingfesti í gær mál gegn Hildi Árdísi Sigurðardóttur sem ákærð er fyrir að hafa banað dóttur í Vesturbænum í sumar. Hildur Árdís segist ekki muna eftir morðinu.

Harma óþægindin

Hringrás ehf. harmar þau óþægindi og röskun sem nágrannar fyrirtækisins, bæði fyrirtæki og einstklingar hafa orðið fyrir vegna brunans sem varð í gærkvöldi og í nótt í Aðalstöðvum félagsins við Klettagarða. Í yfirlýsingu frá Hringrás segir að félagið sé að miklu leyti tryggt fyrir því mikla tjóni sem það hafi orðið fyrir í nótt.

Yfir 80 manns hjá Rauða Krossinum

Yfir 80 manns gistu í húsnæði á vegum Rauða krossins í nótt. Þar af gistu 57 í Langholtsskóla, 18 í Gesthúsi Dúnu og 8 í Konukoti, sem er nýopnað athvarf Rauða krossins fyrir heimilislausar konur. Um tvö hundruð manns leitaði í fjöldahjálparstöð Rauða krossins í Langholtsskóla í nótt eftir að íbúðir við Kleppsveg voru rýmdar.

Tók fjóra mánuði að svara bréfi

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur gert alvarlegar athugasemdir við starfsemi Hringrásar og bent á þá almannahættu sem gæti skapast kviknaði í háum dekkjahaug. Forsvarsmenn fyrirtækisins segjast hafa verið að vinna í málinu með forvarnadeild slökkviliðsins en það tók þá samt tæpa fjóra mánuði að svara bréfi þar sem slökkviliðsmenn bentu á hættuna.

Enn engin starfsemi í nágrenninu

Enn hefur engum verið hleypt til starfa hjá fyrirtækjum í grennd við brunastaðinn, enda er óttast að víða sé enn töluvert magn eiturefna í loftinu. Ljóst er að skemmdir af völdum reyks og sóts eru töluverðar.

Vill ekki tjá sig

Steinunn Valdís Óskarsdóttir vildi í hádegisfréttum ekki tjá sig um það hvað henni þætti sem íbúa í nágrenni aðalstöðva Hringrásar ehf. um að búa nálægt þeirri starfsemi sem þar færi fram. Hún sagðist eiga eftir að skoða það betur.

Búið að opna leikskóla

Leikskólarnir Laugaborg og Lækjaborg voru opnaðir klukkan eitt eftir hádegi, en engin starfsemi fór fram á leikskólunum í morgun vegna brunans við Klettsgarða

ASÍ tjáir sig ekki

Alþýðusamband Íslands hefur ákveðið að tjá sig ekki um skattabreytingar ríkisstjórnarinnar fyrr en eftir miðstjórnarfund í dag

Tjónið fellur undir brunatryggingu

Samband íslenskra tryggingafélaga sendi nú fyrir hádegi frá sér yfirlýsingu þar sem segir meðal annars að hugsanlegt tjón af völdum sóts og reyks á íbúðarhúsnæði, sem rakið verði til eldsvoðans hjá Hringrás hf., falli undir lögboðna brunatryggingu íbúðareigandans.

Viðvaranir hundsaðar

Eldvarnareftirlitið hafði gert athugasemdir við mikinn dekkjahaug á athafnasvæði Hringrásar og talið að af honum stafaði eldhætta. Eftirlitið skrifaði harðort bréf í júní og krafðist þess að dekkjahaugurinn yrði fjarlægður. Það kom fram í bréfinu að ef kviknaði í gæti þurft að rýma íbúða- og atvinnuhúsnæði á stóru svæði, eins og raun varð svo á.

Enn að störfum

Slökkviliðsmenn eru enn að störfum á athafnasvæði Hringrásar í Sundahöfn. Lögreglan ræður íbúum húsa að snúa ekki til baka í íbúðir sínar að svo stöddu. Þá ítrekaði Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur viðvörun sína til íbúa vegna mengunar í húsunum. Þá segir að íbúum, starfsfólki fyrirtækja eða öðrum þeim sem voru í nágrenni brunans við Hringrás og finna fyrir við ertingu eða óþægindum í öndunarfærum sé bent á að leita læknis. Síðbúin einkenni allt að þremur dögum eftir að fólk hafi orðið fyrir reykjarmengun séu hugsanleg.<font size="4"></font>

Neyðarfundur í Úkraínu

Nú stendur yfir neyðarfundur á úkraínska þinginu, sem boðað var til vegna forsetakosninganna sem fóru fram á sunnudaginn. Talsmaður þingsins sagði að það væri ósiðlegt af þingmönnum að láta eins og allt væri með felldu í landinu og sjálfstæðis þess vegna væri algerlega lífsnauðsynlegt að kryfja framkvæmd kosninganna til mergjar.

SÞ rannsaka misnotkun

Sameinuðu Þjóðirnar hafa sett af stað rannsókn vegna meintra ásakana á hendur starfsmönnum stofnunarinnar í Kongó. Alls hafa borist yfir 150 ásakanir vegna meintra nauðgana, vændissölu og barnamisnotkun á flóttamönnum í herbúðum Sameinuðu Þjóðanna í Kongó. Sum atvikin hafa verið tekin upp á myndband, eða náðst á ljósmynd.

Erfitt að hafna fólki í neyð

Starfsmenn sem taka á móti áfengissjúkum á Vogi kvíða því að þurfa að vísa fólki í neyð frá og senda það annað. Nú fer í hönd einn mesti álagstími á sjúkrahúsinu, sem hefst skömmu fyrir jól og skellur af fullum þunga á eftir áramót. </font /></b />

Rannsókn á líðan lækna

Hleypt hefur verið af stokkunum rannsókn á heilsu, lífsstíl og starfsskilyrðum lækna á Íslandi. Allir læknar á Íslandi með gilt lækningaleyfi þann 30. júní á þessu ári og búsettir eru hér á landi, alls 1.185 læknar, hafa fengið sent boð um þátttöku.

Stóð til að sprengja upp turna

Öryggisyfirvöld í Bretlandi segja að staðið hafi til að gera hryðjuverk á Canary-turnana í London, en komið hafi verið í veg fyrir það. Dagblaðið Daily Mail greinir frá því í dag að hryðjuverkamenn tengdir Al-Qaeda samtökunum hafi ætlað sér að granda flugvélum á turnunum þremur með svipuðum hætti og gert var við tvíburaturnana í New York.

Stjórnmálasamband við Tógó

Ísland hefur tekið upp stjórnmálasamband við V-Afríkurríkið Tógó, þar sem búa um fimm milljónir manna. Yfirlýsing um þetta var undirrituð í New York á föstudag. Ríkið liggur milli Gana og Benín og á landamæri við Búrkína Fasó í norðri. Strandlengja Togo í suðri við Benín flóa er um eitthundrað kílómetrar og nefnist Þrælaströndin.

Heilbrigðiseftirlitið skoðar málin

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vinnur sem stendur að rannsóknum bæði á skrifstofum fyrirtækja og á heimilum í nágrenni við Klettagarða, þar sem eldur kom upp í nótt, til að kanna magn eiturefna í loftinu. Í kjölfarið verða gefnar út leiðbeiningar til almennings og ákveðið hvort og þá hvenær fólki verður leyft að halda heim eða til vinnu á ný.

8 í nýju athvarfi

8 manns af þeim 83, sem gistu á vegum Rauða Krossins í nótt vegna brunans í Sundahöfn fengu inni í nýju næturathvarfi sem hefur verið opnað fyrir heimilislausar konur í Reykjavík. Athvarfið nefnist Konukot og er starfrækt í Eskihlíð 4. Þörfin fyrir slíka starfsemi er brýn, samanber skýrslu sem Rauði Krossinn lét vinna í fyrra.

29 umsóknir

29 sóttu um fjögur laus störf í yfirstjórn Reykjavíkurborgar en þar hafa staðið fyrir dyrum miklar skipulagsbreytingar. Meðal umsækjenda um stöðu sviðsstjóra á framkvæmdasviði er Hrólfur Jónsson slökkviliðsstjóri. Meðal annarra umsækjenda eru: Garðar Lárusson, sem hefur starfað við Friðargæslu í Afganistan.

Yfirdráttarlán á niðurleið

Yfirdráttarlán heimilanna hafa minnkað eftir að bankarnir fóru að bjóða íbúðalán í ágúst síðastliðnum. Yfirdráttarlánin voru 60,5 milljarðar í ágúst, þegar bankarnir hófu að bjóða verðtryggð íbúðarlán, en voru komin í 57,8 í lok október. Á sama tíma hafa verðtryggð útlán bankanna til heimilanna aukist úr 93 milljörðum í 129,8 milljarða.

Samningur upp á 11 milljarða

Atlanta hefur nýverið gert samninga að verðmæti um ellefu milljarða króna um fraktflug á Boeing 747 vélum félagsins. Hluti af þessum samningum er framlenging á eldri samningum en annað er hrein viðbót. Þetta sannar traust samstarfsaðila á félaginu segir Magnús Stephensen framkvæmdastjóri hjá móðurfélaginu Avion Group.

Borgi 7,5 milljónir í bætur

Auður Laxness hefur stefnt Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni fyrir ritstuld og krefst samtals sjö og hálfrar milljóna króna bóta.

29 sækja um sviðsstjórastöður

Átta hafa sótt um starf sviðsstjóra á menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar. Störf fjögurra sviðsstjóra hjá Reykjavíkurborg voru nýlega auglýst laus til umsóknar og bárust samtals 29 umsóknir.

Tólf umsóknir á rekstrarsviði

Tólf umsækjendur eru um starf sviðsstjóra þjónustu- og rekstrarsviðs Reykjavíkurborgar en umsóknarfrestur rann út í byrjun vikunnar.

Anna er eini umsækjandinn

Aðeins einn umsækjandi er um starf sviðsstjóra fjármálasviðs hjá Reykjavíkurborg. </font />

Snúa aftur heim

Íbúar allra húsa sem rýmd voru í gær vegna brunans í Sundahöfn hafa nú fengið að snúa heim aftur. Í athugun er að reykræsta örfáa stigaganga við Kleppsveg en það á ekki að þurfa að hindra íbúa þeirra húsa í að snúa aftur að sögn lögreglu.

Fylgja Íbúðalánasjóði

KB banki hefur ákveðið að lækka fasta vexti sína á KB íbúðalánum í 4,15% frá og með deginum í dag. Áður hafði Íbúðalánasjóður lækkað sína vexti. Samhliða þessari vaxalækkun verður gerð sú breyting á skilmálum íbúðarlána hjá KB-banka að þegar tekið er 100% lán að fimmtungur lánsfjárhæðarinnar verði að hámarki lánaður til fimmtán ára.

Hannesi Hólmsteini stefnt

Auður Laxness, ekkja Halldórs Kiljans Laxness, hefur stefnt Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor fyrir að hafa brotið á höfundarrétti Halldórs með "ítrekuðum og grófum hætti" í fyrsta bindi ævisögu skáldsins sem kom út í fyrra. <font face="Helv"></font></font />

Bjartsýni í Palestínu

Bjartsýni og trú á að hægt sé að koma á varanlegum friði fyrir botni Miðjarðahafs virðist ríkja meðal palestínskra og ísraelskra embættismanna að mati forystumanna East-West Institute. Þetta kom fram á umræðufundi með John Mroz, forseta stofnunarinnar og Mathias Mossberg, sendiherra í Lögbergi í gær.

Aukið hungur kemur ekki á óvart

Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir skýrslu um aukna vannæringu íraskra barna ekki koma á óvart. Hann telur ástand í landinu þó betra en áður en ráðist var inn. Þingflokksformaður Vinstri grænna segir niðurstöðurnar skelfilegar

Bílhræ í trollið

Áhöfninni á norska togaranum Kongstein brá í brún þegar hún fékk heldur óvæntan afla í trollið nefnilega gamalt bílhræ sem menn telja að hafi verið af Peugeot gerð. Skipstjórinn sagði í samtali við Verdens Gang í Noregi að þetta væri í fyrsti aflinn af þessari tegund á tuttugu og níu ára sjómannsferli.

Hætt við skammtímasamning

Samninganefnd Félags Leikskólakennara hefur hætt við að óska eftir skammtímakjarasamningi í ljósi þess hvernig mál hafa þróast í samningamálum grunnskólakennara. Viðræðum verður vísað til ríkissáttasemjara á föstudag nema um annað verði samið.

Vextir í 4,15% hjá bönkunum

KB banki og Íslandsbanki tilkynntu nú síðdegis að þeir hefðu ákveðið að lækka vexti á íbúðalánum úr 4,2 prósentum niður í 4,15% og hefur vaxtalækkunin þegar tekið gildi. Bankarnir svara þannig vaxtalækkun Íbúðalánasjóðs sem tilkynnt var í gær.

Áfrýja til EFTA

Samtök banka og verðbréfafyrirtækja hafa áfrýjað til EFTA-dómstólsins þeirri niðurstöðu Eftirlitsstofnunar EFTA frá því sumar að starfsemi Íbúðalánasjóðs stæðist samkeppnisreglur. Samtökin telja að þessi þátttaka ríkisins á lánamarkaði brjóti gegn EES-samningnum.

Brunaeftirlitið vildi dekkin burt

Eldvarnareftirlitið var búið að koma auga á þá hættu sem almenningi gæti stafað að dekkjahaug sem brann á starfssvæði Hringrásar í fyrrinótt. Það skrifaði þess vegna eigendum Hringrásar harðort bréf í júní þar sem bent var á hættuna og krafist greinargerðar um hvað fyrirtækið hygðist gera til úrbóta.

Hundruð þúsunda mótmæla

Hundruð þúsunda mótmæla enn kosningasvikum í Úkraínu. Þing landsins kom saman til neyðarfundar í dag til að ræða vandann, og mótmælendurnir óttast aðgerðir öryggissveita. Tugir þúsunda stuðningsmanna stjórnarandstöðuframbjóðandans Viktors Yuschenkos létu frostkalda nóttina ekki stöðva sig og héldu áfram mótmælum á aðaltorginu í Kænugarði.

Sjá næstu 50 fréttir