Tók fjóra mánuði að svara bréfi 13. október 2005 15:02
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur gert alvarlegar athugasemdir við starfsemi Hringrásar og bent á þá almannahættu sem gæti skapast kviknaði í háum dekkjahaug. Forsvarsmenn fyrirtækisins segjast hafa verið að vinna í málinu með forvarnadeild slökkviliðsins en það tók þá samt tæpa fjóra mánuði að svara bréfi þar sem slökkviliðsmenn bentu á hættuna. Einar Ásgeirsson framkvæmdastjóri Hringrásar sendi fjölmiðlum yfirlýsingu vegna brunans fyrir skömmu. Þar segir hann félagið harma þann hörmulega eldsvoða sem varð á athafnasvæði félagsins við Klettagarða. Félagið hafi orðið fyrir miklu tjóni sem það var að mestu leyti tryggt fyrir. Þá vilja forráðamenn félagsins koma á framfæri sérstöku þakklæti til slökkviliðs og lögreglu og annarra sem unnu frábært starf við að ráða niðurlögum eldsins. Félagið harmar einnig þau óþægindi og röskun sem nágrannar bæði fyrirtæki og einstaklingar hafa orðið fyrir vegna brunans. Unnið verði að því að hreinsa svæðið um leið og slökkvistarfi ljúki. Í samtali við fréttastofu bætti Einar framkvæmdastjóri Hringrásar því við að fyrirtækið hefði unnið með forvarnardeild slökkviliðsins að því að bæta úr málum. Að öðru leyti var hann ekki tilbúinn að tjá sig um þær athugasemdir sem gerðar voru við starfsemi fyrirtækisins. Einar sagði fyrirtækið hafa starfsleyfi enda starfsleyfisskyld starfsemi. Þegar hann var spurður hvenær starfsleyfið rynni út sagðist hann hins vegar ekki vita það og ekki geta komist að því fyrir hádegi. Fréttastofan hefur ákveðnar heimildir fyrir því að starfsleyfi fyrirtækisins hafi runnið út í síðasta mánuði en hefur ekki fengið það staðfest hjá Umhverfisstofu og er því að sjálfssögðu mögulegt að leyfið hafi verið endurnýjað. Íslandstrygging er tryggingarfélag Hringrásar og segir Einar Baldvinsson framkvæmdastjóri Hringrás vel tryggða.
Fréttir Innlent Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira