„Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Lovísa Arnardóttir skrifar 25. september 2026 13:50 Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ og formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, lagði tillöguna fram. Aðsend Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti í dag ályktun um að sveitarfélög sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagsmála og taki virkan þátt í að bæta stöðuna. Ályktunin var lögð fram af formanni sambandsins, Almari Guðmundssyni.
Landsþingið lýsir í ályktuninni yfir vilja til lækkunar verðbólgu og vaxta með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5 prósenta á árinu 2027. „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi og ríkisvaldið og stofnanir í eigu þess taki þátt í sameiginlegu átaki og takmarki með sambærilegum hætti hækkanir á gjaldskrám og álögum sem hafa bein áhrif á heimilin. Með því leggja allir sitt af mörkum við að skapa sátt í samfélaginu,“ segir í ályktuninni. Þar segir að með samþykkt þessarar ályktunar lýsi sveitarfélög landsins yfir vilja til að leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn verðbólgu og stuðla að auknum stöðugleika í íslensku efnahagslífi. Landsþingið telur að núverandi aðstæður kalli á sameiginlega ábyrgð allra helstu aðila samfélagsins og samstillt viðbrögð til að ná tökum á verðbólgu og háum vöxtum. Í ályktuninni er einnig fjallað um samskipti ríkis og sveitarfélaga og mikilvægi þess að það ríki traust og gagnkvæmur skilningur í samskiptum ríkis og sveitarfélaga. „Í langan tíma hefur á þetta skort og gildir þá einu hvaða flokkar sitja í ríkisstjórn hverju sinni. Sveitarfélögum er ítrekað gert að taka á sig nýjar skyldur og bera aukinn kostnað vegna breyttrar löggjafar og stefnumörkunar ríkisins án þess að fullnægjandi fjármögnun fylgi. Sveitarfélög sitja uppi með fjárhagslegar skuldbindingar sem þau hafa takmarkaða möguleika á að mæta og dæmi eru um að ekki sé staðið við einstaka samninga,“ segir í ályktuninni. Þar er gerð sú krafa til bæði Alþingis og ríkisstjórnar að breytingar verði á áralöngum samskiptavanda ríkis og sveitarfélaga. „Sveitarfélögin eiga ekki að vera síðasti hlekkurinn í keðjunni þegar ríkisvaldið tekur stefnumarkandi ákvarðanir, setur ný lög eða reglugerðir án fullnægjandi kostnaðarmats, heldur þarf að tryggja virkt samstarf og fulla fjármögnun.
Sveitarstjórnarmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Fjárlagafrumvarp 2027 Verðlag Fjármál heimilisins Kjaramál Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira