Sport

„Hag­ræddi sann­leikanum um heilsu Mortensen fyrir leik“

Andri Már Eggertsson skrifar
Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, var ánægður með sigurinn
Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, var ánægður með sigurinn Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Grindavík vann ótrúlegan sigur gegn Njarðvík 104-103 eftir framlengdan leik. Jóhanni Þór Ólafssyni, þjálfari Grindavíkur, var létt eftir leik. 

„Við hittum í körfuna og þetta hefði geta farið öðru hvoru megin en við gerðum síðustu tvö stigin og það stendur upp úr,“ sagði Jóhann Þór og hélt áfram.

„Njarðvík spilaði vel í seinni hálfleik og gerði 27 stig í þriðja leikhluta og við vorum í vandræðum með Makye Richard. Við tökum tvö stig en svo er margt sem við þurfum að laga.“

Daniel Mortensen, leikmaður Grindavíkur, spilaði sinn fyrsta leik á tímabilinu í kvöld. Mortensen fór á kostum og endaði með 26 stig. Jóhann sagði fyrir leik í viðtali að það væri óvíst hvort hann myndi taka þátt í leiknum.

„Hann er búinn að hlakka mikið til að fá að byrja. Ég var aðeins að hagræða sannleikanum þegar ég talaði við þig fyrir leik. Hann stóð sig vel og vonandi er hann kominn til að vera og okkur veitir ekki af því. Við þurfum að nýta vikuna vel í að slípa okkur saman og þetta var góður sigur,“ sagði Jóhann Þór að lokum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×