Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Kristján Már Unnarsson skrifar 29. október 2026 21:43 Akureyrarflugvelli í dag. Steinunn María Sveinsdóttir safnstjóri, lengst til vinstri, undirritar viljayfirlýsinguna fyrir hönd Flugsafns Íslands. Einnig skrifuðu undir þeir Ágúst Sigurðsson, forstjóri Lands og skógar, Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Sveinn Runólfsson, formaður Þristasjóðs og fyrrverandi landgræðslustjóri, og Tómas Dagur Helgason, formaður Þristavinafélagsins. Flugsafn Íslands/Hörður Geirsson Stjórn Þristasjóðs, Flugsafn Íslands og DC-3 Þristavinafélagið hafa komist að samkomulagi um að eignarhald flugvélarinnar TF-NPK, eða Þristsins Páls Sveinssonar, færist til Flugsafns Íslands á Akureyri og til framtíðarvarðveislu. Viljayfirlýsing þess efnis var undirrituð í Flugsafninu á Akureyrarflugvelli í dag.
Samkvæmt yfirlýsingunni er stefnt að því að yfirfærslu Þristsins til safnsins verði lokið fyrir lok þessa árs. Aðilar lýsa sig sammála um mikilvægi þess að tryggja að flugvélin verði áfram varðveitt sem einstakur gripur í íslenskri flugsögu og verði aðgengileg almenningi í faglegri vörslu. Þristurinn skipi stóran sess í flugsögu Íslands og hafi hátt sýninga- og varðveislugildi. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, flytur ávarp við athöfnina í dag.Flugsafn Íslands/Hörður Geirsson Flugvélin kom ný til landsins árið 1943 á vegum Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli. Flugfélag Íslands keypti vélina árið 1946 og fékk hún þá nafnið Gljáfaxi. Hún var fyrsta stóra flugvél í eigu Íslendinga og var notuð í innanlandsflugi, sem og flugi til Grænlands og Norðurlanda. Árið 1972 ákvað Flugfélagið að gefa Landgræðslu ríkisins flugvélina til landgræðslustarfa og fékk hún nafnið Páll Sveinsson. Landgræðslan var skráður eigandi vélarinnar frá árinu 1973 en notkun hennar við landgræðslustörf var hætt 2006. Þristavinafélagið var stofnað árið 2005 og hefur það haft umsjá með Þristinum frá þeim tíma. Flugvélin hefur verið hýst í Flugsafni Íslands á Akureyri frá árinu 2008 á grunni hýsingarsamnings milli Þristavinafélagsins og safnsins. Eignarhald vélarinnar færðist árið 2011 yfir á Þristasjóðinn, sem gagngert var stofnaður um eignarhald og varðveislu Þristsins. Afnota- og lánssamningur var sama ár gerður um vélina á milli Þristasjóðs og Þristavinafélagsins. „Í ljósi þess að vélinni hefur ekki verið flogið frá árinu 2019 og er nú fyrst og fremst safngripur á jörðu niðri, er sameiginlegur ásetningur aðilanna að leggja Þristasjóð formlega niður og færa eignarhald og ábyrgð á flugvélinni til Flugsafns Íslands,“ segir í yfirlýsingunni. Hér má sjá hana á flugi sumarið 2017: „Flugsafn Íslands og Þristavinafélagið kanni áframhaldandi aðkomu félagsins að varðveislu Þristsins sem faglegur stuðnings- og hollvinaaðili,“ segir ennfremur. Ríkisstofnunin Land og skógur þarf að samþykkja eignatilfærsluna þar sem gildandi skipulagsskrá kveður á um að vélin skuli ganga til Landgræðslu ríkisins við slit Þristasjóðs. Þá gæti þurft að afla heimildar Alþingis í fjáraukalögum fyrir ráðstöfun vélarinnar. Frá athöfninni í Flugsafninu á Akureyrarflugvelli í dag. Um fimmtíu gestir voru viðstaddir.Flugsafn Íslands/Hörður Geirsson Yfirlýsinguna undirrituðu Sveinn Runólfsson, formaður stjórnar Þristasjóðs, Steinunn María Sveinsdóttir, safnstjóri Flugsafns Íslands, Tómas Dagur Helgason, formaður stjórnar Þristavinafélagsins, Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Ágúst Sigurðsson, forstjóri Lands og skógar.
Flug Söfn Akureyrarflugvöllur Skógrækt og landgræðsla Icelandair Tengdar fréttir Fjölgun safngripa kallar á stækkun Flugsafnsins Nýir og fyrirferðarmiklir safngripir eins og þyrlur og flugvélaskrokkar kalla á stækkun Flugsafns Íslands á Akureyri. Safnið er það eina viðurkennda hér á landi sem hefur það meginhlutverk að varðveita íslenska flugsögu. 27. apríl 2025 22:22 Halda upp á afmæli fyrstu stóru flugvélar Íslendinga Íslenskir flugáhugamenn undirbúa núna afmælisveislu fyrir flugvél. Ein ástsælasta flugvél landsins varð nefnilega áttræð í gær og verður tímamótunum fagnað í Flugsafni Íslands á Akureyri um næstu helgi. 2. október 2023 21:33 Flugáhugamenn elska meira að segja hljóðið í þristunum Samflugið var alveg geggjað og einstakur viðburður, segir formaður Þristavinafélagsins, um stefnumót Páls Sveinssonar og Breitling-þristsins. 30. ágúst 2017 14:15 Páll komst loksins á stefnumót í kvöld Íslenskir þristavinir glöddust innilega þegar Páll Sveinsson lenti á Reykjavíkurflugvelli laust upp úr klukkan sjö í kvöld. Fara þarf áratugi aftur í tímann til að finna dæmi um svo marga þrista samtímis á flugvellinum. 23. maí 2019 22:45 Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fleiri fréttir Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Sjá meira
Fjölgun safngripa kallar á stækkun Flugsafnsins Nýir og fyrirferðarmiklir safngripir eins og þyrlur og flugvélaskrokkar kalla á stækkun Flugsafns Íslands á Akureyri. Safnið er það eina viðurkennda hér á landi sem hefur það meginhlutverk að varðveita íslenska flugsögu. 27. apríl 2025 22:22
Halda upp á afmæli fyrstu stóru flugvélar Íslendinga Íslenskir flugáhugamenn undirbúa núna afmælisveislu fyrir flugvél. Ein ástsælasta flugvél landsins varð nefnilega áttræð í gær og verður tímamótunum fagnað í Flugsafni Íslands á Akureyri um næstu helgi. 2. október 2023 21:33
Flugáhugamenn elska meira að segja hljóðið í þristunum Samflugið var alveg geggjað og einstakur viðburður, segir formaður Þristavinafélagsins, um stefnumót Páls Sveinssonar og Breitling-þristsins. 30. ágúst 2017 14:15
Páll komst loksins á stefnumót í kvöld Íslenskir þristavinir glöddust innilega þegar Páll Sveinsson lenti á Reykjavíkurflugvelli laust upp úr klukkan sjö í kvöld. Fara þarf áratugi aftur í tímann til að finna dæmi um svo marga þrista samtímis á flugvellinum. 23. maí 2019 22:45