Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Kjartan Kjartansson skrifar 28. október 2026 09:07 Lestarvagnar þeyttust út af sporinu og niður kant þegar hraðlest ók aftan á aðra í Toledo á Spáni í morgun. Óttast er að margir hafi farist. Vísir/EPA Tvær hraðlestir rákust á í Toledo á Mið-Spáni í morgun. Að minnsta kosti 64 eru sagðir látnir en talið er að tala látinna muni hækka. Hundruð farþega voru í lestunum tveimur.
Áreksturinn átti sér stað nærri bænum Urda í Toledo-héraði skömmu eftir klukkan níu að staðartíma í morgun. Báðar lestir voru á leið frá höfuðborginni Madrid suður til Sevilla í Andalúsíu. Talskona sjálfsstjórnarhéraðsins Castilla-La Mancha segir að 397 manns hafi verið í lest ríkislestarfélagsins RENFE en 147 í hinni sem var á vegum IRYO, einkarekins fyrirtækis. Staðfest er að þrjátíu manns hafi farist en nær öruggt er að sú tala muni hækka samkvæmt upplýsingum yfirvalda í Castilla-La Mancha. Spænska blaðið ABC fullyrðir að á fimmta tug sé látinn. Mónica García, heilbrigðisráðherra Spánar, segir viðbragðsaðila einbeita sér að því að finna fólk í braki vegnanna sem urðu fyrir mestum skemmdum. Áreksturinn hafi orðið á miklum hraða og því megi reikna með „harmleik“. Spænska ríkisútvarpið segir að báðar lestir hafi verið á sömu leið en RENFE-lestinni hafi verið ekið aftan á lest Iryo þar sem hún var kyrrstæð við lestarstöðina í Urda. Við þetta hafi tveir öfustu vagnar Iryo-lestarinnar oltið út af sporinu. Ekki hafi náðst samband við stjórnanda RENFE-lestarinnar. Mynd spænska þjóðvarðarins frá slysstað. Þyrlur, sjúkrabílar og færanlegar bráðamóttökur voru sendar á staðinn til þess að hlúa að slösuðum.Vísir/EPA ABC hefur eftir heimildum sínum innan samgönguráðuneytisins að orsök slyssins hafi verið mannleg mistök starfsmanns ríkislestarsfélagsins RENFE að láta ekki stjórnanda lest þess vita af því að hin lestin væri nærri. Lestarsamgöngur liggja nú niðri á milli Madridar, Ciudad Real og Andalúsíu vegna slyssins. Spænska ríkisútvarpið segir að allir stjórnmálaflokkar utan fjarhægriflokksins Vox hafi stöðvað kosningabaráttu sína fyrir þingkosningar næsta mánaðar vegna slyssins. Fjörutíu og fimm manns létust þegar lest fór út af sporinu og í veg fyrir lest sem kom úr gagnstæðri átt við Adamuz í Córdoba-héraði í Suður-Spáni í janúar. Þær lestir voru í eigu sömu tveggja félaga og í slysinu í dag. Fréttin hefur verið uppfærð.
Spánn Samgönguslys Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Sjá meira