„Fyrst og fremst erfitt“ Árni Sæberg skrifar 27. október 2026 15:46 Hildur Björnsdóttir er borgarstjóri. Vísir/Sigurjón Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að uppsögnum í miðlægri stjórnsýslu borgarinnar sé lokið, eftir að stöðugildum þar var fækkað um 74 í dag. Mikið verk sé þó áfram fyrir höndum við hagræðingar í rekstri borgarinnar.
Stöðugildum hjá Reykjavíkurborg var fækkað um 74 í dag. Fimmtíu starfsmenn fá beina uppsögn. Í tilkynningu segir að um sé að ræða síðasta áfanga við fækkun stöðugilda. Greint var frá því í morgun að boðaður hefði verið borgarstjórnarfundur til að ræða hagræðingu og hermdu heimildir fréttastofu að tugum yrði sagt upp störfum. Í tilkynningunni segir að stöðugildin 74 séu öll í miðlægri stjórnsýslu borgarinnar. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri ræddi uppsagnirnar við Tómas Arnar Þorláksson fréttamann í Ráðhúsi Reykjavíkur eftir að öllum hlutaðeigandi hafði verið tilkynnt um aðgerðirnar. Hún sagði þær afrakstur vinnu hagræðingarhóps, sem hefði verið að störfum í lengri tíma. „Við erum núna í dag að ljúka þriðju og síðustu lotu í vinnu hagræðingarhóps við að fækka stöðugildum í miðlægri stjórnsýslu. Við ákváðum að setja okkur það viðmið að stöðugildi í miðlægri stjórnsýslu séu aldrei meira en 7,5 prósent af heildarfjölda stöðugilda hjá Reykjavíkurborg, þannig að við náum því marki með þessum aðgerðum.“ Ekki gott að hafa uppsagnir yfir höfði sér Hildur sagði að frekari uppsagnir séu ekki fram undan í miðlægri stjórnsýslu og það væri gott að geta nú talað ró inn í starfsmannahópinn, enda væri það vont fyrir starfsfólk að eiga það sífellt yfir höfði sér að frekari uppsagna sé að vænta. „En það er hins vegar áfram verk að vinna í hagræðingum innan borgarkerfisins og næstu verkefni munu snúa að því að skoða innkaupamál borgarinnar, eignasafnið okkar og veikindahlutföll, sem hafa reynst gríðarhá og kostað borgarsjóð um sex milljarða rúmlega á ári hverju.“ Spurð að því hvað sé átt við þegar talað er um miðlæga stjórnsýslu sagði Hildur auðveldast að útskýra það þannig að þar ræði um starfsmenn sem eru ekki í beinni þjónustu við fólkið í borginni. „Það er fólk sem vinnur í skrifstofustörfum í Borgartúni og Ráðhúsi sem má segja að séu í beinni þjónustu við borgarana, þannig að það fór svolítil vinna, töluverð vinna, í að skilgreina nákvæmlega hvar þessi lína ætti að liggja. Þannig að já, við teljum okkur hafa náð utan um það og þarna séu undir störf sem ekki eru að sinna þessari grunnþjónustu við borgarana, sem við sannarlega viljum standa svo vel vörð um.“ Líka erfitt fyrir þá sem halda vinnunni Hildur sagði að dagurinn hefði verið erfiður í Ráðhúsinu þrátt fyrir að meiri hlutinn teldi sig hafa náð góðri niðurstöðu. „Það er ofsalega erfitt að fara í gegnum svona daga fyrir allt starfsfólk. Það er hræðilegt fyrir fólkið sem er undir og missir vinnuna í dag. En við finnum líka að það er voðalega erfitt fyrir fólkið líka sem er hér í húsi og er eftir. Þannig að nú þurfum við bara að halda rosalega vel utan um okkar starfsfólk og hvetja það til dáða því að það sinnir auðvitað svo mikilvægum störfum hér fyrir borgina í þágu borgaranna og fyrirtækjanna sem hér starfa.“ Hvernig líður þér núna eftir að þessari vinnu er lokið? „Þetta er fyrst og fremst erfitt. Það er ekki skemmtilegt eða ánægjulegt að neinu leyti að standa í stafni fyrir ákvarðanir sem að leiða til þess að fólk missir vinnuna. Það er ekki ánægjulegt. En við vorum mjög skýr með það í aðdraganda kosninga og margir flokkar að það væri þörf á að ráðast í aðgerðir í borgarkerfinu og hagræða í rekstrinum og við erum með mjög skýrt umboð til að gera nákvæmlega það. Við lofuðum kjósendum að gera nákvæmlega þetta og við erum að standa við það og það sagði enginn að þetta yrði auðvelt en við stóðum við orðin og hyggjumst gera það áfram.“ Líka þurfi að taka á innviðaskuldinni Þá sagði Hildur að það hefði komið henni á óvart þegar nýr meiri hluti settist niður með fjármálaskrifstofu borgarinnar hversu skýr áhersla þar á bæ hefði verið um að hagræða þyrfti í rekstri borgarinnar. „Þar voru nefndir einhverjir nokkrir milljarðar, þannig að við erum að leita leiða til þess og það er verkefnið. Það sem skiptir líka máli og ekki margir kannski átta sig á og er ummerki um slæman rekstur, er sú umfangsmikla innviðaskuld sem er hér í borginni. Við erum með skóla og leikskóla og íþróttamannvirki og allt hvað eina sem eru hreinlega mörg hver að grotna niður og viðhaldi hefur ekki verið sinnt um árabil, jafnvel áratugaskeið.“ Sálfræðistofa til taks Fréttastofa hefur í dag rætt við nokkurn fjölda starfsmanna borgarinnar, sem var sagt upp störfum í dag. Þeir lýsa því margir að þeir séu í losti og uppsögnin hafi komið þeim í opna skjöldu. Hildur sagði að vel yrði tekið utan um þennan hóp og nefndi til að mynda að boðið verði upp á þjónustu hjá sálfræðistofunni Lífi og sál auk þess sem boðið verði upp á aðstoð við atvinnuleit. „Við reynum auðvitað að halda vel utan um hópinn sem verður fyrir þessu sannarlega áfalli, sem það er að missa vinnuna, og okkur þykir það öllum ofsalega leitt. Við erum að kveðja auðvitað margt mjög öflugt fólk og sum þeirra hafa starfað um árabil fyrir borgina og þessar uppsagnir snúa ekki að því að þetta sé eitthvað ómögulegt fólk eða slæmir starfskraftar. Við erum bara að minnka þetta kerfi og pólitíkin tekur þarna ákvörðun um að setja þetta viðmið um 7,5 prósent og svo fólum við sviðsstjórum að útfæra á sínum sviðum hvernig þeir næðu þessu markmiði.“
Reykjavík Borgarstjórn Vinnumarkaður Rekstur hins opinbera Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira