Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Birgir Olgeirsson skrifar 22. október 2026 22:03 Borgarbókasafnið er með átta söfn: í Árbæ, Gerðubergi, Grófinni sem sést hér á mynd, Klébergi, Kringlunni, Sólheimum, Spönginni og Úlfarsárdal. Vísir/Vilhelm Kannað verði hvort veita megi sambærilega eða betri bókasafnsþjónustu með færri útibúum Borgarbókasafns Reykjavíkur og samnýtingu við skólabókasöfn. Þetta er meðal þess sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar vilja láta skoða í úttekt á rekstri safnsins.
Tillagan var lögð fram á fundi menningarráðs í gær, 21. október, en afgreiðslu hennar frestað. Hvorki hefur því verið samþykkt að ráðast í úttektina né loka útibúum. Borgarbókasafnið er með söfn í Árbæ, Gerðubergi, Grófinni, Klébergi, Kringlunni, Sólheimum, Spönginni og Úlfarsárdal. Skoði sameiningar og samstarf við skóla Í tillögunni, sem er dagsett 15. október, er lagt til að fjöldi og staðsetning útibúa verði metin. Skoða eigi sameiningar og samnýtingu húsnæðis, aðstöðu og starfsfólks með skólabókasöfnum. Markmiðið sé að ná fram hagræðingu án þess að skerða aðgengi íbúa að bókasafnsþjónustu. Reikni kostnað á hvern gest Tillöguflytjendur vilja jafnframt bera saman rekstrar- og húsnæðiskostnað útibúa, aðsókn, útlán, opnunartíma og nýtingu húsnæðis. Sérstaklega verði reiknaður kostnaður á hvern gest og hvert útlán. Viðburðir og námskeið safnsins verði einnig tekin til skoðunar. Greina eigi kostnað við skipulagningu og framkvæmd, aðsókn og kostnað á hvern þátttakanda og meta hvort breyta eigi forgangsröðun. Verði tillagan samþykkt er gert ráð fyrir að fyrstu niðurstöður og tillögur að hagræðingu liggi fyrir innan þriggja mánaða. Vinnan fari fram í samráði við stjórnendur og starfsfólk safnsins.
Reykjavík Menning Bókmenntir Borgarstjórn Bókasöfn Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira