Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Áróra L Davíðsdóttir skrifar 19. október 2026 00:06 Frakklandsforseti hét stuðningi við fyrirtæki sem urðu fyrir tjóni í óeirðum mótmæla í Frakklandi um helgina. Myndin er úr safni. Getty/Tacca Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur hvatt mótmælendur til stillingar og róar vegna óeirða víða um Frakkland um helgina. Ekkert réttlæti það ofbeldi sem hafi átt sér stað.
Stúdentamótmæli hafa staðið yfir undanfarnar þrjár vikur þar sem námsmenn hafa krafist úrbóta í menntakerfinu og betri aðstæðna í skólum. Stjórnvöld segja stigmögnun hafa orðið í mótmælunum og þau orðið ofbeldisfull. Hátt í sjötta hundrað þúsund mótmælenda tóku þátt í gær og hafa 2.400 verið handteknir. Í París hefur komið til harðra átaka milli mótmælenda og lögreglu sem hefur beitt táragasi á mannfjöldann. Sömuleiðis var kveikt í byggingum í París og brotist inn í verslanir. Samkvæmt frönskum stjórnvöldum hafa um þúsund lögreglumenn slasast, þar af sjö alvarlega. Skýr greinarmunum á þeim sem krefjast breytinga og þeirra sem eyðileggja Macron ávarpaði frönsku þjóðina í Élysée-höll í París og sagði að gera þyrfti skýran greinarmun á „réttmætum kröfum“ mótmælenda og þeirra sem “eyðilögðu, rústuðu og rændu.“ Hann ítrekaði að þeir sem ættu í hlut yrðu dregnir til ábyrgðar og að ekkert réttlæti það ofbeldi sem hafi átt sér stað. Fyrr í dag hélt Macron neyðarfund með háttsettum embættismönnum og sagðist hafa falið þeim, í samráði við héraðs-og borgarstjóra, að vernda borgir Frakklands, opinberar byggingar og fyrirtæki, segir í umfjöllun Le Monde. Óbærilegt væri að sjá götur borga Frakklands lagðar í rúst og hét hann stuðningi við fyrirtæki sem urðu fyrir tjóni. Greint hefur verið frá umfangsmiklum skemmdarverkum víða um Frakkland. EPA Laurent Nuñez, innanríkisráðherra Frakklands, lagði einnig orð í belg og sagði mótmæli vera grundvallarrétt en að valda óreiðu með ofbeldi sé það ekki. „Að ráðast á lögreglu okkar og löggæslulið, beina spjótum sínum að stofnunum okkar, vinna skemmdir á opinberum byggingum, ryðjast inn í héraðsstjórnarskrifstofur eða ráðhús, ræna verslanir: ekkert getur réttlætt slíkt,“ skrifaði Nuñez á X fyrr í dag.
Frakkland Mótmælaalda í Evrópu 2026 Tengdar fréttir Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, fékk táragas í augunun þegar hún var við mótmæli í Angers í Norðvestur-Frakklandi í gær. Hún segist finna fyrir mikilli spennu í franska þjóðfélaginu – en líka sviða í augunum. 18. október 2026 19:43 Flúði táragas lögreglu í Nice Einar Baldvin Brimar flúði táragas lögreglunnar í Nice í Frakklandi í gær á heimleið sinni af ströndinni. Hann sá fyrr um daginn mótmælendur safnast saman, friðsamlega, en á heimleið hafi mótmælin verið búin að harðna. 18. október 2026 12:02 Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Meira en 160 manns hafa verið handteknir víðs vegar um Frakkland á mótmælum sem fara fram víða um land. Hópur mótmælenda braust um stundarsakir inn í ráðhúsið í Marseille og kveiktu í ferðaskrifstofu í Lyon. Búist er við því að tugir þúsunda taki þátt í mótmælum gegn versnandi gæðum menntunar og háum framfærslukostnaði. 17. október 2026 13:37 Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Sjá meira
Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, fékk táragas í augunun þegar hún var við mótmæli í Angers í Norðvestur-Frakklandi í gær. Hún segist finna fyrir mikilli spennu í franska þjóðfélaginu – en líka sviða í augunum. 18. október 2026 19:43
Flúði táragas lögreglu í Nice Einar Baldvin Brimar flúði táragas lögreglunnar í Nice í Frakklandi í gær á heimleið sinni af ströndinni. Hann sá fyrr um daginn mótmælendur safnast saman, friðsamlega, en á heimleið hafi mótmælin verið búin að harðna. 18. október 2026 12:02
Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Meira en 160 manns hafa verið handteknir víðs vegar um Frakkland á mótmælum sem fara fram víða um land. Hópur mótmælenda braust um stundarsakir inn í ráðhúsið í Marseille og kveiktu í ferðaskrifstofu í Lyon. Búist er við því að tugir þúsunda taki þátt í mótmælum gegn versnandi gæðum menntunar og háum framfærslukostnaði. 17. október 2026 13:37