Erlent

Hörð á­tök lög­reglu og mót­mælenda í París

Lovísa Arnardóttir skrifar
Kveikt var í bílum og byggingum.
Kveikt var í bílum og byggingum. Vísir/EPA

Að minnsta kosti 1.200 voru handtekin í gær og í nótt í mótmælum stúdenta víða um Frakkland. Stjórnvöld segja stigmögnun hafa orðið í mótmælunum og þau orðið ofbeldisfull. Í frétt BBC segir að talið sé að 550 þúsund manns hafi tekið þátt.  Sébastien Lecornu forsætisráðherra sagði að 150 lögreglumenn hefðu slasast í óeirðunum.

Í París kom til harðra átaka fram á kvöld við óeirðalögreglu sem beitti táragasi og vatnsbyssum á mannfjöldann. Kveikt var í byggingum í París og víðar, meðal annars í Limoges þar sem mikill eldur í ráðhúsinu olli því að þakið hrundi að hluta.

Í frétt BBC segir að einhverjir mótmælenda hafi farið að ræna í verslunum og þá hafi einnig verið greint frá umfangsmiklum skemmdarverkum á ráðhúsum og fyrirtækjum.

Þar kemur einnig fram að í París hafi mótmælin byrjað friðsamlega en þegar leið á daginn hafi einhverjir hópar kveikt elda á götum úti og í ökutækjum, meðal annars á þekktum stöðum í miðborginni á borð við Place de la République.

Óeirðarlögregla kölluð til

Verslanir voru rændar, að minnsta kosti einn veitingastaður brann til kaldra kola og BBC varð vitni að slagsmálum milli sumra hópanna. Þá segir að óeirðalögregla hafi ráðist að mannfjölda í miðborg Parísar og berja nokkra með kylfum.

Í frétt BBC segir að Grégory Doucet borgarstjóri hafi harmað bruna ferðamannaskrifstofu borgarinnar. Það væri harmleikur. „Þetta kremur hjörtu okkar því þetta er mjög táknræn og þekkt söguleg bygging.“

Lögreglan á staðnum sagði að „óvinveittir einstaklingar“ hefðu komið í veg fyrir að slökkviliðsmenn gætu með öruggum hætti ráðið niðurlögum eldsins. Slökkvilið barðist einnig við eldinn í ráðhúsinu í Limoges og segir í frétt BBC að í Saint-Étienne hafi ungur maður misst höndina í mótmælunum.

Greint hefur verið frá umfangsmiklum skemmdarverkum. Vísir/EPA

Markvisst ofbeldi

Innanríkisráðuneyti Frakklands segir að sums staðar hafi verið um að ræða „markvisst ofbeldi“ af hálfu „hettuklæddra einstaklinga“, meðal annars í hlutum höfuðborgarinnar og einnig í Marseille, Rennes, Toulouse og Angers. Greint hafi verið frá skemmdum á byggingum víða um Frakkland, meðal annars í Grenoble, Avignon, Pau, Montpellier og Valence. Brotist var inn í fata- og matvöruverslanir í París og Apple-verslun í Lille var brotin upp og tæmd.

Mótmælin fylgja þriggja vikna mótmælaöldu undir forystu stúdenta víðs vegar um landið. Reiði vegna fjarvista kennara og lélegs aðbúnaðar í skólum breyttist fljótt í landsmótmæli gegn ójöfnuði, ónógum opinberum útgjöldum og versnandi gæðum menntunar.

Stjórnvöld hafa reynt að koma til móts við kröfurnar, en Édouard Geffray menntamálaráðherra lofaði 3.000 forfallakennurum til viðbótar í sjónvarpsviðtali 8. október en mótmælin hafa aðeins haldið áfram og harðnað eftir það.

Stjórnvöld segja sums staðar hafa verið um markvisst ofbeldi og þjófnað að ræða. Vísir/EPA

Gulu vestin kölluð til

Kallað hefur verið eftir því að verkalýðsfélög og áberandi einstaklingar úr hinni svokölluðu gulu vestin-hreyfingu frá 2018 taki þátt í mótmælunum. CGT, eitt stærsta verkalýðsfélag Frakklands, hefur lýst yfir stuðningi við mótmælin og kallað eftir „hærri launum og lífeyri, lægra verðlagi og verndun opinberrar þjónustu sem mætir þörfum fólks“.

Í frétt BBC segir að þó svo að mótmæli og óeirðir séu ekkert nýmæli í Frakklandi komi þessi hrina á sama tíma og landsmenn eru að ganga inn í nokkra pólitíska óvissu með brotthvarfi Emmanuel Macron úr forsetastól á næsta ári.

Mótmælendur mótmæla hærri framfærslukostnaði og lakari gæðum menntunar. Vísir/EPA

Óvissa framundan

Skoðanakannanir benda til þess að forsetakosningarnar í apríl gætu snúist um baráttu milli Marine Le Pen, leiðtoga Þjóðfylkingarinnar, og Jean-Luc Mélenchon úr harðvinstriflokknum La France Insoumise.

Bæði hafa þau tjáð sig um mótmælin samkvæmt frétt BBC en sá síðarnefndi tók einnig þátt í þeim og sakaði lögregluna um að hafa „sleppt sér“ á mótmælendur en fordæmdi þó rán og íkveikjur mótmælenda.

Le Pen sagði að „réttmætum kröfum“ mótmælenda hefði verið „haldið í gíslingu af öfgavinstrinu“ og sakaði Mélenchon um að kynda undir ofbeldinu.


Tengdar fréttir

Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana

Tugþúsundir námsmanna flykktust út á götur Tírana, höfuðborgar Albaníu, í gær til að mótmæla enn á ný. Mótmælin urðu ofbeldisfull og var kveikt í stjórnarráðsbyggingu og tveimur bönkum. Samkvæmt frétt Guardian eru 23 lögreglumenn slasaðir og sex mótmælendur. Þá kemur fram að 35 hafi verið handteknir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×