Upp­gjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Hilmar Smári var stigahæstur hjá heimamönnum.
Hilmar Smári var stigahæstur hjá heimamönnum. Pawel Cieslikiewicz

Höttur vann spennandi 98-103 sigur á Stjörnunni í annarri umferð Bónus- deildar karla í kvöld. Stjarnan náði að vinna upp fimmtán stiga forskot gestanna í fjórða leikhluta en Höttur var sterkari á lokamínútunum og knúði fram öflugan sigur.

Höttur byrjaði leikinn betur og höfðu frumkvæðið í fyrsta leikhluta. Liðið náði snemma átta stiga forskoti en Stjörnumönnum tókst að minnka muninn og var staðan 18-23 að loknum fyrsta leikhluta.

Gestirnir héldu áfram að hafa yfirhöndina í öðrum leikhluta og náðu mest ellefu stiga forskoti, 36-47. Heimamenn gáfust þó ekki upp og náðu þeir að saxa á forskotið undir lok hálfleiksins. Staðan var þá 46-50 þegar flautað var til hálfleiks.

Stjarnan náði að jafna metin í 55-55 snemma í þriða leikhluta en eftir það fór að halla undan fæti. Gestirnir nýttu færin sín betur og gengu á lagið og juku forskotið jafnt og þétt. Höttu vann leikhlutann 31-20 og munaði því fimmtán stigum á liðunum þegar fjórði leikhluti hófst.

Stjarnan hóf fjórða leikhluta og krafti og náðu fljótlega að minnka muninn í sex stig. Höttur svaraði hins vegar fyrir sig og jók forskotið aftur. Heimamenn gáfust þó ekki upp og náðu aftur að saxa verulega á forskotið. Þegar tæpar tvær mínútur voru eftir var staðan orðin jöfn, 95-95, og mikil spenna komin í leikinn.

Marquis Jackson reyndist öruggur á vítalínunni fyrir Hött og setti niður sex vítaskot á lokamínútunni. Stjarnan fékk tækifæri til að jafna en þriggja stiga skot frá Ægi og Hilmari gengu ekki upp. Niðurstaðan 98-103 fyrir Hetti eftir afar spenanndi lokakafla.

Atvik leiksins

Endurkoma Stjörnunnar í fjórða leikhluta. Þeim tókst að sigra fjórða leikhlutann örugglega 29-18 en það dugði þó ekki til.

Stjörnur og skúrkar

Hilmar Smári Henningsson var stigahæstur hjá Stjörnunni með 29 stig, 8 fráköst og 6 stoðsendingar. Milos kom þar næstur með 18 stig og 5 fráköst.

Marquis Jackson var með 27 stig fyrir Hött og 7 stoðsendingar.

M. Jackson var í stuði í kvöld.Vísir/Pawel Cieslikiewicz

Stemning og umgjörð

Frábær stemning í ÞG-höllinni og umgjörðin til fyrirmyndar.

Mjög góð mæting í ÞG-höllina í kvöld.Vísir/Pawel Cieslikiewicz

Dómarar

Jóhannes Páll Friðriksson, Gunnlaugur Már Briem og Sigurbaldur Frímannsson sáu um dómgæsluna í kvöld.

Dómaraþríeykið góða.Vísir/Pawel Cieslikiewicz

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira