Sport

„Við fórum að spila al­vöru körfu­bolta“

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Bragi Guðmundsson átti flottan leik fyrir Keflavík í kvöld
Bragi Guðmundsson átti flottan leik fyrir Keflavík í kvöld Vísir/ívar

Keflavík vann gríðarlega öflugan og öruggan sextán stiga sigur 106-90 á nýliðum Sindra þegar liðin mættust í annarri umferð Bónus deild karla í kvöld. Bragi Guðmundsson átti flottan leik fyrir Keflavík og hann ræddi við Vísi eftir leik.

„Mér fannst þetta bara vera ágætt í seinni hálfleik en fyrri hálfleikur var ekki góður“ sagði Bragi Guðmundsson eftir sigurinn í kvöld.

„Við vorum kannski að vanmeta þá eða eitthvað en tókum þetta í seinni í byrjun eins og á móti Ármann og kláruðum þetta bara“

Keflavík byrjaði leikinn af krafti en Sindri átti frábært svar í öðrum leikhluta og börðu vel frá sér.

„Þetta var bara léleg vörn og sóknarfráköst. Það voru bara þessir litlu hlutir sem að telja mikið og þetta var alltaf að fara tólf stigum yfir eða jafntefli. Þetta var bara upp og niður og var bara ekki að gerast hjá okkur“

Það var þó allt annað Keflavíkurlið sem mætti út í seinni hálfleikinn og sigurinn var aldrei í hættu.

„Við fórum að spila alvöru körfubolta. Þetta var bara ekki nógu gott og við gerðum það“

Bragi Guðmundsson skoraði 24 stig í kvöld og var einnig með 10 fráköst. Hann var sáttastur með sigurinn í kvöld.

„Ég er bara sáttur með sigur og þá er ég bara ánægður“

Keflavík mætir Álftanesi í næstu umferð og er mikil tilhlökkun fyrir því einvígi.

„Við eigum Álftanes í næstu viku og ég er mjög spenntur fyrir því. Ég er bara búin að vera bíða eftir þeim leik og ég er klár í þetta“ sagði Bragi Guðmundsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×