Lífið

Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Svipmyndir úr stjörnulífi vikunnar.
Svipmyndir úr stjörnulífi vikunnar.

Október fer vel af stað og stjörnur landsins njóta lífsins sem aldrei fyrr. Liðin vika var full af fjöri, ferðalögum og ást á samfélagsmiðlunum. 

Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.


Ástin blómstrar

Ástin blómstar hjá grafíska hönnuðinum og lisakonunni Rakel Tómasdóttur, Birnu Hrönn Björnsdóttur og Evu Maríu Þórarinsdóttir Lange, en Birna og Eva eru eigendur viðburðaskrifstofunnar Pink Iceland, sem sérhæfir sig í glæsilegum áfangastaðabrúðkaupum. Þær hafa verið duglegar að ferðast þrjár saman víða um heim en Birna átti afmæli um helgina og fékk fallegar kveðjur frá konunum sínum. 


Vill bara heyra já

Listakonan og tískuskvísan Mekkín Samúels fór út á lífið og biður fólk að segja ekki nei við sig. 

Hún var viðmælandi í Tískutali í ágúst þar sem hún fór meðal annars yfir boð og bönn í klæðaburði.


Brynhildur Gaga

Hlaðvarpsstýran og áhrifavaldurinn Brynhildur Guðjónsdóttir fagnaði afmæli sínu með búningapartýi og klæddi sig upp sem poppstjarnan Lady Gaga frá 2008.

Fagnaði kærastanum

Hrafnkatla Unnarsdóttir, eigandi Pons vintage, fór auðvitað að sjá kærastann sinn Saint Pete á tónleikum á föstudaginn. 


Skvísuveiðar

Leikkonan Nína Dögg Filippusdóttir fór á fasana-veiðar í Bretlandi með sannkölluðum skvísuhópi. Með henni voru meðal annars athafnakonan Kristín Ólafs og markaðsstjórinn Helga Thors. 

Skvísurnar með veiði-lúkkin á lás.Instagram
Kristín Ólafs, Nína Dögg og Helga Thors á veiðum.Instagram

Afmælisást

Inga Tinna, forstjóri Dineout, sendi ástinni sinni og unnusta, fyrrum handboltastjörnunni Loga Geirssyni, fallega afmæliskveðju á Instagram.


Barokk-beib

Markaðsstjórinn Pattra Sriyanonge skellti sér á Barokk á klúbbnum á hátíðinni State of The Art. 


Hrifin af Sviss

Markaðssérfræðingurinn Hildur Sif Hauksdóttir fór í skvísuferð til Sviss með Sunnevu Einars, bestu vinkonu sinni og áhrifavaldi. Hún var mjög hrifin af landinu.


Skvísulæti!

Útvarps-dúóið Guðjón Smári og Jóna Margrét hittu rísandi poppstjörnuna Unni Borg og skelltu í skvísumynd.


Gellukvöld í Reykjavík

Sara Lind, jafnan tengd við Júník, fór út að borða með vinkonunum um helgina.

Athafnakonan Lína Birgitta var með í för.


Ástfangin í Tansaníu

Kaleo-stjarnan Jökull Júlíusson átti einstaka daga í Tansaníu með kærustunni sinni Brunu Ludmila.


Tókýó-Sofia

Áhrifavaldurinn og athafnakonan Sofia Elsie Nielsen er dugleg að ferðast og upplifa ýmis ævintýri. Hún er nú í Tókýó að njóta.


LXS-kvöld

Birgitta Líf og vinkonuhópurinn hennar sem kallar sig LXS áttu svakalegt skvísukvöld.


Fallegar fjölskyldustundir

Tónlistarmaðurinn Aron Can birti skemmtilega myndasyrpu á Instagram af fallegum fjölskyldustundum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.