Sér enn sárlega eftir að hafa ekki svarað símtalinu Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 10. október 2026 08:00 Systkinin minnast þess þegar fjölskyldan kvaddi JohnSnorra á Keflavíkurflugvelli í desember 2020. Þótt þeim þætti erfitt að sjá á eftir honum til Pakistans þá höfðu þau fulla trú á að hann myndi snúa aftur. Aðsend „Hann hringir í mig á afmælisdaginn minn sem er þremur dögum áður en þetta gerist. Ég man að hann hringir og ég vakna við það. Hann byrjar bara á því að syngja afmælissönginn fyrir mig og svo bara spjöllum við smá og hann spyr hvað ég ætli að gera yfir daginn. Ég spyr hvernig honum gangi og hann segir að það gangi allt vel. Svo bara kveð ég hann og hann segist elska mig.“
Þetta segir Ragnhildur Vala Johnsdóttir þegar hún rifjar upp síðasta samtalið sem hún átti við föður sinn, fjallgöngumanninn John Snorra Sigurjónsson, sem lést í leiðangri á K2 í febrúar árið 2021. Ragnhildur var þá aðeins 14 ára gömul. Í öðrum þætti hlaðvarpsseríunnar Önnur mál ræða þrjú börn Johns Snorra, þau Ragnhildur Vala, Kjartan Orri og Halla Karen, um föðurmissinn en málið hefur undanfarið verið í umræðunni eftir að heimildarmynd um málið fór í sýningu. Ættingjar Johns Snorra hafa hingað til ekki tjáð sig um ferðina en börn hans opna sig hér í fyrsta sinn um atburðarásina, biðina óbærilegu á meðan leit stóð yfir og hvernig þau hafa unnið úr áfallinu. Bjuggust öll við að hann kæmi heim John Snorri hélt af stað til Pakistans í desember árið 2020 með það að markmiði að verða fyrstur manna til að klífa K2 að vetrarlagi. Hann hafði áður náð tindi fjallsins að sumri til, fyrstur Íslendinga, og var þarna að gera sína aðra tilraun við vetraruppgöngu. Systkinin rifja upp síðustu kveðjustundina á Keflavíkurflugvelli, þegar fjölskyldan fylgdi honum til flugs. Þau segja kveðjustundina hafa verið erfiða en að ekkert þeirra hafi gert ráð fyrir því að þetta yrði í síðasta sinn sem þau sæju föður sinn. Systkinin lýsa föður sínum sem hlýjum, ævintýragjörnum og umhyggjusömum fjölskyldumanni. Þau segja hann hafa lagt mikla rækt við sambandið við börnin sín, hvatt þau til að fylgja draumum sínum og haft mikla trú á hæfileikum þeirra.Aðsend „Ég var eiginlega ekki stressaður út af því að ég vissi hvað pabbi hefði getað gert. Ég vissi bara að ef einhver gæti gert þetta þá er það pabbi,“ segir Kjartan Orri, sem var tólf ára þegar faðir hans lést. Kjartan rifjar jafnframt upp að John Snorri hafi reynt að hringja í hann á svipuðum tíma og hann hringdi í Ragnhildi, skömmu áður en hann hvarf. Símtalið hafi komið um miðnætti en Kjartan var sofandi og missti þar af leiðandi af því. Aðspurður hvernig honum líði með það svarar hann: „Alveg ömurlega. Ég bara óska þess að ég hefði vaknað við símhringinguna.“ Hann segir eftirsjána enn sitja í sér, fimm árum síðar. „Þetta er mjög særandi“ Í þættinum ræða systkinin einnig þá miklu gagnrýni sem faðir þeirra hefur sætt vegna ákvörðunar sinnar um að leggja í svo hættulegan leiðangur, ekki síst í ljósi þess að hann var sex barna faðir. Ragnhildur segir umræðuna hafa verið mjög særandi, sérstaklega þegar fólk gagnrýnir föður hennar fyrir að hafa ekki verið heima hjá börnunum sínum. „Maður hefur alveg tekið eftir þessu og augljóslega er þetta mjög særandi,“ segir hún og vísar meðal annars til ummæla fólks sem hefur velt því fyrir sér hvers vegna John Snorri hafi farið í leiðangurinn. Kjartan tekur undir þetta og segist sérstaklega hafa orðið var við gagnrýnina í athugasemdakerfum á Facebook. Hann telur að þeir sem gagnrýna föður hans átti sig ekki á þeirri ástríðu sem hann hafði fyrir fjallamennsku. John Snorri tók mynd af börnunum sínum með sér á fjallið.Aðsend „Þau hafa aldrei getað sett sig í spor pabba. Þau ólust örugglega ekki upp í sveit og höfðu ekki sömu ástríðu og pabbi.“ Í þættinum segja systkinin jafnframt frá óvissunni eftir hvarf föður síns, leitinni að honum og hvernig þau hafa unnið úr sorginni á þeim fimm árum sem liðin eru frá andláti hans.
John Snorri á K2 Hlaðvörp Mest lesið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Endurheimti tilganginn í erfiðu bataferli Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Smáralind breytist í tímavél um helgina Lífið samstarf Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Lífið Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Lífið samstarf Fleiri fréttir Sér enn sárlega eftir að hafa ekki svarað símtalinu Endurheimti tilganginn í erfiðu bataferli Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Sjá meira