Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Magnús Jochum Pálsson skrifar 12. október 2026 15:01 Mótmæli við Stammheim-fangelsið eftir andlát fanganna og meðlimirnir fjórir sem létust í fangelsinu: Baader, Raspe, Meinhof og Ensslin. Rauða herdeildin, betur þekkt sem RAF, var einn þekktasti hryðjuverkahópur Evrópu á áttunda áratugnum. Haustið 1977 fundust leiðtogar hennar látnir í klefum sínum í Stammheim fangelsinu, því rammgerðasta í öllu Vestur-Þýskalandi. Yfirvöld sögðu fangana hafa stytt sér aldur en sú skýring er enn umdeild í Þýskalandi.
Rauða herdeildin, eða Rote Armee Fraktion á þýsku, spratt upp úr róttækri vinstrihreyfingu ungs fólks í Vestur-Þýskalandi eftir 1968. Herdeildin er þó betur þekkt undir óformlega heitinu Baader-Meinhof-hópurinn eftir tveimur af þremur helstu forsprökkum hans; Andreas Baader og Ulrike Meinhof. Þriðji stofnmeðlimurinn, Gudrun Ensslin var þó ekki síður herská og virk. Félagarnir litu á vestur-þýska ríkið sem framhald nasismans og því væri vopnuð barátta gegn því réttlætanleg. Í nokkur ár í kringum 1970 stóðu þau fyrir bankaránum og sprengjuárásum sem kostuðu fjögur mannslíf. Prófessorarnir Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann rekja lokakafla hreyfingarinnar í nýjasta þætti Skuggavaldsins. Fundust látin morguninn eftir Sumarið 1972 voru Baader, Ensslin, Meinhof og Jan-Carl Raspe loks handtekin. Þau voru síðan vistuð í sérhannaðri öryggisálmu Stammheim-fangelsisins við Stuttgart, þar sem fram fóru ein lengstu og dýrustu réttarhöld þýskrar sögu. Félagar sem enn gengu lausir, svokölluð önnur kynslóð RAF, héldu baráttunni áfram og ætluðu sér að frelsa leiðtogana. Haustið 1977 rændi önnur kynslóðin Hanns Martin Schleyer sem þá var forseti samtaka þýskra atvinnurekenda, og krafðist þess að fangarnir yrðu látnir lausir. Helmut Schmidt kanslari neitaði að semja. Kanslarinn Helmut Schmidt neitaði að semja.Vísir/Getty Þá tóku palestínskir bandamenn RAF til sinna ráða og rændu farþegaþotu frá Lufthansa og kröfðust lausnar fanganna. Vélin endaði í Mogadishu í Sómalíu og skömmu eftir miðnætti aðfaranótt 18. október réðst vestur-þýska sérsveitin inn í flugvélina og bjargaði gíslunum. Vestur-þýska ríkið vann fullnaðarsigur á hryðjuverkamönnunum og fangarnir í Stammheim fylgdust með atburðarásinni í gegnum útvarpstæki sem smyglað hafði verið inn til þeirra. Morguninn eftir fannst Andreas Baader látinn í klefa sínum með skotsár í hnakkanum, Gudrun Ensslin fannst hengd og þriðji meðlimurinn, Jan-Carl Raspe fannst einnig með skotsár á höfði sem dró hann til dauða skömmu síðar. Fjórði fanginn, Irmgard Möller, var með stungusár í brjósti en lifði af. Grunsamleg sjálfsvíg og skrítnar skýringar Innan við klukkustund eftir að fangarnir fundust, sendu yfirvöld út yfirlýsingu um að Baader og Ensslin hefðu framið sjálfsvíg þrátt fyrir að formleg rannsókn á andlátunum væri ekki hafin. Opinbera skýringin var sú að verjendur fanganna hefðu smyglað vopnunum falin inni í skjölum og fangarnir síðan falið þau í plötuspilara og holu sem skafin hafði verið í steyptan vegg. Sjálfsvígin hefðu verið samantekin ráð eftir að flugránið mistókst. Efasemdamenn spurðu á móti hvernig maður skýtur sjálfan sig í hnakkann og hvernig vopn gátu legið falin í best vaktaða fangelsi landsins. Irmgard Möller, eina vitnið sem lifði nóttina af, hefur alla tíð hafnað sjálfsvígsskýringunni. Grunurinn um að ekki væri allt sem sýnist á sér forsögu. Í maí 1976, á meðan réttarhöldin stóðu yfir, fannst Ulrike Meinhof hengd í klefa sínum í Stammheim. Hún hafði þá einangrast frá fyrri félögum sínum og vitað að andleg heilsa hennar var slæm. Yfirvöld sögðu þá sjálfsvíg, en stuðningsmenn hrópuðu morð. Haustið 1977 virtist sagan endurtaka sig, og nú í þrígang. Viðskiptamaðurinn Schleyer hlaut einnig hrikaleg örlög því lík hans fannst daginn eftir í farangursgeymslu bíls. En þar með var lokið því sem Þjóðverjar kalla þýska haustið. Deilunni um hvað gerðist í Stammheim-fangelsi hefur þó aldrei lokið. Síðast árið 2013 höfnuðu saksóknarar beiðni um nýja rannsókn, á þeim forsendum að engin ný gögn hefðu komið fram. Síðari þáttur Skuggavaldsins um Ulrike Meinhof og Rauðu herdeildina er aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Skuggavaldið Þýskaland Mest lesið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Áskorun Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Lífið Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið Stjörnulífið: Laumugifting í helli Lífið Fleiri fréttir Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Sjá meira