Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 28. september 2026 13:01 Ulrike Meinhof var landsþekkt blaðakona sem varð að einum eftirlýstasta hryðjuverkamanni Evrópu. Peter Timm\ullstein bild via Getty Images Ulrike Meinhof var landsþekkt blaðakona, tveggja barna móðir og áhrifamikil rödd þýskra vinstri menntamanna. Vorið 1970 tók hún afdrifaríka ákvörðun sem gerði hana að einum eftirlýstasta hryðjuverkamanni Evrópu. Saga hennar og Rauðu herdeildarinnar eru viðfangsefni nýjasta þáttar Skuggavaldsins.
Þann 14. maí 1970 sat Meinhof á fræðibókasafni í Vestur-Berlín ásamt Andreas Baader, róttæklingi sem afplánaði fangelsisdóm fyrir íkveikjur í stórverslunum. Baader hafði fengið að yfirgefa fangelsið undir lögregluvernd á þeim forsendum að hann og Meinhof ynnu saman að bók. Byltingarandinn tók yfir Það var yfirvarp. Vopnaðir félagar Baaders réðust inn á safnið, starfsmaður var skotinn og Baader frelsaður. Meinhof hafði ætlað að sitja eftir og viðhalda þannig þeirri ímynd að hún væri aðeins saklaus blaðakona. Þegar á hólminn var komið tók byltingarandinn yfir og í stað þess að sitja flúði hún með hópnum og fór upp frá þeim degi í felur. Atburðurinn er almennt talinn marka upphaf Rauðu herdeildarinnar, RAF. Þessi saga á sér djúpar rætur í Vestur-Þýskalandi sjöunda áratugarins. Landið hafði risið hratt úr rústum heimsstyrjaldarinnar en hluti ungu kynslóðarinnar taldi að raunverulegt uppgjör við nasismann hefði aldrei farið fram. Fyrrverandi nasistar sátu enn í ýmsum valdastöðum og róttækir stúdentar fóru í vaxandi mæli að líta á vestur-þýska ríkið sem framhald gamla kerfisins í nýjum búningi. Morðið á stúdentinum Benno Ohnesorg í mótmælum árið 1967 og skotárásin á stúdentaleiðtogann Rudi Dutschke ári síðar ýttu enn frekar undir þessa róttækni. „Neysluhryðjuverk“ Á sama tíma beindist reiðin gegn Víetnamstríðinu, bandarískri heimsvaldastefnu og vestrænni neyslumenningu. Andreas Baader og hin gallharða prestsdóttir Gudrun Ensslin kveiktu ásamt félögum í tveimur stórverslunum í Frankfurt árið 1968 til að mótmæla því sem þau kölluðu „neysluhryðjuverk“. Meinhof kynntist Baader og Ensslin þegar hún sem blaðamaður fjallaði um réttarhöldin vegna íkveikjanna. Á prenti gagnrýndi hún ofbeldisfullar aðferðir þeirra en með sjálfri sér heillaðist hún af því að þau létu ekki nægja að tala um byltingu heldur væru tilbúin að framkvæma hana. Þegar Andreas Baader var handtekinn aftur árið 1970 tók Meinhof þátt í að skipuleggja frelsun hans á bókasafninu. Með ákvörðuninni um að stökkva á eftir honum á flótta lokaði hún síðan leiðinni aftur inn í fyrra líf sitt. Skömmu síðar hélt hópurinn til Mið-Austurlanda þar sem liðsmenn fengu þjálfun hjá palestínskum skæruliðum. Þegar þau snéru aftur til Þýskalands hófst uppbygging þeirrar vopnuðu neðanjarðarhreyfingar sem átti eftir að standa fyrir bankaránum, sprengjuárásum og morðum og marka djúp spor í sögu Vestur-Þýskalands. Fyrri þáttur Skuggavaldsins um Ulrike Meinhof og Rauðu herdeildirnar er nú aðgengilegur inni á Tal.is og aðrar helstu streymisveitur. Í síðari þættinum sem birtist eftir tvær vikur verður fjallað um hryðjuverk RAF, umfangsmikla leit þýskra yfirvalda að hópnum og dularfulla dauða leiðtoga hans í Stammheim-fangelsinu.
Skuggavaldið Hryðjuverkastarfsemi Hlaðvörp Þýskaland Mest lesið Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Ástfangin pör á Djöflum Menning Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Lífið Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Lífið Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Fleiri fréttir Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Sjá meira