Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Agnar Már Másson skrifar 8. október 2026 16:51 Kjaftshögg, blys og hrákur einkenndu knattspyrnukeppni MR og Versló í gær. Sólveig, rektor MR, segir að stærstur hluti nemenda hafi verið til fyrirmyndar, en að ákveðinn hópur úr báðum skólum hafi viðhaft „mjög leiðinlega“ hegðun. Samsett Mynd Rektor Menntaskólans í Reykjavík segir það miður hvernig fór á knattspyrnumóti MR og Verslunarskólans í gærkvöldi, sem virðist hafa farið úr böndunum. Einn fékk flösku í hausinn og kjaftshögg voru látin fljúga. Dagskrá í Hljómskálagarðinum í dag hefur nú verið frestað vegna uppákomunnar og skólastjórnendur skoða nú „hvernig við ætlum að afgreiða“ ræðukeppnina sem til stendur að halda á morgun. „
Við eigum eftir að senda tölvupóst á nemendur og forráðamenn,“ segir Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor MR, í samtali við Vísi og bætir við að nemendur og forráðamenn megi búast við frekari upplýsingum von bráðar. Greint var frá því í dagbók lögreglu í gær að einn hefði fengið flösku í höfuðið í kappleik á milli nemenda Menntaskólans í Reykjavík og Verzlunarskóla Íslands. Mikil ölvun og ólæti hefðu verið á viðburðinum. Blysum hafi verið kastað sem hafi lent á nærstöddum og einhverjir fengið kjaftshögg og var skyrpt á aðra. Í gær kepptu MR-ingar og Verslingar í knattspyrnu, þar sem nemendur Verslunarskólans báru sigur úr býtum; staðan endaði 5-4 fyrir Versló. MR-VÍ vikan, eða VÍ-MR vikan eins og hún er kölluð í Verslunarskólanum, er árlegur viðburður þar sem nemendur skólanna keppast í ýmsum greinum, til dæmis knattspyrnu, reipitogi og ræðumennsku, en rígur hefur verið á milli skólanna svo áratugum skiptir. „Það er ömurlegt að fá fréttir af svona leiðindahegðun af viðburði þessara tveggja nemendafélaga,“ heldur rektorinn áfram og vísar þar til Framtíðarinnar, málfundafélags og annars tveggja nemendafélaga MR, og Málfó, málfundafélags Versló. Sólveig segir að skólameistarar beggja skóla séu mjög samstíga í þessu máli. „Við erum líka búin að vera að ræða við nemendafélögin og lögregluna,“ segir Sólveig. Hún vill ekki fara í smáatriði þess sem átti sér stað en tekur fram að engin stórslys hafi orðið á fólki þó að hegðunin hafi engu að síður verið mjög leiðinleg. „En þetta var bara ákveðinn hópur nemenda úr báðum skólum. Stærstur hluti nemenda var til fyrirmyndar og engin almenn ölvun eða slíkt,“ segir hún. Félögin hafa bæði greint frá því í Instagram-færslum að búið sé að aflýsa útidagskrá sem til stóð að halda í Hljómskálagarðinum í dag, en þar hafa nemendur skólanna tveggja keppt í fjölbreyttum greinum svo sem kappáti og reipitogi. Rektor staðfestir að það sé vegna stimpinganna í gær. Síðdegis á morgun stendur til að halda ræðukeppni í Verslunarskólanum, en sú keppni má segja að sé krúnudjásn MR-VÍ vikunnar. Aftur á móti segir Sólveig að engin ákvörðun hafi verið tekin um ræðukeppnina. „Við ætlum að skoða hvernig við ætlum að afgreiða það.“
Framhaldsskólar Reykjavík Lögreglumál Ofbeldi barna Skóla- og menntamál Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Sjá meira