Arnarnesvegur opnar loks á morgun Tómas Arnar Þorláksson skrifar 4. október 2026 13:37 Arnarnesvegur. vísir/vilhelm Opnað verður fyrir umferð um nýja Arnarnesveginn á morgun klukkan 14.00. Svæðið sé þó enn vinnusvæði enda standi yfir framkvæmdir við nýtt hringtorg við mót Arnarnesvegar og Rjúpnavegar og við nærliggjandi göngu- og hjólastíga.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar. Búast megi við einhverjum umferðartöfum og eru ökumenn beðnir um að aka með sérstakri gát og sýna tillitssemi. „Opnað verður fyrir umferð um nýjan Arnarnesveg, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, mánudaginn 5. október kl. 14:00,“ segir í tilkynningunni. Framkvæmdin við veginn sé langt komin og um mikilvægan áfanga sé að ræða. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki um mánaðamót nóvembers og desembers. Unnið hafi verið að því að tengja nýju vegamannvirkin inn á núverandi akbrautir sem umferð er á. Það hafi óhjákvæmilega valdið truflun á umferð. „Undanfarið hefur verið unnið við breytingar á vegamótum Breiðholtsbrautar og Vatnsendahvarfs og er sú vinna langt komin. Eftir breytingarnar verður opið fyrir umferð um hægri beygju inn og út af Vatnsendavegi á Breiðholtsbraut. Þá hefur verið unnið við tvöföldun Breiðholtsbrautar á móts við vegamótin til norðurs að Elliðaám. Í síðustu viku var sá kafli malbikaður. Áætlað er að þessum verkþáttum ljúki um næstu mánaðamót og verða þá allar akreinar sem tengjast vegamótum að nýju brúnni yfir Breiðholtsbraut opnaðar.“ Jafnframt sé unnið við stækkun ofanvatnstjarnar milli Breiðholtsbrautar og Ögurhvarfs. Ofanvatni verður veitt í hana af stækkuðu vegyfirborði. „Á nýjum Arnarnesvegi, milli Vatnsendavegar og Rjúpnavegar, er unnið við frágang vegfláa, veglýsingar og vegriða.“ Þá kemur fram að vinna við frágang nýrra undirganga á Arnarnesvegi norðan við Rjúpnaveg sé á lokametrunum. „Áformað er að opna göngu- og hjólastígana fyrir umferð fyrstu vikuna í nóvember. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar, hraðatakmarkanir og sýna aðgát við framkvæmdasvæðið.“
Vegagerð Samgöngumál Kópavogur Reykjavík Skipulagsmál Umferð Göngugötur Hjólreiðar Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Sjá meira