Innlent

„Auð­vitað alltaf erfitt að koma að svona vett­vangi“

Tómas Arnar Þorláksson og Freyja Þórisdóttir skrifa
Mikið viðbragð var á Reykjavíkurflugvelli í gær þegar tvær sjúkraflugvélar Norlandair lentu með fólk sem slasaðist á Jökuldalsheiða. Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi, ræddi við fréttastofuna um starf á vettvangi slyssins.
Mikið viðbragð var á Reykjavíkurflugvelli í gær þegar tvær sjúkraflugvélar Norlandair lentu með fólk sem slasaðist á Jökuldalsheiða. Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi, ræddi við fréttastofuna um starf á vettvangi slyssins. Vísir/Anton Brink/Einar

Mikill fjöldi fólks kom að aðgerðum á Jökuldalsheiði í gær þegar fjögurra bíla árekstur varð við Háreksstaðakvísl. Það voru meðal annars aðilar frá björgunarsveitunum, Landhelgisgæslunni, lögreglunni, Rauða krossinum og slökkviliðinu sem sinntu viðbragðinu. Tveir létust í slysinu og tveir voru fluttir alvarlega slasaðir til Reykjavíkur og eru þungt haldnir.

Starf á vettvangi stóð yfir meira og minna allan daginn og lauk ekki fyrr en undir kvöld en þá lauk rannsóknarvinnu á slysstað. Rauði krossinn hafi verið meðal þeirra sem voru kallaðir á staðinn til að sinna sálgæslu, bæði fyrir þá sem lentu í slysinu og þá sem sinntu hlutverki í björgunaraðgerðunum á staðnum.

„Við reyndum að aðstoða og halda utan um alla sem komu að eins vel og hægt var,“ segir Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi, í samtali við fréttastofu.

Það hafi legið mjög fljótlega fyrir að slysið væri alvarlegt og viðbragðið eftir því. Enn liggi ekki fyrir hvernig akstursskilyrði voru á veginum í gær en það hafi ekki virst við fyrstu sýn að það væri neitt sérstakt á vegi, svo sem hálka.

„Það er auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi en vettvangsvinnan gekk vel miðað við þá áætlun sem var virkjuð og þann fjölda sem kom að þessu,“ segir Kristján en hann telji sjálfa verkferla hafa verið vel úr garði gerða „þó að afleiðingar slyssins hafi verið hörmulegar.“

Samkvæmt sjónarvotti átti slysið sér stað uppi á Jökuldalsheiði þar sem ein bifreið sást utan vegar og önnur á hvolfi. Alls voru átta um borð í bifreiðunum tveimur en þeir látnu voru erlendir ferðamenn á sjötugsaldri.


Tengdar fréttir

Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir

Hópslysaáætlun var virkjuð á Austurlandi vegna fjögurra bíla áreksturs á Jökuldal við Háreksstaðakvísl í dag. Tilkynnt var að átta væru um borð í bifreiðunum og einhverjir alvarlega slasaðir. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar, björgunarsveitarmenn, lögregla, sjúkralið og Rauði krossinn taka þátt í aðgerðum. Slysið er talið alvarlegt. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×