Handtekinn grunaður um að beita piparúða Eiður Þór Árnason skrifar 3. október 2026 08:05 Ljósmyndin er úr safni. Alls voru 78 mál skráð í kerfi lögreglu frá klukkan 17 í gær til 5 í morgun. Vísir/Kolbeinn Tumi Óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna slagsmála og einn handtekinn, meðal annars grunaður um að beita piparúða. Sá var vistaður í fangageymslu á grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Þetta segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en atvikið kom inn á borð stöðvar sem sinnir miðborg, vesturbæ Reykjavíkur og Seltjarnarnesi. Lögreglan var einnig kölluð til vegna líkamsárásar fyrir utan skemmtistað í miðborginni og vegna einstaklings sem var í taki dyravarða í aðskildu máli. „Sá reyndist hafa vera til ama og að veitast að fólki. Sá neitaði að segja til nafns að kröfu lögreglu og var því vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. Fundu kannabislykt Ökumaður bifreiðar var stöðvaður við almennt umferðareftirlit og sá grunaður um að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna og lyfja, aka bifreið á göngugötu, aka sviptur ökuréttindum og vörslu fíkniefna. Hann var látinn laus að lokinni blóðsýnatöku. Þá fóru lögreglumenn á vettvang í kjölfar hávaðakvörtunar og fundu þar megna kannabislykt, að því er fram kemur í tilkynningu. Þrír einstaklingar hafi svo verið handteknir grunaðir um sölu og dreifingu fíkniefna. Allir voru þeir vistaðir í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. Aðstoðar lögreglu var sömuleiðis óskað þegar tilkynnanda grunaði að ökumaður bifreiðar væri undir áhrifum fíkniefna. Ökumaðurinn var stöðvaður og reyndist sá grunur réttur, að sögn lögreglu. Einnig eru ökumaðurinn og farþegi bifreiðarinnar grunaðir um nytjastuld sem og vörslu fíkniefna. Voru báðir vistaðir í fangageymslu. Fleiri ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um að aka undir áhrifum í gærkvöld og nótt. Níu gistu fangageymslur á höfuðborgarsvæðinu í morgun. Fréttin hefur verið uppfærð.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Fleiri fréttir Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Sjá meira