Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Andri Broddason skrifar 1. október 2026 22:32 Hákon Daði var alvarlegur þrátt fyrir stórsigur á Fram. Anton/Vísir Afturelding valtaði yfir Fram í Lambhagahöllinni í kvöld. Hákon Daði Styrmisson, hornamaður Aftureldingar, skoraði 17 mörk í átján marka sigri liðsins. Lokatölur 24-42 fyrir gestunum úr Mosó.
Hákon Daði var þó ekki sigurreifur eftir leikinn og talaði af mikilli alvöru um frammistöðu og hugarfar sem væri verið að rækta í hans liði. „Burt séð frá burstinu, þá erum við bara að einbeita okkur að okkur sjálfum. Við erum að vinna í hlutum hjá okkur og það sást kannski í dag að sama hver staðan er þá þarf bara að halda áfram. Sama hvort við erum að tapa með tíu, jafn leikur, vinna með tíu, það á bara alltaf að vera eins. Þeir sem eru inn á eru bara á fullu,“ sagði Hákon Daði og hélt áfram. „Við erum með prinsipp, við erum með reglur, það á ekki að gleyma sér og við þurfum að halda í fókusinn ef við ætlum að halda áfram að byggja á þessu eins og við erum að gera. Þá þarf þetta að vera í lagi sama hver staðan er.“ Hákon Daði skoraði 17 mörk í leiknum sem komu í öllum regnbogans litum. Var hann kominn með 15 mörk þegar u.þ.b. korter var eftir af leiknum og var Hákon Daði þá settur í stöðu leikstjórnanda, en Hákon Daði er hornamaður. Var vart hægt að sjá annað en að það ætti að koma Hákoni Daða í fleiri skotstöður með þessu til þess að skora fleiri mörk. Hákon gaf þó lítið fyrir markagræðgina. „Ef ég er inn á þá langar mér að hjálpa liðinu og ég geri það best með því að skora mörkin.“ Hákon Daði skipti yfir í Aftureldingu í sumar eftir að hafa verið hjá sínu uppeldisfélagi síðari hluta síðasta tímabils eftir að hafa komið heim úr atvinnumennsku. Aðspurður út í það hvernig það væri að vera kominn í Aftureldingu og hvernig fyrstu mánuðirnir hafa verið, þá hafði Hákon Daði þetta að segja. „Það er bara fínt. Fullt sem hægt er að laga, fullt sem hægt er að bæta og betrumbæta. Það er margt gott sem við erum að gera. Standardinn þarf að vera hærri, bæði hjá okkur og hjá félaginu, sem við erum að vinna í. Eins og ég segi, við þurfum að halda áfram að gera það sem við erum að gera,“ sagði Hákon Daði að lokum.
Olís-deild karla Handbolti Afturelding Fram Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira