Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Agnar Már Másson skrifar 1. október 2026 19:01 Grunur leikur á um skipulag hryðjuverks. Neyðarástandi var lýst yfir og öryggisráðstafanir í herstöðinni auknar til muna þegar atvikið átti sér stað. Embættismenn töluðu um að komið hefði verið í veg fyrir hörmulega atburði. Getty Bresk-íranskur ríkisborgari hefur verið handtekinn í Bretlandi þar sem hann er grunaður um að skipuleggja hryðjuverk í tengslum við atvik við RAF Fairford-herstöðina um helgina. Breskir og bandarískir ráðamenn hafa sakað írönsk stjórnvöld um aðkomu að atvikinu en þau þvertekið fyrir það.
Þetta hefur breska ríkisútvarpið eftir hryðjuverkadeild lögreglunnar á Bretlandi en þar segir að 27 ára karlmaður sem sé bæði með breskt og íranskt ríkisfang hafi verið handtekinn í Westminster í London. Annar breskur ríkisborgari, 26 ára að aldri, hafi einnig verið yfirheyrður vegna málsins auk þess sem lögreglan hafi ráðist í húsleit á tveimur stöðum á svæðinu. Fimm ungir karlmenn voru handteknir á sunnudag í tengslum við atvikið en þeim hefur verið sleppt gegn tryggingu. Þeir eru allir breskir ríkisborgarar frá London. Hryðjuverkalögreglan kveðst kanna „alla mögulega anga málsins, þar á meðal aðkomu erlendra ríkja“ að því er lögregluþjónninn Vicki Evans segir við BBC. Breski forsætisráðherrann Andy Burnham sagði í gær að sterkar vísbendingar væru fyrir því að írönsk stjórnvöld hefðu átt þátt í atvikinu en gaf ekki frekari skýringar. Stjórnvöld í Teheran hafa aftur á móti harðneitað því að hafa komið að atvikinu. „Rannsóknin á aðstæðum er varðar atburðina í Glósturskíri er gríðarlega flókin og teymi sérfræðinga á okkar snærum kannar nú margar hliðar á rannsókninni.“ Mennirnir fimm voru handteknir um sunnudagsmorgun eftir að tilkynning barst um „þrjár grunsamlegar bifreiðar“ sem ekið væri í átt að herstöð sem Bandaríkjaher heldur úti við Fairford. BBC hefur eftir heimildum að einn mannanna hafi sjálfur hringt á bresku neyðarlínuna um klukkustund áður en bóndi úr nærsveitum flugvallarins hafði samband við lögregluna til að tilkynna um „stóran hóp“ grímuklæddra manna nálægt bílunum. Fimmenningarnir eru á aldrinum 23 til 25 ára. Þeir voru handteknir vegna gruns um brot er varða sprengjuefni en síðan snerist grunurinn að meintu skipulagi hryðjuverks. Þeim var sleppt gegn tryggingu á mánudag. Lögregla segir að umfangsmikið magn af bensíni hafi fundist í bílum nálægt svæðinu, en engin sprengitæki. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur sagt ljóst að erlendir aðilar hafi komið að atvikinu við herstöðina en á síðustu mánuðum hafa sprengjuþotur Bandaríkjahers á leið til Mið-Austurlanda tekið á loft frá herstöðinni, samkvæmt samþykki breskra stjórnvalda.
Bretland Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Hernaður Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira