Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Magnús Jochum Pálsson skrifar 1. október 2026 12:13 Lil Wayne og Madison Cannon eru trúlofuð að sögn rapparans. Rapparinn Lil Wayne hefur staðfest að hann sé trúlofaður 23 ára áhrifavaldinum Madison Cannon en 21 ár skilur parið að. Dægurmálamiðlar fjölluðu um trúlofunina fyrr á árinu en rapparinn þvertók fyrir það í sumar og sagði leiðir hafa skilið hjá parinu.
Lil Wayne, sem heitir réttu nafni Dwayne Michael Carter Jr., virtist staðfesta trúlofunina í myndbandi sem birtist á Instagram-síðu rapparans B.G. í gær en þeir voru saman í rappsveitinni Hot Boyz í kringum aldamótin. Myndbandið sýnir FaceTime-spjall milli Wayne og B.G. þar sem sá fyrrnefndi óskar þeim síðarnefnda til hamingju með trúlofun hans. „Til hamingju tík,“ segir Wayne í spjallinu, bendir á Cannon sem birtist þá í mynd og bætir við: „Og ég ætla að giftast þessari, þetta er Madison.“ „Þetta er unnusta mín,“ bætir Wayne síðan við og segir: „Og til hamingju. Láttu okkur vita hvaða lit við eigum að klæðast. Ég er svaramaðurinn, heyrirðu það? Elska þig tík.“° View this post on Instagram A post shared by New Instagram OFFICIAL✔️ (@new_bghollyhood) Staðfesting Wayne á trúlofuninni kemur aðeins nokkrum mánuðum eftir að hann neitaði því að hann væri trúlofaður. „Nei, ég er ekki trúlofaður. Ég átti mjög fallegt samband með æðislegri manneskju en augljóslega vegna lögmætis hitans í klikkuðum heimi og kúltúr nútímans, þá hugsaði ég að ég vildi ekki vera byrði á svona æðislegri manneskju. Svo við ákváðum að hætta saman,“ sagði Wayne í beinu streymi á samfélagsmiðlum í júlí. Dægurmálamiðillinn TMZ hafði þá þegar greint frá því í maí að Wayne hefði trúlofast konu á þrítugsaldri frá Indiana en sú lýsing passar við Cannon. Madison og Wayne hafa verið saman í einhverja mánuði. Wayne hefur í gegnum árin vakið athygli fyrir sambönd sín. Hann var síðast í sambandi með fyrirsætunni Denis Bidot en hún hélt því fram í maí 2025 að Wayne hefði hætt með sér og sparkað henni og dóttur hennar á götuna á mæðradaginn. Jafnframt hélt Bidot því fram að Wayne hefði lagt á hana hendur. Wayne hefur einu sinni áður verið giftur fjölmiðlafígúrunni Antoniu „Toyu“ Johnson frá 2004 til 2006 og eiga þau eina dóttur saman, Reginae Carter. Auk þess á hann þrjú önnur börn úr þremur öðrum samböndum, soninn Dwayne Michael Carter III með útvarpskonunni Sarah Vivan, soninn Kameron Carter með leikkonunni Lauren London og soninn Neal Carter með söngkonunni Niveu. Lítið er vitað um núverandi unnustuna, Madison Cannon, nema að hún er 23 ára, er áhrifavaldur með um 79 þúsund fylgendur á Instagram og kemur frá borginni Kokomo í Indiana-ríki. View this post on Instagram A post shared by MadiK (@xomadik)
Ástin og lífið Trúlofun Bandaríkin Hollywood Tónlist Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Sjá meira