Íslenska landsliðið í bakgarðshlaupum klárt Aron Guðmundsson skrifar 27. september 2026 11:00 Þorleifur Þorleifsson, Mari Järsk og Þórdís Ólöf eru þeir hlauparar í núverandi íslenska landsliðinu sem hafa hlaupið lengst. Vísir/Samsett Íslenska landsliðið í bakgarðshlaupum hefur verið valið fyrir HM sem fer fram í næsta mánuði. Íslandsmethafinn Þorleifur Þorleifsson er í liðinu og einnig er þar að finna hlaupadrottninguna Mari Järsk.
Fimmtán hlauparar munu hlaupa fyrir Íslands hönd á HM landsliða sem hefst þann 17. október næstkomandi í 74 löndum. Íslenska landsliðið mun hlaupa sína bakgarðshringi í Elliðaárdalnum og verður sýnt beint frá keppninni hér á Vísi. Hlaupararnir sem skipa landslið Íslands í bakgarðshlaupum. Valið er í landsliðið út frá árangri bakgarðshlauparanna árin 2024 til 2026. Íslandsmethafinn Þorleifur Þorleifsson er þar fyrstur á blað á sínu Íslandsmeti, 62 hringum (415,4 km), sem hann setti einmitt í Elliðaárdalnum árið 2024. Hlaupadrottningin Mari Järsk, sem eignaðist sitt fyrsta barn í sumar, hefur einnig ákveðið að taka slaginn með landsliðinu. Mari tryggði sér sæti í keppninni með bakgarðshlaupi upp á 50 hringi en besti árangur hennar í bakgarðshlaupi eru 57 hringir. Önnur kunnugleg nöfn er að finna í landsliðshópi Íslands eins og Þórdísi Ólöfu Jónsdóttur sem vann bakgarðshlaupið í Öskjuhlíðinni í sumar. Landsliðshópur Íslands (Besti árangur) : Þorleifur Þorleifsson (62 hringir) Mari Järsk (57 hringir) Þórdís Ólöf Jónsdóttir (44 hringir) Guðjón Sigurðsson (43 hringir) Guðmundur Lúther Hallgrímsson (43 hringir) Sylwester Kalucki (40 hringir) Gunnar Lárus Karlsson (39 hringir) Tómas Þór Jacobsen (38 hringir) Sölvi Snær Egilsson (35 hringir) Adam Komorowski (34 hringir) Friðrik Benediktsson (33 hringir) Þuríður Elín Þórarinsdóttir (33 hringir) Hekla Hannesdóttir (33 hringir) Oddur Máni Malmberg (31 hringur) Hildur Guðný Káradóttir (30 hringir) Ræst verður út í HM hlaupið á sama tíma í hverju landi fyrir sig og þó hver og einn hlaupari stefni að einhverju persónulegu markmiði er það samanlagður hringjafjöldi hvers lands fyrir sig sem gildir þegar að úrslitin ráðast. Belgía er ríkjandi heimsmeistari í Bakgarðshlaupum en Ísland náði flottum árangri á síðasta HM árið 2024 og endaði í fjórtánda sæti af 63 þjóðum sem skráðar voru til leiks. Það var í þeirri keppni sem Þorleifur Þorleifsson setti ríkjandi Íslandsmet upp á 62 hringi.
Bakgarðshlaup Hlaup Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Fleiri fréttir FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Ísland missti af verðlaunum með minnsta mögulega mun Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sjá meira