Verkefnið sem hófst á Twitter stækkað umtalsvert Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 19. september 2026 15:00 Um 2.400 þátttakendur frá yfir 150 skólum um allt land sækja nú rafræna ráðstefnu um skólamál. Verkefnið hófst með samtali kennara á samfélagsmiðlinum Twitter en hefur vaxið gríðarlega á undanförnum árum.
Ráðstefnan er á vegum Utís sem er lærdómsfélag brautryðjenda í kennsluháttum og hlaut verkefnið hvatningarverðlaun íslensku menntaverðlaunanna árið 2020. Björn Kristjánsson er framkvæmdastjóri verkefnisins. „UTÍS var fyrst haldið árið 2015 og það var í rauninni þá bara svona hópur kennara sem hafði verið að tengjast og eiga samtöl um kennslu og skólamál í gegnum Twitter sem langaði til að hittast í raunheimum.“ Fjöldi fólks sótti ráðstefnuna sem fram fór í Hveragerði í fyrra en þar var þessi mynd tekin.aðsend Bauð fólki í Skagafjörðinn Stofnandi verkefnisins var á þeim tíma búsettur á Sauðárkróki og bauð kennurum og öðrum úr menntastéttinni að eiga samtal um skólamál. „Til þess að deila hugmyndum og því sem hafði verið að virka vel í kennslustofunni hjá fólki, þannig það er í rauninni svona kjarninn í UTÍS og það sem við höfum reynt að halda í alla tíð er að þetta sé búið til af kennurum og skólafólki fyrir kennara og skólafólk.“ Þá mættu þrjátíu manns. Nú nokkrum árum seinna taka 2.400 manns þátt í ráðstefnunni um helgina. Fyrirlestrar eru í boði frá skólafólki alls staðar að úr heiminum. Kennarar hafa margir komið saman í svokölluðum þátttökupartíum þar sem umræður fara fram. Markmiðið sé að efla fagvitund kennara. „Og veita þeim fleiri og fjölbreyttari bjargir til að takast á við þau ótal verkefni sem bíða kennurum á hverjum degi inni í skólanum. Það er bara risa menntahelgi hjá langflestum sem starfa að skólamálum á Íslandi núna þessa helgina.“ Skólafólk í verklegu starfi á ráðstefnunni í fyrra.aðsend
Skóla- og menntamál Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira