„Þetta snýst um fullveldi“ Samúel Karl Ólason skrifar 17. september 2026 10:52 Mark Carney á Evrópuþinginu í morgun. AP/Pascal Bastien Dýpra samstarf Kanada og Evrópu er nauðsynlegt til að sporna gegn því að stærri og öflugri ríki grafi undan fullveldi smærri þjóða. Þetta sagði Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, í ræðu sem hann hélt á Evrópuþinginu í morgun. Þar tók hann vel í tillögu um að Kanada yrði fyrsta ríkið til að hljóta aukaaðild að Evrópusambandinu.
Í ræðunni ítrekaði Carney að þessu aukna samstarfi væri ekki ætlað að standa gegn öðrum stórveldum. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í gærkvöldi að möguleg aukaaðild Kanada að ESB gæti verið ógn gegn Bandaríkjunum og hótaði að beita umfangsmiklum tollum og viðskiptabönnum til að koma í veg fyrir það. Það er að segja, ef hann áliti þetta „fjandsamlegt“ gagnvart Bandaríkjunum. Að undanförnu hefur Carney farið um víðan völl í leit að nýjum vinum, vegna aðgerða og viðskiptastríðs Trumps gegn Kanada, sem segist vilja gera Kanada að 51. ríki Bandaríkjanna. Sjá einnig: Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Carney sagði í ræðu sinni, þar sem hann flakkaði milli frönsku og ensku, að það sem hann hefði í huga væri aukið samstarf þegar kemur að viðskiptum, mikilvægum málmum, gervigreind, orkuöflun, geimmálum, rannsóknum og fjármálakerfum. Þannig væri hægt að auka sjálfstæði bæði Evrópusambandsins og Kanada og verja bæði gegn utanaðkomandi áhrifum og þrýstingi. „Ég er ekki að boða þriðju blokkina til að keppa við stórveldin, einungis með meiri kurteisi,“ sagði Carney. „Við sækjumst ekki eftir því að drottna yfir öðrum.“ Carney kallaði eftir frjálsum ferðalögum milli ESB og Kanada og ungt fólk beggja vegna Atlantshafsins gætu valið hvar það stundaði nám, ynni og byggi. „Saman geta Kanada og Bandaríkin fest í grunni gildi okkar og myndað varnarhjúp um borgara okkar svo þeir fái að blómstra,“ sagði Carney. „Þetta snýst um fullveldi, um getu okkar til að lifa eins og við viljum. Þetta snýst um þau frelsi sem við þurfum að berjast fyrir á hverjum degi. Fullveldi krefst þrautseigju. Getunnar til að standast áföll.“ Þá sagði Carney að bandalag Kanada og ESB myndi vera leiðarljós fyrir önnur lýðræðisríki. Bandalagið yrði ekki skilgreint af því sem það stæði gegn, heldur þeim gildum sem það stæði fyrir: Frelsi, samstöðu og velmegun. Ræðu Carney má sjá í spilaranum hér að neðan.
Kanada Evrópusambandið Donald Trump Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira