Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Hótel- og matvælaskólinn 16. september 2026 14:24 Hótel- og matvælaskóli Menntaskólans í Kópavogi hélt upp á 30 ára afmæli skólans fyrr í þessum mánuði. Aðsókn fór fram úr björtustu vonum og boðið var upp á ýmsa skemmtilega og áhugaverða viðburði. Frá vinstri eru Haraldur Jóhann Sæmundsson, framkvæmdastjóri skólans, og Björn Skúlason, forsetaherra. Myndir/Rúnar Hreinsson. Það var heldur betur líf og fjör í Hótel- og matvælaskóla Menntaskólans í Kópavogi á dögunum þegar 30 ára afmæli skólans var fagnað. Húsið fylltist af gestum og segir Haraldur Jóhann Sæmundsson, framkvæmdastjóri skólans, að aðsóknin hafi farið fram úr björtustu vonum. „
Það er erfitt að nefna eitt atriði sem stóð upp úr því dagurinn varð mun stærri og glæsilegri en ég þorði að vona. Ef ég ætti þó að velja eitt væri það hversu vel allir skemmtu sér og hversu góð stemningin var,“ segir Haraldur. Undirbúningur afmælisins hafði staðið yfir frá því síðasta vor og lagði starfsfólk skólans mikla vinnu í hátíðina. Fjölmargir samstarfsaðilar lögðu einnig hönd á plóg. „Við erum svo heppin að fyrirtæki, sendiráð, hagaðilar, landslið og fleiri eru ávallt tilbúin að taka þátt í öllu með okkur,“ segir Haraldur. Allt frá gúrkuskurði til kleinuhringja Það var enda nóg um að vera. Gestir gátu rölt um matarmarkað og kynnt sér ólík fyrirtæki, bragðað á ýmsu góðgæti og fylgst með fjölbreyttum keppnum. Arctic Young Chef-keppnin stóð yfir allan daginn en einnig var keppt í gúrkuskurði, rófukrulli og kleinuhringjagerð. Þá voru japönsk matreiðslunámskeið í boði. Haraldur segir sérstaklega ánægjulegt að hafa séð atvinnulífið, skólann og matvælageirann koma saman undir einu þaki. Samstarfið við atvinnulífið sé jafnframt mikilvægur þáttur í áframhaldandi þróun námsins og því markmiði að fjölga nemendum og styrkja fagið. Nóg fram undan Þótt afmælisveislan sé að baki verður enginn skortur á lífi í skólanum í vetur. Hádegis- og kvöldverðaræfingar verða á sínum stað ásamt hrekkjavökubakaríi. Í október fara síðan fram forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina og EuroSkills og Kornax-nemakeppnin í bakstri. Þá æfir landslið kjötiðnaðarmanna í húsnæði skólans fyrir stærstu keppni liðsins til þessa, sem fram fer í Ástralíu árið 2028. Hóte „Það er alltaf eitthvað skemmtilegt í gangi í Hótel- og matvælaskólanum,“ segir Haraldur. Rúnar Hreinsson ljósmyndari var á staðnum og tók nokkrar skemmtilegar myndir.
Matur Mest lesið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Áskorun Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hræðilegir dagar í Partylandi Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Prótein á að vera í forgangi Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Sjá meira