Sport

Bjargaði mót­herja sínum úr logandi bíl

Andri Broddason skrifar
Harður árekstur var í Kína og var ökumanni bjargað úr eldsvoða.
Harður árekstur var í Kína og var ökumanni bjargað úr eldsvoða. GT Championship

Óhuggnalegt atvik gerðist í GT-mótaröðinni þar sem kappaksturinn var í Kína um helgina þegar stór eldur kom upp eftir harðan árekstur. Ökumaður náði að bjarga mótherja sínum úr logandi bílnum.

Stór þriggja bíla árekstur varð í GT3-kappakstri í Kína sem var haldinn á Shanghai International-brautinni sem er sama braut og Formúla 1 keppir á. Þegar um 20 mínútur voru búnar af kappakstrinum misstu tveir ökumenn stjórn á bílum sínum og endaði annar þeirra í hlið bíls Ollie Millroy sem var rétt fyrir framan.

Við það kviknaði í bílnum og hann snérist í átt að brautarhandriðunum. Ökumaðurinn Loek Hartog sá þetta og stöðvaði bílinn sinn strax og hljóp til þess að slökkva eldinn sem var í bílnum. Eftir það dró hann Millroy úr bílnum sem sést seinna vera að jafna sig með aðstoð lækna.

Millroy braut fimm rifbein ásamt fleiri beinbrotum en þakkaði Hartog fyrir að bjarga lífi sínu. Það er ekki sjálfsagt að ökumaður stoppi sjálfur sína keppni til þess að bjarga öðrum en Hartog gerði það og var það ástæðan fyrir því að áreksturinn endaði ekki verr.

Loek Hartog skrifaði um atvikið á Instagram-hringrás sinni í gær og fann á sér að atvikið hafi verið slæmt eftir að hafa séð eldinn.

„Þegar ég sá að bíllinn var að verða alelda, var engin ákvörðun til að taka. Miðað við það sem ég sá var ég ekki viss um að ökumaðurinn gæti komist sjálfur úr bílnum svo ég stoppaði og fór að bílnum.“

Atvikið má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×