Upp­gjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sann­færandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons

Hjörvar Ólafsson skrifar
Brynjar Narfi Arndal snýr boltann framhjá Sigurði Dan Óskarssyni. 
Brynjar Narfi Arndal snýr boltann framhjá Sigurði Dan Óskarssyni.  Vísir/Pawel

FH bar sigurorð af Stjörnunni, 38-31, í leik liðanna í fyrstu umferð Olís-deildar karla í handbolta í Kaplakrika í kvöld. 

Heimamenn hófu leikinn af miklum krafti og voru komnir 5-1 yfir eftir rúmlega fimm mínútna leik. Vörn FH var firnasterk frá upphafi til enda leiksins og þar fyrir aftan var Jón Þórarinn Þorsteinsson í miklum ham. 

Sóknarleikur FH gekk eins og vel smurð vél og um leið og liðið fann veikleika á Stjörnuvörninni var hamrað á það heita járn aftur og aftur. 

Ómar Darri Sigurgeirsson hamrar boltanum í netið. Vísir/Pawel

Til þess að bæta gráu ofan á svart hjá Stjörnunni missti liðið Tóka Friðriksson og Tandra Má Konráðsson af velli þar sem þeim var vísað af velli með rauðu spjaldi í fyrri hálfleik. 

Stjörnumenn komu þó grimmir inn í seinni hálfleikinn og gestirnir náðu að minnka muninn í tvö mörk, 22-20, en þá hertu FH-ingar aftur tökin í varnarleik sínum og flæðið í sóknarleiknum varð betra. 

Niðurstaðan var öruggur sjö marka sigur FH en lokatölur urðu 38-31 heimamönnum í vil. 

Aron Pálmarsson á hliðarlínuni í leiknum í kvöld. Vísir/Pawel

Aron Pálmarsson: Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mest

„Það gladdi mig mikið að sjá Jón Þórarinn í þessum ham og hvað sóknarleikurinn gekk smurt. Við herjuðum á tvistana og þristana hjá þeim og það gekk vel. 

Góður leikstjórnandi heldur áfram að spila sama kerfi ef það gengur vel og ég var ánægður að sjá okkur spila upp á það sama þegar við sáum að það gekk upp,“ sagði Aron Pálmarsson, þjálfari FH, að leik loknum.

„Jón Þórarinn þarf að axla stærri ábyrgð í ljósi meiðsla Daníels Freys og það var gaman að sjá hann gera það með glæsibrag í kvöld. Ólafur Rafn hefur líka komið vel inn í þetta á æfingum og æfingaleiknum í aðdraganda þessa leik og ég er mjög sáttur við þetta par,“ sagði Aron enn fremur. 

„Það var mikil spenna fyrir þessum leik hjá leikmönnum og þjálfarateyminu. Við erum með stóran hóp og við fengum framlag úr mörgum áttum. Orkustigið var gott allan leikinn og það er jákvætt. Nýju leikmennirnir eru að gelast betur og betur við hópinn en það er ýmislegt sem þarf enn að fínpússa, eðlilega,“ sagði hann um lærisveina sína. 

Sverrir Eyjólfsson: Megum illa við skakkaföllum hjá í miðjublokkinni

„Þetta var kaflaskipt frammistaða og slæm færanýting, sérstaklega í seinni hálfleik varð okkur að falli. Við fórum aðeins út úr leikplaninu á þeim tímapunkti og fengum verri færi sem við nýttum svo illa,“ sagði Sverrir Eyjólfsson, þjálfari Stjörnunnar, að leik loknum.

„Við erum þunnskipaðir og megum illa við því að missa tvo lykilleikmen í varnarleiknum á sama tíma. Mér fannst rauða spjaldið sem Tandri Már fékk frekar soft. Kannski er ég af gamla skólanum en mér finnst allt í lagi að leyfa mönnum að takast aðeins á án þess að vera refsað með rauðu spjaldi,“ sagði Sverir þar að auki. 

„Það voru kaflar í leiknum þar sem við spiluðum vel og það er margt jákvætt sem við getum tekið út úr þessum leik þrátt fyrir tapið. Við vorum góðir á báðum endum vallarins í upphafi seinni hálfleiks og með betri aga hefðum við getað snúði taflinu okkur í vil,“ sagði hann. 

„Við erum með marga nýja leikmenn og nýtt þjálfarateymi og það mun þurfa einhvern tíma til þess að slípa okkar leik betur saman. Nú bara förum við hvað þarf að laga og leggjum áherslu á það í æfingavikunni fyrir næsta leik,“ sagði Sverrir um stöðu mála. 

Sverrir Eyjólfsson fylgist íbygginn með leiknum. Vísir/Pawel

Atvik leiksins

Sóknarleikur FH var vel útfærður og mörg mörk sem komu eftir vel útfærð kerfi liðsins. Það var alveg sama hvaða leikmenn komu inn, liðið var það vel drillað að allir leikmenn nutu sín til hins ítrasta í þeim aðgerðum sem farið var í. 

Stjörnur og skúrkar

Jón Þórarinn skellt í lás í þessum leik og þegar upp var staðið hafði hann varið 23 skot eða 43 prósent þeirra skota sem komu á markið hjá honum. 

Margir leikmenn FH lögðu lóð á vogarskálina en Símon Michael Guðjónsson og Leonharð Þorgeir Harðarson nutu góðs af sterkum varnarleik og nýttu færi sín vel í hraðaupphlaupum. 

Antoine Óskar Pantano, Brynjar Narfi Arndal og Ómar Darri Sigurgeirsson skoruðu svo fimm mörk hver. 

Hjá Stjörnunni var Ísak Logi Einarsson markahæstur með átta mörk. 

Jón Þórarinn Þorsteinsson skellti lás í marki FH. Vísir/Pawel

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir Árni Snær Magnússon og Þorvar Bjarmi Harðarson, höfðu góð tök á þessum leik og fá sjö í einkunn fyrir gott kvöldverk sitt. 

Stemming og umgjörð

Umgjörðin í kringum leikinn var til fyrirmyndar eins og að vanda í Kaplakrika. Glaðbeitt og glæsileg snót færði blaðamanni rjúkandi pitsu og Pepsi Max og þá var nammi á boðstólnum sem blaðamaður gat ekki staðist freistinguna að borða. Þétt setið í stúkunni og góð stemming.

Símon Michael Guðjónsson var atkvæðamestur hjá FH-liðinu. Vísir/FH

Leonharð Þorgeir Harðarsson nýtti færin sín vel. Vísir/Pawel

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira