Innlent

Hvetur al­menning til að vara sig á gerviaðgöngum

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Magni R. Sigurðsson forstöðumaður CERT-IS segir sveitina fylgjast grannt með stöðunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Magni R. Sigurðsson forstöðumaður CERT-IS segir sveitina fylgjast grannt með stöðunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Vísir/Vilhelm

Netöryggissveitin CERT-IS fylgist grannt með notkun gerviaðganga á samfélagsmiðlum nú þegar styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við ESB. Tilgangur þeirra er að ýta undir upplýsingaóreiðu að sögn forstöðumanns sem hvetur almenning til að vera á varðbergi.

Nú eru aðeins fimm dagar í þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið en það sést glögglega á samfélagsmiðlum líkt og Facebook þar sem mikil umræða fer nú fram um málið. Þar má sjá töluverðan fjölda gerviaðganga sem líta út líkt og þar sé raunverulegt fólk á ferðinni en aðgangarnir eru nýttir til að rita athugasemdir í áróðursskyni undir færslur sem tengjast þjóðaratkvæðagreiðslunni. Magni R. Sigurðsson forstöðumaður netöryggssveitarinnar CERT-IS segir sveitina fylgjast grannt með þróun mála næstu daga.

„Markmiðið með þessum bottum er náttúrulega að ýta undir upplýsingaóreiðu og reyna að hafa áhrif á ákveðnar skoðanir og fleira. Og á bak við þessa botta geta verið í rauninni bara einstaklingar eða samtök eða önnur öfl, þannig það er mikilvægt að bregðast við þessu.“

Mikilvægt sé að gera greinarmun á slíkum bottum og öðrum fölsuðum aðgöngum á samfélagsmiðlum. Sveitin hafi ekki merkt stóra bylgju á notkun botta líkt og í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga en sveitin fylgist með stöðunni ásamt greiningardeild ríkislögreglustjóra og Netvís. 

„Það er kannski líka mikilvægt að gera greinarmun á hvað eru bottar og hvað getur í raun verið bara falskur aðgangur sem er stofnaður af samfélagsmiðlum sem nýtir hann til að skýla sér á bakvið. Bottarnir eru að vinna sjálfvirkt.“

Magni hvetur almenning til þess að skoða samfélagsmiðla þessa dagana með gagnrýna hugsun að vopni.

„En við að sjálfsögðu fylgjusmt vel með og eins og ég segi þá hvet ég almenning til að tilkynna í gegnum gátt Netvís og það er einnig mikið af góðum fróðleik inni á heimasíðu Netvís um hvernig má þekkja þessa botta og annað efni í kringum upplýsingaóreiðu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×