Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Jón Þór Stefánsson skrifar 23. ágúst 2026 10:16 Davíð Þór og Steinn Ármann brugðu sér í mörg hlutverk í Radíusbræðrum. „Engin orð. Bara sorg,“ skrifar Séra Davíð Þór Jónsson um fregnir af andláti Radíusbróður síns, Steins Ármanns Magnússonar. Hann hefur ekki fleiri orð um dánarfregnina í stuttri færslu á Facebook að sinni, en fjöldi fólks vottar honum samúð sína í athugasemdakerfinu.
Greint var frá því í morgun að Steinn Ármann hefði andast að heimili sínu í Hafnarfirði síðastliðinn föstudag, 21. ágúst 2026, á 62. aldursári. Steinn var annar helmingur gríntvíeykisins Radíusbræðra, en Davíð Þór var hinn helmingurinn. Báðir voru þeir Hafnfirðingar, og höfðu starfað saman í hljómsveitinni Kátum piltum. Radíusbræður slógu í gegn á tíunda áratug síðustu aldar. „Þeir þóttu þá ferskir og með nýja grínnálgun sem var í grófara lagi en féll í góðan jarðveg, einkum hjá ungu fólki,“ segir í umfjöllun Glatkistunnar um tvíeykið. Þeir vöktu athygli bæði með uppistandi, og í útvarpi og sjónvarpi. Fyrst munu þeir hafa komið fram á ljósvakamiðlum í útvarpsþættinum Radíus á Aðalstöðinni. „Ég var byrjaður að vera með uppistand svona í anda Eddie Murphy og fleiri góðra. Mér var svo boðið að vera með útvarpsþátt á Aðalstöðinni. Ég fékk Davíð Þór með mér í það líka og þá varð til útvarpsþátturinn Radíus sem gekk í 3-4 ár og var óskilgetið foreldri Górillunnar sem var morgunþáttur á Aðalstöðinni og X-inu. Þetta var svona útvarpstímabilið og þá hafði ég engan áhuga á að vera í leikhúsinu,“ sagði Steinn Ármann um upphaf Radíusbræðra í viðtali við Viktoríu Hermannsdóttur á Vísi árið 2015. Svo birtust þeir í skammlífu sjónvarpsþáttunum Limbó á Rúv. Þeir sneru aftur í sjónvarpið með þáttunum Radíus, tólf þátta séríu sem var sýnd á Rúv árið 1995. Minna fór fyrir Radíusbræðrum eftir aldamótin, en þeir voru þó ekki úr sögunni. Þeir komu nokkrum sinnum fram á sviði.
Grín og gaman Bíó og sjónvarp Hafnarfjörður Tengdar fréttir Steinn Ármann fimmtugur - brot af því besta Það er fátt betra en hláturskast á sunnudegi. 2. nóvember 2014 13:23 Reri á trillu með pabba Steinn Ármann Magnússon leikari er fimmtugur í dag. Hann ætlar að halda upp á það á sunnudaginn með fjölskyldu sinni og vinum – og að sjálfsögðu Elton John! 28. október 2014 11:00 Mest lesið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Lífið Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Menning Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira
Steinn Ármann fimmtugur - brot af því besta Það er fátt betra en hláturskast á sunnudegi. 2. nóvember 2014 13:23
Reri á trillu með pabba Steinn Ármann Magnússon leikari er fimmtugur í dag. Hann ætlar að halda upp á það á sunnudaginn með fjölskyldu sinni og vinum – og að sjálfsögðu Elton John! 28. október 2014 11:00