Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Freyja Þórisdóttir skrifar 16. ágúst 2026 20:17 Maðurinn var hífður upp í þyrlu en það hefði verið gríðarlega erfitt að ganga með hann á börum niður á bílastæði að sögn björgunarsveitarfólks. Myndirnar eru úr safni og tengjast málinu ekki með beinum hætti. Samsett mynd/Vísir Talsvert mikið viðbragð var á fjórða tímanum í dag þegar göngumaður slasaðist illa á fæti á stað þar sem virkilega erfitt var að komast að honum. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til aðstoðar björgunarsveitum og um klukkan hálf sex hafði maðurinn verið hífður upp. Hann var í kjölfarið fluttur á sjúkrahús í Reykjavík til aðhlynningar og athugunar.
Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi slysavarnarfélagsins Landsbjargar, í samtali við blaðamann Vísis. Hann lýsir því að fyrst um sinn hafi viðbragðið verið í nærumhverfi, þá voru björgunarsveitirnar frá Akranesi, Borgarnesi og uppsveitum Borgarfjarðar kallaðar út. Slysið varð nálægt fossinum Glym sem er í Botnsdal, í Hvalfjarðarsveit. Er hann hæsti aðgengilegi foss landsins en fallhæð hans er 198 metrar. Göngumaðurinn hafi verið staddur við Glymsbrekkur sem eru norðan við ánna þar sem komið er upp úr Kálfadal. Það hafi verið ljóst ansi snemma að það hefði verið erfið ganga niður að bílastæði og með manninn í börum. „Það var alveg ljóst að ef þyrla hefði ekki geta náð viðkomandi upp, það þurfti að hífa hann, þá hefði þurft að taka hann í börum og ganga talsvert langa leið á erfiðu landi,“ segir Jón Þór. Ekki liggur fyrir hver líðan mannsins er en Jón Þór sagðist halda að maðurinn væri fótbrotinn, áverkar á fæti hafi í það minnsta verið metnir sem svo alvarlegir að hann gat ekki gengið. Fólk sem var á göngu með sjúklingnum fékk fylgd niður á bílastæði en alls voru á um sjötta tug björgunarsveitarmanna sem komu að björguninni. Líkt og fram hefur komið voru fyrst um sinn kallaðar út björgunarsveitir úr nærumhverfi en svo þegar fór að komast betri mynd á hvernig vettvangurinn væri þá var kallaður út meiri mannskapur, meðal annars frá höfuðborgarsvæðinu.
Sjúkraflutningar Landhelgisgæslan Björgunarsveitir Tengdar fréttir Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Kallað var til aðstoðar þyrlu Landhelgisgæslunnar um klukkan fjögur síðdegis vegna slasaðs göngumanns í nágrenni við Glym fyrir botni Hvalfjarðar. Svæðið þar sem maðurinn slasaðist er með öllu ófært bílum. 16. ágúst 2026 17:08 Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Fleiri fréttir Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Sjá meira
Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Kallað var til aðstoðar þyrlu Landhelgisgæslunnar um klukkan fjögur síðdegis vegna slasaðs göngumanns í nágrenni við Glym fyrir botni Hvalfjarðar. Svæðið þar sem maðurinn slasaðist er með öllu ófært bílum. 16. ágúst 2026 17:08