Best að vera ekki með stórar yfirlýsingar Eiður Þór Árnason skrifar 14. ágúst 2026 11:58 Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, segir hreyfingu í viðræðum við Icelandair. Vísir/Vilhelm Ágætis gangur er í kjaraviðræðum flugmanna og Icelandair, að sögn formanns Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA). Fundað var í húsakynnum ríkissáttasemjara frá mánudegi til fimmtudags. „
Menn eru að ná að finna fleti sem er vonandi hægt að slípa saman. Ég vona að þetta gangi áfram og við ætlum svo að hittast aftur í næstu viku. Það er sem betur fer gangur í því,“ segir Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, í samtali við fréttastofu. Óhætt sé að segja að samningsaðilum hafi vegnað betur núna en fyrir sumarfrí. Þeir hafa sett sér markmið um að undirrita nýjan kjarasamning fyrir 15. september næstkomandi. Jón Þór segir fullsnemmt að segja til um hvort hann sé bjartsýnn á að Icelandair og flugmenn nái saman fyrir þann tíma. „Ég held að það sé best að vera ekki með stórar yfirlýsingar en það er gott að fólk sé að hittast og tala saman og sé í uppbyggilegum samræðum.“ Kjaradeilunni var vísað til ríkissáttasemjara í apríl en þá höfðu kjarasamningar verið lausir frá því í lok október á síðasta ári. Skuldbundu sig til að standa að baki Icelandair Um miðjan júní gáfu fulltrúar FÍA og Icelandair út yfirlýsingu þar sem fram kom að stefnt yrði að því að ljúka viðræðum fyrir 15. september og unnið samkvæmt verkstýrðri áætlun ríkissáttasemjara að nýjum kjarasamningi. Fyrir það virtist deilan vera komin í hnút og var um tíma nokkuð um skeytasendingar samningsaðila í fjölmiðlum. Icelandair sakaði flugmenn um óformlegar verkfallsaðgerðir sem leiddu til niðurfellingar fjölda flugferða þegar flugmenn hættu að selja frídagana sína til að fylla upp í skörð í vaktatöflunni. Flugmenn höfnuðu því að um skipulagðar aðgerðir væri að ræða en sögðust vera orðnir langþreyttir á miklu álagi. Um miðjan júní var svo reynt að draga samningshliðarnar saman. „Aðilar eru sammála um að vinna saman í góðri trú að framgangi viðræðna og stuðla að uppbyggingu gagnkvæms trausts sín á milli. Á meðan á samningaviðræðum stendur skuldbinda aðilar sig til að standa saman að baki Icelandair, með það að markmiði að tryggja stöðugan og öruggan rekstur félagsins og vernda hagsmuni þess. Aðilar eru sammála um að flugmenn, stjórnendur og aðrir starfsmenn Icelandair séu í sama liði og vinni saman með hagsmuni félagsins að leiðarljósi,“ sagði í yfirlýsingunni sem gefin var út 16. júní. Daginn áður hafði verið greint frá því að kjaradeilan væri í algjörum hnút og ríflega sjö þúsund farþegar orðið fyrir áhrifum þess að flugferðum hafi verið aflýst vegna mönnunarvanda vikurnar á undan. Fréttin hefur verið uppfærð.
Flug Icelandair Kjaramál Tengdar fréttir Snúa bökum saman í sameiginlegri yfirlýsingu Icelandair og Félag íslenskra atvinnuflugmanna hafa undirritað sameiginlega yfirlýsingu um framhald kjaraviðræðna. Stefnt er að undirritun nýs kjarasamnings fyrir 15. september næstkomandi. 16. júní 2026 17:41 Enn fjölgar aflýsingum Sex flugferðum hefur verið aflýst hjá Icelandair í dag vegna manneklu. Greint hafði verið frá þremur þeirra en nú hafa þrjú bæst við. Kjaradeilan harðnar enn. 12. júní 2026 17:44 Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Ríflega sjö þúsund farþegar hafa orðið fyrir áhrifum þess að flugferðum Icelandair hefur verið aflýst vegna mönnunarvanda síðustu vikur. Mikil óvissa veldur ferðalöngum áhyggjum en kjaradeila flugmanna og Icelandair er í algjörum hnút og engin lausn í sjónmáli. 15. júní 2026 18:00 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira
Snúa bökum saman í sameiginlegri yfirlýsingu Icelandair og Félag íslenskra atvinnuflugmanna hafa undirritað sameiginlega yfirlýsingu um framhald kjaraviðræðna. Stefnt er að undirritun nýs kjarasamnings fyrir 15. september næstkomandi. 16. júní 2026 17:41
Enn fjölgar aflýsingum Sex flugferðum hefur verið aflýst hjá Icelandair í dag vegna manneklu. Greint hafði verið frá þremur þeirra en nú hafa þrjú bæst við. Kjaradeilan harðnar enn. 12. júní 2026 17:44
Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Ríflega sjö þúsund farþegar hafa orðið fyrir áhrifum þess að flugferðum Icelandair hefur verið aflýst vegna mönnunarvanda síðustu vikur. Mikil óvissa veldur ferðalöngum áhyggjum en kjaradeila flugmanna og Icelandair er í algjörum hnút og engin lausn í sjónmáli. 15. júní 2026 18:00