„Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Agnar Már Másson skrifar 10. ágúst 2026 19:01 Árásin átti sér stað í heimahúsi á Kársnesi. Vísir Sakborningur sem grunaður er um aðkomu að mannsláti á Kársnesi í Kópavogi í gær hyggst áfrýja gæsluvarðhaldsúrskurði sem var kveðinn upp í dag. Verjandi hans segir hann aðeins hafa ekið hinum sakborningnum á vettvang.
Tveir karlmenn voru í dag úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna andláts eftir líkamsárás á Kársnesi í gær. Lögreglu barst í gær tilkynning um líkamsárás við Vallargerði á Kársnesi en þolandi árásarinnar var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést skömmu síðar. Í kjölfarið réðst lögregla í handtökur. Hinn látni var á fimmtugsaldri, að sögn lögreglu, en sakborningarnir tveir eru Íslendingur annars vegar og erlendur ríkisborgari hins vegar. Lítið er vitað um málið að svo stöddu og lögregla hefur ekki gefið kost á viðtali vegna málsins. Vilhjálmur Vilhjálmsson, verjandi íslenska sakborningsins, segist ætla að áfrýja gæsluvarðhaldsúrskurðinum. „Við ætlum að skjóta þessum úrskurði héraðsdóms til Landsréttar. Að mínu mati eru skilyrði gæsluvarðhalds ekki fyrir hendi,“ segir hann við fréttastofu. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, hæstarréttarlögmaður.Baldur Kristjánsson Vilhjálmur segir héraðsdóm hafa fallist á styttri varðhaldstíma yfir umbjóðanda hans heldur en lögregla krafðist. Því þarf hann aðeins að vera í haldi til 17. ágúst, en hinn sakborningurinn til 21. ágúst. Vilhjálmur segir enga þörf vera á gæsluvarðhaldi yfir sínum umbjóðanda. „Hann átti engan þátt í því sem þarna átti sér stað; hann einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B, hafði enga aðkomu að málinu að öðru leyti.“ Vilhjálmur kveðst ekki geta svarað því hvort umbjóðandi sinn hafi vitað hvert erindi bílferðarinnar var, en segir umbjóðanda sinn hafa verið samstarfsfúsan við lögreglu, hann hafi veitt lögreglu upplýsingar og samþykkt rannsóknaraðgerðir. Því telur hann að Landsréttur muni fella gæsluvarðhaldið úr gildi, en segir að dómstólar séu of eftirlátnir gagnvart ákæruvaldinu. „Það er löngu tímabært að íslenskir dómstólar hætti að vera svona leiðitamir við ákæruvaldið og standi í lappirnar gagnvart kröfum ákæruvaldsins.“
Manndráp í Vallargerði á Kársnesi Lögreglumál Kópavogur Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira