Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Lovísa Arnardóttir skrifar 7. ágúst 2026 08:14 Starfsfólk skoðar í tölvu það sem er gegnumlýst í salnum. Maren segir nýjar græjur muni sýna meira. Vísir/Egill og Bjarni Isavia hefur boðið út ný öryggisleitartæki á flugvellinum sem á að gera starfsfólki kleift að greina meiri massa og vökva. Gert er ráð fyrir að tvö þúsund geti farið í gegnum öryggisleit á einum klukkutíma í nýjum tækjum.
Maren Lind Másdóttir, framkvæmdastjóri flugvallarþróunar og innviða á Keflavíkurflugvelli, ræddi útboðið í Reykjavík síðdegis í gær. Isavia bauð út í gær heildarlausn fyrir öryggisleitarbúnað á Keflavíkurflugvelli. Í útboði kemur fram að umfang innkaupanna nái til útvegunar, uppsetningar, samþættingar, gangsetningar, prófana, afhendingar, viðhalds og stuðnings við öryggisleitarbúnað flugvalla, tengdan hugbúnað, viðmót og upplýsingatækniinnviði, þar á meðal CT-skanna til leitar í handfarangri, sjálfvirkra bakkaskilakerfa, líkamsskanna, skóskimunarbúnaðar, snefilgreiningar sprengiefna, fjarleitar (remote screening) og myndadreifingar. Þar kemur einnig fram að leitað sé að hæfum framleiðendum búnaðar (OEM) sem búa yfir reynslu af afhendingu, samþættingu og stuðningi við öryggisleitarlausnir á alþjóðaflugvöllum í fullum rekstri. „Sá birgir sem valinn verður gerir samning við Isavia ohf. og dótturfélög þess, sem skulu eiga rétt á að kaupa búnað, þjónustu og stuðning á grundvelli samningsins,“ segir að lokum í útboðinu sem stendur til 21. september. Maren segir að búið sé að bjóða út nýja lausn fyrir öryggisleit og framtíðin beri í skauti sér nýja tækni og tæki. Leitin eigi þá að vera sambærileg við leitina á stærstu flugvöllum heims þar sem fólk þarf ekki að taka allt upp úr töskunum heldur setur það í gegnum gegnumlýsandi vél. Líkamsskanni og bjartari salur Maren segir að í útboðinu sé einnig fjallað um líkamsskanna og þessi tækni eigi að vera heildarlausn. Hún segir einnig eiga að gera svæðið bjartara og aðgengilegra fyrir farþega. „Græjan er þróaðri en sú sem við erum með í dag,“ segir hún og að á vélinni sem er notuð í dag sé hægt að ímynda sér röntgengeisla sem sýni innihald. Græjurnar séu hannaðar til að greina til dæmis sprengjuefni og annað sem geti ógnað í flugi. Hún segir að á nýju vélinni sé það meira eins og sneiðmyndataka af töskunni. Þau fái þrívíddarmynd og hugbúnaðurinn að baki græjunni sé betri en það sem þau nota í dag og öflugri í að greina hvort það sé eitthvað í töskunni sem ekki ætti að fara inn á flugvöll. Nýja græjan getur þannig greint meiri vökva en vélin sem er í notkun í dag. Maren segir að þegar fólk fer í gegnum líkamsskannanna sem það vill fá þurfi að taka af sér belti og þau muni alltaf þurfa að vera með málmleitarhlið líka, sem varaleið fyrir þau sem geta vegna heilsu sinnar ekki farið í gegnum líkamsskannann. Fólk þurfi alltaf að taka af sér belti og úr vösum. Hún segir misjafnt hvort fólk fari úr skóm og það sé möguleiki að fá sérstakan skóskanna fyrir þau sem ekki geta farið úr þeim. Vökvamagn gæti aukist Hún segir líkamsskannann greina meiri massa en málmleitarhliðið greini málm. Skanninn greini ákveðinn massa sem sé möguleiki á að þurfi að skoða betur. „Ég er til dæmis ítrekað stöðvuð því ég er með hnút í hárinu, þá er svo mikill massi að það þarf að skoða það betur,“ segir Maren til útskýringar. Maren segir reglur um vökvainnihald ekki endilega breytast sjálfkrafa þegar nýjar græjur koma á völlinn en það verði skoðað þegar búnaðurinn kemur. Hún segir nágrannaflugvelli hafa breytt magninu og það sé því alveg líklegt að það verði gert líka á Keflavíkurflugvelli. Það sé á ábyrgð hvers flugvallar að setja sínar reglur í samræmi við aðrar öryggisráðstafanir og vélin sem þau noti núna geti ekki greint meira en 100 millilítra. Hún segir fólk sem ferðast mikið orðið vant því að þurfa ekki að taka upp úr töskunni því það sé búið að taka upp þessa nýju tækni og því verði sumir pirraðir þegar þeir komi svo til Íslands og þurfi að gera það. „En almennt séð eru farþegar mjög almennilegir við okkar starfsfólk og kunna þessar reglur.“ Útboðið fór út í gær og Maren segir að miðað við þeirra áætlun ætti framkvæmdum við skipti að vera lokið 2028. Hún segir að það verði að skipta búnaði út í áföngum því ekki sé hægt að stöðva eða loka öryggisleitinni á meðan þau skipta. Meðalbiðtími þrjár mínútur Hún segir öryggisleit og biðtíma ekki endilega breytast mikið við þetta. Meðalbiðtími sé þrjár mínútur en það komi oft háannatímar, eins og á sumrin, og þá sé biðin lengri. Með nýjum tækjum geri þau ráð fyrir að ná í gegn tvö þúsund farþegum á klukkustund. Fjallað var um það í sumar að miklar tafir væru í vegabréfaeftirliti á Keflavíkurflugvelli. Er það sagt tengjast nýju kerfi sem hefur verið innleitt á flugvellinum fyrir fólk sem ferðast til landsins og er frá löndum utan Schengen-svæðisins. Í frétt sem skrifuð var í júlí kom fram að biðtími þeirra hefði verið allt að tvær og hálf klukkustund á einum tímapunkti. Maren segir nýjar reglur hafa áhrif á vegabréfaskoðun en að í haust verði teknar í notkun nýjar vélar sem búið er að setja upp til að skoða vegabréf, sem er eins konar sjálfsafgreiðsla og er til dæmis í Bandaríkjunum. Hún segir sambærilega þjónustu í innritun. Nýjar reglur tefji Hún segir að vélarnar verði teknar í notkun í samvinnu við lögregluna og þá vonandi breytist þetta til batnaðar. „Við stefnum á eftir sumarið að taka þetta í notkun og gera það með prófunum hjá okkur, auðvitað með lögreglunni, við erum í mjög góðu samstarfi við lögregluna og flugfélögin, og fara svo að taka þessa sjálfsafgreiðslukassa í notkun, og vonandi breytist þetta þá til batnaðar.“
Keflavíkurflugvöllur Ferðaþjónusta Suðurnesjabær Isavia Landamæri Flug Reykjavík síðdegis Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Sjá meira