„Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Sigurgeir Þorkelsson skrifar 6. ágúst 2026 23:54 Guðrún var til viðtals í Reykjavík síðdegis í dag. Myndin er úr Kryddsíld Sýnar þann 31. desember síðastliðinn. Vísir/Anton „Evrópusambandið er ekki konfektkassi þar sem við getum farið og valið okkur bestu molana og sagt nei við hinum,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Guðrún segir vegferð ríkisstjórnarflokkanna dapurlega og að ESB-umræðan sé fyrst og fremst ætluð til að breiða yfir stöðu efnahagsmála. „
Ef þú ferð í aðlögunarviðræður við Evrópusambandið er það með það að markmiði að ganga í Evrópusambandið. Ísland er eina ríkið í sögu Evrópusambandsins þar sem stjórnvöld hafa einungis lýst áhuga á aðild en telja nauðsynlegt að hefja þjóðaratkvæðagreiðslu hvort við eigum að fara í viðræður,“ segir Guðrún, sem var til viðtals í Reykjavík síðdegis. „Mér finnst ríkisstjórnin enn skulda þjóðinni skýringar,“ segir Guðrún spurð út í viðtal forsætisráðherra, Kristrúnar Frostadóttur, í Bítinu í morgun. „Samningsmarkmiðin eru ekki skýr. Ríkisstjórnin hefur ekki gefið það út; hvar eru þessar girðingar sem verður ekki farið yfir?“ spyr Guðrún og nefnir sjávarútvegsmálin sem dæmi en mikið hefur verið rætt um það í aðdraganda þjóðaratkvæðisins hvort Ísland muni geta fengið varanlegar undanþágur frá sjávarútvegsstefnu ESB. „Ég dreg það mjög í efa að við séum að fara að breyta Evrópusambandinu,“ segir Guðrún. Guðrún gagnrýnir þá dagsetningu sem valin var fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. „Þessi dagsetning á þessari þjóðaratkvæðagreiðslu er úthugsuð – ekki með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi heldur ríkisstjórnarinnar.“ Hún segir dapurlegt að ríkisstjórnin forgangsraði að tvístra þjóðinni í stað þess að hlusta á heimili og fyrirtæki í landinu. Guðrún segir sumar fjölskyldur hættar að hittast þar sem foreldrar og börn ætli að kjósa sitt hvorn valkostinn í þjóðaratkvæðinu. „Hvar sem maður kemur er fólk að rífast um þetta.“
Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík síðdegis Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira