„Hverjir eru á bak við það?“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 4. ágúst 2026 21:45 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. vísir/einar Dómsmálaráðherra segir komu tugþúsunda manna til spænska landsvæðisins Ceuta ekki hafa ógnað Schengen-svæðinu. Sérstakar reglur gilda um svæðið og nær allir sem komu þangað hafa snúið aftur til Marokkó.
Spánverjar segja 72 þúsund hafa komist frá Marokkó til Ceuta og 70 þúsund snúið til baka. Að minnsta kosti 75 létust Spánarmegin og ellefu Marokkómegin. Ceuta er spænskt landsvæði í Norður-Afríku og ytri landamæri Evrópusambandsins. Ítalir tóku upp tímabundið landamæraeftirlit gagnvart Spáni og forsætisráðherra Danmerkur vildi að skoðað yrði hvort víkja ætti Spáni tímabundið úr Schengen. Danski útlendingamálaráðherrann, Kaare Dybvad Bek, hrósaði Spánverjum eftir fundinn í dag en sagði ytri landamæri ESB ekki í stakk búin og krafðist harðari viðbragða. Dómsmálaráðherra sem sat svokallaðan neyðarfund með innanríkisráðherrum Schengen ríkjanna í dag segir fyrstu viðbrögð ríkjanna hafa byggst á ófullnægjandi upplýsingum um sérstöðu Ceuta. „Nú eru þær fram komnar um það hvaða reglur gilda um þetta tiltekna svæði, að jafnvel þó það tilheyri Spáni, að þá er það Afríkumegin og sérstakar reglur gilda þar um og hafa gert frá árinu 1991.“ Ferð frá Ceuta til meginlands Spánar eða annarra Schengen-ríkja er háð persónu- og skilríkjaeftirliti. Engin áframhaldandi för inn á Schengen-svæðið hefur verið staðfest. Þorbjörg segir því enga eiginlega hættu hafa stafað að Schengen-svæðinu og bendir á að nær allir hafi snúið til baka. Á samfélagsmiðlum dreifðust rangar upplýsingar um að landamærin að Ceuta væru opin. Sumir misskildu spænskan dómsúrskurð sem takmarkaði tafarlausar endursendingar við ákveðnar aðstæður og úrræði sem aðeins náðu til fólks sem þegar var búsett á Spáni. „Hefði fólk, þetta fólk, þetta ólánsama fólk haft allar upplýsingar um það hver staðan raunverulega væri, hvaða réttur biði þeirra, þá hefði fólk mögulega ekki lagt upp í þennan leiðangur. Það er greinilega verið að mata fólk af einhverjum upplýsingum sem síðan standast ekki skoðun sem hefur í för með sér þessar hræðilega sorglegu afleiðingar.“ Enn er rannsakað hver stóð að baki færslunum. „Þarna var auðvitað rætt mikið um hinn mannlega harmleik,. Þarna farast um 75 manns því að upplýsingaóreiða hefur myndast. Við ræddum það auðvitað líka, hvað er það sem að veldur því og hverjir eru á bak við það?“
Spánn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Landamæri Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Sjá meira