Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Jón Þór Stefánsson skrifar 30. júlí 2026 23:32 Sérsveitin hjálpaði við aðgerðir Landhelgisgæslunnar. Landhelgisgæsla Íslands og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru um borð í Bandero, skip Paul Watson samtakanna, í kvöld og tóku yfir stjórn skipsins. Skipstjóri þess var handtekinn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Þar segir að áhöfnin á Hval 9 hafi óskað eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar fyrr í kvöld þar sem áhöfnin taldi öryggi sínu ógnað auk þess sem skipstjóri Bandero hlýddi ekki fyrirmælum Landhelgisgæslunnar. Skipstjóri Bandero var handtekinn og skipið verður fært til hafnar í Reykjavík. Hlýddu ekki fyrirmælum Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning um málið á sjötta tímanum í dag, að Bandero hefði siglt inn fyrir tólf sjómílna landhelgi Íslands og stefndi í átt að hvalveiðiskipinu Hval 9. Í kjölfarið tilkynnti áhöfnin á Hval 9 Landhelgisgæslunni að skipinu hefði verið ógnað. Bæði þyrla gæslunnar, sem og varðskipið Freyja voru kölluð út. „Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar skipuðu áhöfn Bandero að yfirgefa íslenska landhelgi en engin svör bárust frá skipinu. Þá hélt þyrla Landhelgisgæslunnar, sem var á eftirlitsflugi, þegar í stað á vettvang og bað áhöfn Bandero að yfirgefa svæðið en við því var ekki orðið,“ segir í tilkynningunni. Þá segir að þegar varðskipið kom á vettvang hafi skipstjóra Bandero verið fyrirskipað að stöðva vélar skipsins, en skipstjórinn ekki hlýtt fyrirmælum Landhelgisgæslunnar. „Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þá kölluð út til að flytja sérsveit ríkislögreglustjóra um borð í varðskipið Freyju og séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar hélt á vettvang á aðgerðabátum.“ Það var síðan á tólfta tímanum í kvöld sem sérsveitarmenn frá ríkislögreglustjóra og séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar hafi farið um borð í Bandero, og handtekið skipstjóra þess og tekið yfir stjórn skipsins. „Bandero verður fært til hafnar í Reykjavík en gert er ráð fyrir að skipið komi til Sundahafnar síðar í kvöld.“ Paul Watson óttast ekki saksókn Fyrr í kvöld sagði Paul Watson, maðurinn sem á samtökin sem Bandero siglir fyrir, að hann myndi ekki óttast það að áhöfn sín yrði handtekin og saksótt hér á landi. „Aðalmarkmið þessarar aðgerðar er að beina sem mestri athygli að ólöglegum hvalveiðum á Íslandi, sérstaklega í miðlum í Evrópusambandinu. Og það hefur tekist. Svo, það skiptir ekki mála hvað Landhelgisgæslan gerir. Þeir geta komið um borð, tekið okkur föst og handtekið. Ég myndi glaður sjá réttarhöld til þess að setja þetta á alþjóðasviðið,“ segir hann. „Það skiptir ekki máli fyrir hvað við yrðum ákærð. Sama hvað, þá vekur það athygli á málefninu, á því sem er í gangi einmitt núna. Því fleira fólk í heiminum sem veit hvað er í gangi á Íslandi, því betra fyrir okkur.“ Uppfært: 00:57 Paul Watson-samtökin birtu seint í kvöld færslu á Facebook með myndinni sem sjá má hér að neðan, sem virðist sýna sérsveitarmann koma um borð í skipið. Samkvæmt færslunni er um eina síðustu myndina sem samtökin fengu senda frá áhöfn Bandero. Af færslunni að dæma hafa samtökin síðan átt í erfiðleikum með að eiga í samskiptum við áhöfnina. Frá Facebook-síðu Paul Watson samtakanna.
Landhelgisgæslan Lögreglumál Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Hvalveiðar Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Fleiri fréttir Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Sjá meira