Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Freyja Þórisdóttir skrifar 15. júlí 2026 22:24 Ómar Geirsson átti fremur erfiðan dag en hann hafði nýlega fjárfest í hjóli og var á leið til baka eftir ástandsskoðun þegar kviknaði í því. tia.is/Ómar Geirsson Mótorhjólakappinn Ómar Geirsson varð var við bilun í fornhjólinu sínu á leið heim frá Akureyri en stuttu seinna fór að rjúka undan hjólinu að aftan. Mótorhjólið brann til kaldra kola fyrir augunum á honum en hann hafði keypt það skömmu áður og var nýkominn með það úr ástandsskoðun.
Hjólið var af gerðinni Honda Goldwing og fellur undir flokk fornhjóla en það var árgerð 1988. Þegar eldurinn kom upp var Ómar á leið til baka frá Akureyri en þangað lagði hann leið sínu til þess að fara með hjólið, sem hann var nýbúinn að kaupa sér, í ástandsskoðun. Ómar steig af hjólinu skammt frá Dalvík.tia.is/Ómar Geirsson Frá þessu greindi hann í færslu á Facebook en grein um atvikið var í kjölfarið birt á vef Tíunnar, sem er klúbbur áhugafólks um bifhjól af öllum gerðum. Í umfjölluninni á tia.is kemur fram að slökkvilið hafi verið kallað á staðinn frá Dalvík og að einnig hafi verið hringt eftir aðstoð í neyðarlínuna en engann sakaði. „Erfiður dagur í dag, skrapp með 1500 Goldwing í skoðun á Akureyri og rúntaði eitthvað þar, en á heimleiðinni fór hjólið að verða eitthvað öðruvísi en maður á að venjast,“ svona eru upphafsorð færslunnar sem Ómar birti á Facebook. Gargað að hann væri fífl og asni Hjólið var handónýtt eftir eldinn.tia.is/Ómar Geirsson Hann lýsir því svo hvernig hann hafi því gert hlé á ferð sinni á Hámundarstaðarhálsi og að í sömu mund afi kona hrópað til hans að það ætti ekki að stoppa ökutæki svona á þjóðveginum. „Fékk að heyra það að ég væri fífl og asni að stoppa þarna og vera í símanum, geðstyrð kona að garga út um gluggann, en ég hringdi í kunningja þar sem ég var ekki með nein verkfæri meðferðis,“ skrifar hann en á meðan símtalinu stóð hóf að leggja reyk frá hjólinu. „Myndir sýna rest. En það kom líka fólk og athugaði með mig og þakka ég því fyrir. Ást og friður.“
Dalvíkurbyggð Akureyri Umferðaröryggi Umferð Slökkvilið Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira