Viðskipti erlent

Olíu­verð hækkar um rúm fimm prósent í kjöl­far um­mæla Trumps

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Verð á Brent-hráolíu hækkaði um 5,6 prósent í kjölfar ummæla Trumps. Þetta sé mesta dagshækkun á olíuverði síðan í lok maí.
Verð á Brent-hráolíu hækkaði um 5,6 prósent í kjölfar ummæla Trumps. Þetta sé mesta dagshækkun á olíuverði síðan í lok maí. Eric Gay/AP

Markaðsverð á hráolíu hækkaði um rúm fimm prósent eftir yfirlýsingu Bandaríkjaforseta um að bráðabirgðarvopnahléi milli Bandaríkjanna og Íran væri lokið. 

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur gefið í skyn að viðræðum við Írani um mögulegt vopnahlé milli ríkjanna sé lokið . „Hvað mig varðar þá er bara tímasóun að eiga við þá. Þeir eru lygarar... Það er eitthvað að þeim. Þeir eru klikkaðir. Hvað mig varðar þá er þetta búið,“ sagði forsetinn í Ankara í morgun þar sem leiðtogafundur NATO fer fram. 

Verð á Brent-hráolíu hækkaði um 5,6 prósent og verð bandarískrar hráolíu um 5,8 prósent, að sögn AP, í kjölfar ummæla Trumps. Þetta sé mesta dagshækkun á olíuverði síðan í lok maí. Nú seljist tunna af Brent-olíu á 78 dollara en bandaríska olían á rúma 74 dollara. 

Trump segir samningsnefndir Bandaríkjanna geta haldið viðræðum áfram en telur það tímasóun. 

Bandaríkin hófu árásir á Íran á ný í gær sem hefndaraðgerðir við árásum Írans á þrjú olíuflutningaskip á Hormússundi. Í kjölfar árásanna afturkallaði Bandaríkjastjórn undanþágu frá viðskiptaþvingunum á sölu íranskrar olíu. Undanþágan, sem heimilaði Íran að selja olíu, var hluti af bráðabirgðasamkomulagi um endalok átakanna á milli Bandaríkjanna og Íran.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×