Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Magnús Jochum Pálsson skrifar 2. júlí 2026 09:21 Lucky Blue Smith og Nara Smith hafa verið gift síðan 2020 og eiga fjögur börn saman. Getty Fyrirsætan og áhrifavaldurinn Nara Smith hefur opnað sig um það að tveggja ára dóttir hennar, Whimsy Lou, sé með krabbamein. Dóttirin greindist með krabbamein á seinni hluta síðasta árs en ekki kemur fram um hvers konar krabbamein ræðir.
Smith greindi frá því í myndbandi á Instagram að seint á síðasta ári hefðu hún og eiginmaður hennar, Lucky Blue Smith, fundist eitthvað grunsamlegt við heilsu dóttur þeirra. Í kjölfarið hefðu þau farið með dótturina á gjörgæslu í Kaliforníu en fengið fá svör þar og leitað til barnalæknis. „Þegar við fórum með hana til barnalæknisins okkar man ég bara að hann varð skyndilega þögull og rólegur og á því augnabliki sökk hjarta mitt. Ég veit ekki hvort það var innsæi eða mömmu-eðlishvötin en það fyrsta sem ég hugsaði var að hún væri með krabbamein,“ sagði Nara í myndbandinu. Foreldrarnir fóru þvínæst með dótturina í formlega greiningu og var þeim þá tjáð að krabbameinið hefði dreift sér og að hún þyrfti að byrja samstundis í lyfjameðferð. Ekki kemur fram í myndbandinu hvar dóttirin er stödd í ferlinu eða hvers konar krabbamein hún glímir við. View this post on Instagram A post shared by Nara Smith (@naraaziza) „Í gegnum þetta allt saman hef ég verið á ofgnótt spjallborða og samfélagsmiðla og talað við foreldra og fjölskyldur á spítalanum. Allt það samanlagt hefur veitt mér mikla huggun og sefað einmanaleikann,“ sagði Nara. Greiningin og allt ferlið hefði verið gríðarlega krefjandi, ekki síst því þau hjónin eignuðust sitt fjórða barn á sama tíma og þau voru að fara með Whimsy í gegnum ferlið. Uppstríluð fyrirsæta sem býr til mat frá grunni Nara Smith er suður-afrísk og þýsk fyrirsæta sem hefur á síðustu árum öðlast gríðarlegar vinsældir fyrir matarmyndbönd sín þar sem hún er klædd í sitt fínasta púss, býr til rétti algjörlega frá grunni og talar lágum rómi. Smith hefur sankað að sér milljónum fylgjenda og nýtt vinsældirnar til að gefa út uppskriftabókina Homemade. View this post on Instagram A post shared by Nara Smith (@naraaziza) Smith sem er mormónatrúar hefur oft verið kennd við tradwife-kúltúr sem skaut upp kollinum fyrir nokkrum árum. Slíkt samfélagsmiðlaefni gengur út á það að konur sýna frá lífi sínu sem hefðbundnar heimavinnandi húsmæður sem elda allan mat frá grunni og sinna húsverkum af miklum móð. Sjálf hefur hún afneitað tradwife-stimplinum í ljósi þess að hún starfar líka sem fyrirsæta. Eiginmaður Smith er bandaríska fyrirsætan Lucky Blue Smith og eiga þau fjögur börn, hina fimm ára Rumble Honey, hinn fjögurra ára Slim Easy, hina nokkurra mánaða gömlu Fawnie Golden og fyrrnefnda Whimsy Lou.
Börn og uppeldi Samfélagsmiðlar Bandaríkin Krabbamein Mest lesið „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Muniz skilinn Lífið Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Lífið Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Osaka best klædd á Wimbledon Tíska og hönnun Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Sjá meira