Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Kjartan Kjartansson skrifar 29. júní 2026 09:45 Frá sólarströnd á Benidorm á Spáni. Fólk sem dvelur ólöglega á Spáni, margt þess frá Rómönsku Ameríku, vinnur svart í ferðaþjónustu, landbúnaði og ýmsum þjónustustörfum. Vísir/EPA Spænskum yfirvöldum hafa borist rúmlega 900.000 umsóknir um dvalarleyfi frá fólki sem dvelur ólöglega í landinu. Það er mörg hundruð þúsundum fleiri en stjórnvöld reiknuðu með þegar þau kynntu aðgerðina.
Erlendir ríkisborgarar sem komu til Spánar fyrir lok síðasta árs og geta sýnt fram á að þeir hafi dvalið þar í að minnsta kosti fimm mánuði geta sótt um tímabundið dvalar- og atvinnuleyfi til allt að eins árs samkvæmt áætlun ríkisstjórnar Pedro Sánchez, forsætisráðherra. Umsóknarfresturinn rennur út á morgun. Þegar ríkisstjórnin kynnti áform sín í vetur reiknaði hún með að um hálf milljón manna gæti fengið dvalarleyfi með þessum hætti. Um miðjan þennan mánuð höfðu hins vegar um 900.000 umsóknir borist, að sögn spænska blaðsins El País. Yfirvöld hafa þrjá mánuði til þess að fara yfir hverja umsókn. Þau hafa ekki gefið út hversu margar umsóknir hafa verið samþykkta eða hvort einhverjum hafi verið hafnað. Þetta er í sjöunda skipti frá 1986 sem spænsk stjórnvöld bjóða fólki sem dvelur ólöglega í landinu sakaruppgjöf af þessu tagi. Yfirlýst markmið aðgerðanna nú er að veita hundruðum þúsundu manna sem vinna í landbúnaði, ferðaþjónustu og öðrum þjónustustörfum lagalega stöðu sem hafa fram að þessu unnið svart.
Spánn Innflytjendamál Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira