Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Atli Ísleifsson skrifar 27. júní 2026 21:44 Watson birti mynd af TF-SIF á Facebook-síðu sinni fyrr í kvöld þar sem hann segir Landhelgisgæsluna vera að eyða fé til að fylgjast með ferðum Bandero. Paul Watson Foundation Bandero, skip hvalaverndaraktívistans Paul Watsons, sigldi inn í íslenska efnahagslögsögu fyrr í dag. Watson segir skipinu beint til landsins til að takast á við hvalveiðar Hvals og Kristjáns Loftssonar.
Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við Vísi í kvöld. Hann segir að flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, hafi komið auga á skipið í hefðbundnu eftirlitsflugi fyrr í dag, djúpt suður af landinu. Ásgeir segir að skipið hafi ekki verið með kveikt á búnaði til að sýna staðsetningu sína líkt og alþjóðalög kveða á um. Samband hafi verið haft við skipið og þau svör fengist að búnaðurinn væri bilaður. Ásgeir segir að starfsmenn Landhelgisgæslunnar hafi þó óskað eftir því að skipverjar myndu reglulega tilkynna stjórnstöð Landhelgisgæslunnar um staðsetningu á meðan búnaðurinn væri bilaður. Watson birti mynd af TF-SIF á Facebook-síðu sinni fyrr í kvöld þar sem hann segir Landhelgisgæsluna vera að eyða fé til að fylgjast með ferðum Bandero. Segir Watson enn fremur að Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, ætti að senda Landhelgisgæslunni reikning fyrir þjónustu þeirra. Hvalur hóf hvalveiðivertíð sína fyrr í vikunni og er þegar búið að landa nokkrum hvölum. Ásgeir sagði í samtali við fréttastofu fyrr í dag að Landhelgisgæslan muni bregðast við ef tilefni gefist og sérstaklega ef lífi og heilsu fólks sé ógnað. Í síðasta mánuði boðaði stofnun Paul Watson til aðgerðar 86 í sumar til að binda enda á hvalveiðar Íslendinga. Aðgerð 86 vísar til þess atburðar þegar aðgerðasinnar sökktu skipunum Hval 6 og Hval 7 í Reykjavíkurhöfn árið 1986.
Landhelgisgæslan Hvalveiðar Hvalir Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Tengdar fréttir „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Landhelgisgæslan er í viðbragðsstöðu vegna mögulegrar komu skipsins Bandero til Íslands. Í myndbandi sem birt var á Facebooksíðu samtaka Paul Watson í gær segir hann að allt verði gert til að koma í veg fyrir að veiddir verði hvalir á meðan samtökin eru á Íslandi. 27. júní 2026 13:43 Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Alls eru um 41 prósent andvíg veiðum á langreyðum og 26 prósent hvorki hlynnt né andvíg samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu sem framkvæmd var fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands. Niðurstöður sýna einnig að 33 prósent eru fylgjandi veiðunum. 25. júní 2026 09:04 Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Fleiri fréttir Wolt kærir hótanir sendlanna til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Sjá meira
„Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Landhelgisgæslan er í viðbragðsstöðu vegna mögulegrar komu skipsins Bandero til Íslands. Í myndbandi sem birt var á Facebooksíðu samtaka Paul Watson í gær segir hann að allt verði gert til að koma í veg fyrir að veiddir verði hvalir á meðan samtökin eru á Íslandi. 27. júní 2026 13:43
Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Alls eru um 41 prósent andvíg veiðum á langreyðum og 26 prósent hvorki hlynnt né andvíg samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu sem framkvæmd var fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands. Niðurstöður sýna einnig að 33 prósent eru fylgjandi veiðunum. 25. júní 2026 09:04