Aldrei upplifað annan eins hita í Lundúnum Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 24. júní 2026 20:01 Jes Gíslason hefur verið búsettur í Lundúnum um hríð. aðsend Íslendingur sem búsettur er í Lundúnum segist aldrei hafa upplifað annan eins hita í borginni. Banvæn hitabylgja ríður yfir Evrópu og eru líkur á að nýtt hitamet fyrir júní verði sett á Englandi.
Bresk yfirvöld hafa gefið út rauða hitaviðvörun fyrir stóran hluta Mið- og Suður- Englands og Wales en viðvörunin hefur einungis einu sinni áður verið gefin út og var það í júlí árið 2022 þegar hitinn fór yfir fjörutíu gráður. Skólum hefur sums staðar verið lokað og lestaferðum aflýst, en hitinn getur sveigt teina og haft áhrif á rafmagnsvíra sem knýja lestarkerfið áfram. Íslendingur sem búsettur er í Lundúnum segist aldrei hafa upplifað annan eins hita í borginni. „Þannig það eru bara flestir heima hjá sér sem geta. Sem stendur er ég að fylla fötur af svita,“ sagði Jes Gíslason. Borgin ekki byggð fyrir slíkan hita Enda loftkælingin ekki með besta móti í íbúð Jes. Þrjátíu og fimm stiga hiti var úti þegar viðtalið var tekið og segir Jes að þegar gengið er út mæti honum heitur veggur. „Af því að London er ekki byggt fyrir svona veður. Hitinn safnast allur saman og verður þéttur þannig það er nánast ómögulegt að vera í London í svona hitabylgju.“ Og segir Jes enga golu á svæðinu. Hann segir marga hafa undirbúið sig undir ástandið en tekur ekki eftir því að fólk hamstri vatn úr verslunum. Sjálfur keypti hann glerflöskur sem hann fyllir af vatni. Svitnar innandyra Ætlaru að fara eitthvað út í dag? „Nei ég ætla bara að svitna heima.“ Hann segist sakna veðurfarsins á Íslandi. Á meðan landsmenn hér heima flykkjast út í hitann ætli Jes að flýja hann með Íslandsferð í júlí. „Maður horfir á það í hillingum nánast.“ Áfram er spáð miklum hita í Frakklandi, á Spáni og Ítalíu. Rauðar viðvaranir hafa verið gefnar út í sextán borgum Ítalíu þar sem hitinn er talinn getað náð allt að 41 gráðu í Flórens og 28 gráðum í Mílanó.
Veður Bretland Frakkland Ítalía Íslendingar erlendis Hitabylgja í Evrópu í júní 2026 Tengdar fréttir Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Áfram er varað við lífshættulegri hitabylgju í Evrópu, allt frá London í vestri til Mílanó í austri, í dag. Líkur eru á að nýtt hitamet fyrir júní verði sett á Englandi. 24. júní 2026 11:01 Eins og að vera í bakaraofni í hitabylgjunni: „Raunveruleg hætta á að fólk geti fengið hitaslag“ Nýliðin nótt var sú heitasta frá upphafi mælinga í Frakklandi og Lundúnum er lýst sem bakaraofni. Hitabylgjan í Evrópu hefur reynst banvæn en veðurfræðingur sem talar frá Róm segir að miðja hitahvelfingarinnar sé að færast norður yfir Bretlandseyjar. 23. júní 2026 12:44 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Áfram er varað við lífshættulegri hitabylgju í Evrópu, allt frá London í vestri til Mílanó í austri, í dag. Líkur eru á að nýtt hitamet fyrir júní verði sett á Englandi. 24. júní 2026 11:01
Eins og að vera í bakaraofni í hitabylgjunni: „Raunveruleg hætta á að fólk geti fengið hitaslag“ Nýliðin nótt var sú heitasta frá upphafi mælinga í Frakklandi og Lundúnum er lýst sem bakaraofni. Hitabylgjan í Evrópu hefur reynst banvæn en veðurfræðingur sem talar frá Róm segir að miðja hitahvelfingarinnar sé að færast norður yfir Bretlandseyjar. 23. júní 2026 12:44