Lífið

Þrastahreiður í Garða­bæ í beinni

Lovísa Arnardóttir skrifar
Hreiðrið er í beinni.
Hreiðrið er í beinni. Skjáskot

Þrestir hafa hreiðrað um sig í hreiðri sem áður tilheyrði störrum í Garðabæ. Hægt er að fylgjast með hreiðrinu í beinni. Streymið er á vegum fyrirtækisins Bláberg.

Í streyminu má reglulega sjá þrestinum bregða fyrir þar sem hann gefur ungunum sem eru í hreiðrinu. Hreiðrið er við heimili Snorra Stefánssonar í Garðabæ. Snorri er einn eigenda fyrirtækisins Bláberg í Glæsibæ.

Snorri segir hreiðrið upprunalega hafa verið starrahreiður og þegar hann keypti húsið hafi fráfarandi eigandi ráðlagt honum frá því að losa sig við hreiðrið, starrinn yrði alveg brjálaður. Frá þeim tíma hafi þó orðið eigendaskipti og fyrir um mánuði hafi hann séð þrestina og eggin í hreiðrinu.


Tengdar fréttir

Mikil sorg á Alþingi

Þrösturinn sem legið hefur á eggjum í Alþingisgarðinum er horfinn úr hreiðrinu ásamt eggjunum fjórum. Þingkona segir málið hryggja sig meira en eðlilegt sé, svartur köttur sem heldur til í garðinum liggi undir grun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.