Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 21. júní 2026 11:28 Einar segir skipuleggjendur hafa gert vel í að taka upp rusl af svæðinu. Þjóðgarðsverði líst vel á fyrsta frágang á Þingvöllum en hann skellti sér á svæðið í morgun eftir stórtónleika Kaleo í þjóðgarðinum í gær. Hann segir gesti heilt yfir hafa verið til fyrirmyndar þó aðeins hafi borið á meira rusli undir lok hátíðarinnar í gærkvöldi, ræst hafi úr umferðarmálum eftir teppu sem hafi minnt marga á sögufræga umferðarteppu 1994. Hann biðlar til ferðaþjónustuaðila að keyra með gát um svæðið næstu daga á meðan frágangi stendur. „
Það var svo sem engin blika, mér leist bara ágætlega á fyrsta frágang,“ segir Einar Á.E. Sæmundsen þjóðgarðsvörður í samtali við Vísi, inntur eftir því hvernig honum hafi litist á blikuna á Þingvöllum í morgun en Einar kíkti þangað í morgun til að kanna ummerkin eftir risatónleika Kaleo í gær. Hann segir skipuleggjendur hafa skuldbundið sig til að skila þjóðgarðinum í sama ástandi og þeir tóku við því. „Og það var skrifað í samning hvernig ætti að standa i frágangi, þeir munu skila svæðinu í sama ástandi og þeir tóku við því en það tekur tvo til þrjá daga að taka niður allt blingið sem fylgdi þessu. Ég vil biðla til ferðaþjónustuaðila í dag og á morgun að keyra með gát þetta svæði.“ Kamrar og matarvagnar hafi horfið á braut af svæðinu strax í morgun. Skipuleggjendur hafi nú rúma tvo daga til að rýma allan búnað af svæðinu. Segir Einar að nú í morgunsárið hafi verið mikil örtröð af ferðamönnum á svæðinu, sem líti vel út. „Það var viðbúið að hátíðarsvæðið yrði undirlagt af rusli en það sást eiginlega ekkert, það var ótrúlega vel að þessu staðið og það vakti athygli mína þegar ég átti leið þarna um í gærkvöldi að það var hending ef maður sá rusl, mér fannst fólk ganga alveg ótrúlega vel um. Svo þegar leið á kvöldið og menn fengu sér of mikið í tána, jafnvel báðar stóru tærnar misstu menn svolítið af rusli undir lokin en viðburðarhaldarar voru búnir að taka það til í morgun og eiga hrós skilið fyrir það.“ Umferðin betri uppi á Haki en á neðra svæði Einar segir að umferðin hafi verið þung á köflum í gær þegar gestir tóku að streyma á Þingvelli. Margir hafi hugsað til þjóðhátíðar 1994 þegar ein frægasta umferðarteppa Íslandssögunnar varð á leiðinni til Þingvalla. „Það var eins og við mátti búast, fremur þung umferð í gær og menn fóru að fá martraðir í bílunum um að þeir væru staddir aftur í einhverjum '94 veruleika en svo rættist strax úr því með góðu skipulagi. Kritíska mómentið var svo þegar var brottför um kvöldið og það var lyginni líkast að fylgjast með því hvað það gekk vel.“ Hann segir að bæta hefði mátt við rútum á neðra svæði en uppi á Haki hafi umferðin „runnið eins og smjör.“ Einar segist sérstaklega þakklátur starfsfólki sínu, sem hafi staðið sig vel í aðdraganda og á meðan viðburðinum stóð. Hann segir menn hafa lært mikið af þessum viðburði, bæði fyrir 1100 ára afmælishátíð Alþingis á Þingvöllum árið 2030 og aðra viðburði ef þeir skyldu dúkka upp.
Þingvellir Tónleikar Kaleo á Þingvöllum 2026 Kaleo Tónleikar á Íslandi Mest lesið Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Fleiri fréttir Braut reglur þegar hann minntist Steins Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Sjá meira