Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júní 2026 06:31 Fótboltamannasysturnar í Mexíkóborg fengu að finna fyrir því að vera skildar eftir án klæða og margar skemmdar. Getty/Gerardo Vieyra Kennarar sem voru að mótmæla brutu sér leið í gegnum girðingar við stuðningsmannasvæði HM í Mexíkóborg og var tekið á móti þeim með táragasi. Þeir fóru einnig illa með risastórar styttur í tengslum við mótið.
Skömmu fyrir upphaf heimsmeistaramótsins í mexíkósku höfuðborginni hafa brotist út átök milli kennara og lögreglunnar á staðnum. Lögreglan beitti táragasi gegn mótmælandi kennurum til að koma í veg fyrir að þeir kæmust að hinu sögulega Zocalo-torgi. Þar er unnið að því að koma upp stuðningsmannasvæði með risastórum skjá fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta, þar sem Mexíkó er ein af þremur gestgjafaþjóðum. At least two sculptures along Mexico City’s Paseo de la Reforma avenue were damaged during a protest. The demonstration was led by a teachers union. https://t.co/KDZH3UTNeV— USA TODAY Sports (@usatodaysports) June 3, 2026 Átökin hófust þegar kennararnir, sem krefjast hærri launa og betri lífeyriskjara, brutu sér leið í gegnum eina af girðingunum sem settar hafa verið upp við innganginn að torginu, sem er staðsett rétt hjá stjórnarbyggingum Mexíkó. Það sem vakti einna mesta athygli var hvað mótmælendurnir gerðu við fótboltastyttur sem var búið að koma upp í fullum herklæðum liða sem keppa á HM. Kennararnir veltu þessum risastóru skúlptúrum af fótboltamönnum í þessum mótmælum en þessar fimm metra háu plaststyttur, sem gerðar voru til að fagna mótinu. Þær voru rifnar niður og krotað á þær af andófshópi innan kennarasambandsins. Listaverkið sýnir fótboltamenn frá öllum heimshornum og er staðsett á trjáskyggðu breiðgötunni Paseo de la Reforma, sem er umkringd skýjakljúfum. Protesting teachers topple statues of football players in Mexico City and threaten growing protests before the World Cup if the government does not respond to their labor demandshttps://t.co/ilBPo7wPui pic.twitter.com/2lRywWMCVu— AFP News Agency (@AFP) June 3, 2026 „Lengi lifi CNTE,“ stóð með rauðu letri á nakinni sýningardúkku. „Ef engin lausn finnst, mun boltinn ekki rúlla,“ stóð á annarri. Styttur sem táknuðu Frakkland, Spán og Belgíu voru rifnar niður, afklæddar og brenndar af mótmælendum í Mexíkóborg. Að minnsta kosti tveir slösuðust í átökunum við lögregluna á mánudag. Mótmælendur notuðu flugelda gegn lögreglunni til að bregðast við táragasinu. Kennararnir hafa áður slegið upp búðum á Zocalo-torginu til að þrýsta á stjórnvöld en undanfarið hefur svæðið verið undir mikilli gæslu vegna undirbúnings fyrir HM. Fyrsti leikur 23. heimsmeistaramótsins í fótbolta fer fram á Azteca-leikvanginum í Mexíkóborg 11. júní þar sem heimamenn í Mexíkó taka á móti Suður-Afríku.
Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir „Lið sem enginn vill mæta núna“ Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Fylkir kennir fjölmiðlum um og Magnús heitur í Kópavoginum 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Yfir áttatíu erlendir skautarar svífa um í Laugardal Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram Snýr aftur til keppni eftir saurslysið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Átti erfitt fyrsta tímabil en getur nú skrifað söguna „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Dagskráin: Skiptiborðið og risaleikur á Króknum Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Sjá meira