„Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Sigurgeir Þorkelsson skrifar 3. júní 2026 12:38 Áslaug Arna þakkaði þingheimi fyrir síðustu tíu ár. Vísir/Vilhelm Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir segir ekkert til í því að hún setjist senn í ritstjórastól Morgunblaðsins. Áslaug gefur ekkert upp um næstu skref en hefur boðað vini og stuðningsmenn til veislu á morgun.
Áslaug tilkynnti í morgun í ræðustól Alþingis að hún hyggist segja af sér þingmennsku. Bjarki Sigurðsson fréttamaður ræddi við Áslaugu í beinni útsendingu frá Alþingi í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Mig langar að leggja mitt af mörkum með öðrum hætti og prófa nýja hluti. Ég er þrjátíu og fimm ára, búin að standa hér í þinginu í tíu ár og er bara spennt fyrir einhverju nýju.“ Áslaug segir ákvörðunina aðeins hafa legið fyrir skömmu áður en hún kom heim. Miklar umræður sköpuðust strax um hvað þingmaðurinn fyrrverandi tæki sér næst fyrir hendur. Var meðal annars rætt hvort Áslaug héldi næst upp í Hádegismóa þar sem ritstjórastóll hefur verið auður frá skyndilegu andláti Davíðs Oddssonar fyrsta mars síðastliðinn. Þar ættu Áslaugu að vera hæg heimatökin, tengsl Morgunblaðsins við Sjálfstæðisflokkinn eru öllum kunn, Áslaug hefur sjálf starfað þar og síðan skemmir eflaust ekki fyrir að faðir hennar, Sigurbjörn Magnússon, er stjórnarformaður útgáfufélags blaðsins, Árvakurs. „Það er ekkert til í því,“ sagði Áslaug, afdráttarlaus, þegar fréttamaður bar undir hana orðróminn. Áslaug hefur boðið vinum og stuðningsmönnum sínum til veislu á Parliament-hóteli við Austurvöll á morgun. „Ég ætla að hitta fólk á morgun og bjóða til smá veislu. Ég er búin að vera á þessum stað nú í tíu ár vegna fólksins í kringum mig sem hefur stutt mig og trúað á mig. Það er mitt heillaskref í stjórnmálum að eiga sterkt bakland og marga stuðningsmenn. Mig langar ekkert meira en að hitta þau og eiga góða stund.“ Ekkert sé þó ákveðið um hvort þar verði tilkynnt um næstu skref. Tilfinningar voru í hámarki þegar Áslaug tilkynnti um afsögn sína fyrr í dag. Hér má sjá myndaveislu Vísis frá þessari hjartnæmu stund: „Það var mjög falleg stund. Ég hef átt ótrúlega góð samskipti við þingmenn úr öllum flokkum. Við erum hér að spyrja okkur stórra spurninga og takast á um hvernig við getum gert betur fyrir Íslendinga alla.“ „Mér þótti vænt um það og ég kveð þingið líka með söknuði. Það er ekki sjálfsagt að fá að hafa áhrif á leikreglur samfélagsins.“
Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Fjölmiðlar Tengdar fréttir Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, klökknaði þegar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir flutti kveðjuræðu á Alþingi í dag. Það gerði hún líka þegar Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir kvaddi Alþingi fyrir örfáum vikum. 3. júní 2026 11:21 Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks til þrettán ára, flutti sína síðustu ræðu á Alþingi í dag og nýtti hana til að þakka þingheimi og starfsmönnum þingsins fyrir. Forseti Alþingis þakkaði henni sömuleiðis fyrir á meðan hann reyndi að klökkna ekki. 21. apríl 2026 14:56 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Sjá meira
Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, klökknaði þegar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir flutti kveðjuræðu á Alþingi í dag. Það gerði hún líka þegar Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir kvaddi Alþingi fyrir örfáum vikum. 3. júní 2026 11:21
Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks til þrettán ára, flutti sína síðustu ræðu á Alþingi í dag og nýtti hana til að þakka þingheimi og starfsmönnum þingsins fyrir. Forseti Alþingis þakkaði henni sömuleiðis fyrir á meðan hann reyndi að klökkna ekki. 21. apríl 2026 14:56