Sáttur eftir skrýtna daga: „Auðvitað er þetta truflandi“ Aron Guðmundsson skrifar 21. maí 2026 13:32 Lárus Orri Sigurðsson er þjálfari ÍA. Vísir/Einar Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, er sáttur með að lausn hafi fundist á markvarðavandræðum liðsins. Nýi maðurinn stendur á milli stanganna í kvöld gegn ÍBV og er hann hvattur til þess að vera óhræddur.
ÍA fékk leyfi frá KSÍ til að kaupa markvörð, þó að félagaskiptaglugginn sé lokaður, eftir að aðalmarkvörður liðsins Árni Marínó Einarsson ristarbrotnaði á dögunum. Skagamenn hafa nú gengið frá kaupum á Jóni Sölva Símonarsyni frá Breiðabliki og skrifar hann undir þriggja ára samning á Akranesi. „Gríðarlega sáttur,“ segir Lárus Orri, þjálfari ÍA, í samtali við Vísi aðspurður um viðbrögð sín gagnvart því að markvarða vandræði liðsins séu úr sögunni. „Þetta eru búnir að vera skrýtnir dagar síðan að Árni Marínó brotnaði. Síðustu tveir sólarhringar hafa verið óvenjulegir og búið að vinna mikið og gott starf innan stjórnarinnar hjá okkur. Þetta er bara frábær lausn.“ Hefur það verið truflandi að hafa þessa stöðu hangandi yfir sér? „Jú auðvitað er þetta truflandi. En það hafa allir gert sitt besta í því að reyna láta þetta ekki trufla stöðuna sem upp var komin. Við höfum unnið í kringum þetta. En þetta er ekki góð staða til að vera í. Við höfum fundið góða lausn. Nú er það bara áfram gakk.“ Á að fara óhræddur inn Skagaliðið Hinn átján ára gamli Jón Sölvi þekkir vel til á Akranesi eftir að hafa verið á láni hjá ÍA á síðasta tímabili. Hann fer beint í byrjunarlið ÍA í leik kvöldsins gegn ÍBV í Bestu deildinni. „Mér lýst mjög vel á Jón Sölva. Við þekkjum hann vel, vitum hvað hann getur. Hann er gríðarlega öflugur markvörður. Hann er óreyndur en við viljum unga og efnilega leikmenn. Það eina sem við biðjum hann um að gera er að fara óhræddur í þetta og vera tilbúinn til þess að gera mistök. Við erum allir hundrað prósent á bak við hann. Vitum hvað hann getur.“ ÍA og ÍBV byrjuðu bæði tímabilið í Bestu deildinni illa. ÍA hefur aðeins náð að rétta úr kútnum, meðal annars með sigri gegn Þór á Akureyri í síðustu umferð en ÍBV hefur enn ekki landað sigri og vermir botnsæti deildarinnar. Lárus Orri býst þó við erfiðum leik. „Við höfum verið að skoða ÍBV og kannski ólíkt okkur segir öll tölfræði að þeir ættu að vera með fleiri stig en raun ber vitni. Eyjamenn eru með gott lið, spila flottan fótbolta, koma upp og pressa. Þetta verður mikilvægur leikur fyrir okkur. Við erum spenntir en gerum okkur líka grein fyrir því hvað er í vændum. Hörku barátta. Þetta hefur ekki alveg fallið fyrir ÍBV. Staða þeirra í deildinni segir ekki til um styrkleika liðsins.“ Leikur ÍA og ÍBV í Bestu deild karla í fótbolta hefst á ELKEM vellinum á Akranesi klukkan sex í kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland.
Besta deild karla ÍA Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira